Fréttatíminn


Fréttatíminn - 27.05.2011, Qupperneq 14

Fréttatíminn - 27.05.2011, Qupperneq 14
F ranskir fréttamenn líta nú mjög í eigin barm og er ekki laust við að þeir séu nokkuð skömmustulegir. Það hefur komið í ljós að þeir vissu margt og mikið um þessa óviðráð- anlegu þukláráttu fyrrverandi for- manns Alþjóða gjaldeyrissjóðsins sem birtist í því að ef einhver kona kom nálægt honum leituðu kruml- urnar nánast ósjálfrátt, en þó mjög ákveðið, í hina ýmsu líkamshluta hennar. Og kannski vissu þeir eitt- hvað enn verra. En þeir kusu að þegja sem vandlegast og voru að því leyti trúir hinni rótgrónu hefð franskra fjölmiðlamanna að nefna aldrei neitt sem kallast mætti einkamál stjórnmálamanna. Er þess nú minnst í þessu sam- hengi að öllum fréttamönnum var fullkunnugt um laundóttur Mitterr- ands, en enginn nefndi hana fyrr en hann gaf sjálfur sitt leyfi. Þessi afstaða þótti þá sjálfsögð. Þegar ung blaðakona skýrði frá því í útvarpi að Strauss-Kahn hefði reynt að nauðga henni nokkrum árum áður, en hún hefði verið talin ofan af því að kæra og látið sér nægja afsökunarbeiðni, var nafn gjörn- ingsmannsins alltaf hulið á bak við hávaðasamt og skerandi „bíp-bíp“. Það var ekki fyrr en Strauss-Kahn varð formaður Alþjóða gjaldeyris- sjóðsins að blaðamenn fóru að hafa áhyggjur af því, en mjög svo undir rós, hvernig honum myndi farnast í Washington, en þá var sú ástæða ein nefnd að þarna á bökkum Po- tomac væru menn svo afskaplega siðavandir. Strauss-Kahn ætti til að ganga nokkuð langt þegar konur ættu í hlut, og kynnu Bandaríkja- menn að taka það óstinnt upp. Enda leið ekki á löngu áður en hann lenti þar í legorðsmáli sem var þó að mestu þaggað niður. Þagnarreglan Einn maður braut þessa þagnar- reglu, en það var ekki fréttamaður heldur húmoristinn Stéphane Yfirhylming eða samsæri Frakkar spyrja sjálfa sig ýmissa spurninga í kjölfar hand- töku Dominique Strauss-Kahn. Af hverju þögðu franskir fjöl- miðlar um alræmt orð- spor hans, var yfirhylmingin meðvituð og hvað gerist næst? Einar Már Jónsson skrifar frá París. Dominique Strauss-Kahn. Ljósmyndir/Nordic Photos/Getty Images. Rithöfundurinn Percy Kemp hefur skrifað bréf til Evrópuleið- togans Barroso og bent á að sögulega hafi geldingar reynst farsælir stjórnendur. Í Frakklandi er leitt getum að því að Sarkozy hafi séð sér leik á borði og sent Strauss-Kahn til AGS í Washington árið 2007 vitandi að þar myndi Strauss- Kahn gera af sér einhverjar gloríur í kvennamálum sem útilokuðu frekari pólitískan feril.Eplaedik m/krómi Vatnslosandi Eykur brennslu Jafnar blóðsykur Dregur úr hungurtilfinningu Örvar losun úrgangsefna Öflug hjálp í baráttunni við aukakílóin Fæst í apótekum Guillou sem kom daglega í útvarps- stöðina France-Inter skömmu fyrir hádegisfréttir og bullaði þá mörgu upp úr sér. Eitt sinn í febrúar 2009, þegar von var á Strauss-Kahn í við- tal í beinni útsendingu, sagði hann: „Eftir nokkrar mínútur mun Strauss-Kahn mæta hér í útvarps- salnum. Það er í fyrsta sinn sem hann kemur til Frakklands eftir ævintýri sitt með ungversku kon- unni í Alþjóða gjaldeyrissjóðnum. Að sjálfsögðu hafa alveg sérstakar varúðarráðstafanir verið fyrirskip- aðar í fréttastofunni. Allar konur eiga að klæðast síðum klæðum, mjög látlausum og algerlega ósexí. Öll skúmaskot í útvarpsbygging- unni hafa verið afgirt. Gert er ráð fyrir fimm aðvörunarstigum, og á síðasta stiginu eiga allar konur að leita tafarlaust á aðrar hæðir húss- ins. Konur eru beðnar að láta ekki neinn ótta ná tökum á sér, allt fer vel, það verður sett brómíð í kaffið hans.“ Og viðstaddir skellihlógu. Yfirhylmingin En eftir það sem nú hefur gerst í New York eru menn farnir að velta því fyrir sér hvort þessi regla franskra fréttamanna sé einhlít, og bætist það við að bandarískir blaðamenn hafa verið að hnýta illilega í starfsbræður sína í Frakk- landi: „Þið vissuð þetta allt, af hverju sögðuð þið ekki neitt?“ Spurningin er nefnilega sú, hvar „einkalífið“ endar og hvar tekur við það sem almenningur á rétt á að vita, því það getur skipt miklu máli. Ef maður býður sig fram til hinna æðstu embætta, þurfa þá kjósend- ur ekki að vita ef hann hefur ein- hverja persónulega veikleika sem geta verið honum til alvarlegs traf- ala í starfi? Og svo er enn annað: Með því að þegja stöðugt um það stjórnleysi á kenndum sínum sem háir Strauss-Kahn greinilega hafa fréttamenn kannski stuðlað að því að honum fyndist hann geta kom- ist upp með hvað sem er, að hann væri ekki aðeins hafinn upp fyrir venjulega mannasiði heldur og líka lög og rétt. Þegar Strauss-Kahn mætti í fréttastofuna eftir pistil húmoristans sem hann hafði heyrt á leiðinni, varð hann æfareiður, honum fannst þetta ekkert annað en mannvonska. Því eru þeir jafn- vel til sem ásaka fréttamenn í Frakklandi fyrir að eiga sína sök á því sem nú hefur gerst í hótel- svítunni í New York; ef þeir hefðu ekki hylmt svona yfir með honum, segja þeir, hefði hann kannski séð að sér í tíma. Lausnin Almenningur í Frakklandi tekur þessu með ýmsu móti. Svo virðist sem „samsæriskenningin“ sé út- breidd í margvíslegum myndum, en fleiri ásaka þó CIA en Sarkozy. Í sumra augum er þetta allt saman yfirnáttúrulegt: Númerið á svítu Strauss-Kahn var 2806, og það var einmitt 28. júní sem menn áttu að gefa kost á sér í prófkjöri franskra sósíalista ... Rithöfundur einn, Percy Kemp að nafni, velti hins vegar vanda- málinu fyrir sér frá annarri hlið í opnu bréfi sem hann skrifaði til Barroso, þess sem hefur mikil völd í Evrópusambandinu, og birtist það í blaðinu „Libération“. Hann tók þar fyrst dæmi af stjórnendum sem hefðu verið á valdi ástríðna og framið ýmis illvirki og byrjaði á sögunni um Davíð og Betsabe. En eftir það taldi hann upp ýmsa menn sem hefðu hins vegar staðið sig sérlega vel og unnið þjóð sinni og þjóðhöfðingja mikið gagn: víetnömsku þjóðhetjuna Ly Thuong Kiet, býsanska flotaforingjann Narses og þar fram eftir götunum. Og hann spyr nú Barroso hvort hann viti hvað það var sem þeir áttu sameiginlegt. Það veit Evrópuleið- toginn væntanlega ekki, og því kemur svarið: Þessir menn voru allir geldingar. Því leggur rithöf- undurinn nú fram sína tillögu: Þar sem það er afskaplega bagalegt að menn láti besefann hlaupa með sig í gönur þegar betra væri að heilinn réði ferðinni, væri rétt að þeir karlar einir fengju að bjóða sig fram til æðstu embætta sem sviptir væru þeim útlim sem varð Strauss-Kahn að falli. Þetta er góð og fornhelg lausn: Öll völd til handa geldingunum. 14 fréttaskýring Helgin 27.-29. maí 2011
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Fréttatíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.