Fréttatíminn - 27.05.2011, Side 20
ÞRÝSTIJÖFNUNAR HEILSUDÝNUR OG HEILSUKODDAR
Stillanlegt og þægilegt
Stillanlegir dagar í maí.
6 mánaða vaxtalausar greiðslur í boði !
www.betrabak.is • Faxafeni 5, Reykjavík • Sími 588 8477
0%
vextir
30%
afsláttur
T
heo er sögð gamansamt drama en
Aníta lætur lítið uppi um innihald
myndarinnar annað en það að hún
hefst á laginu hennar sem gefur
tóninn fyrir það sem koma skal.
„Myndin hefur ekki verið frumsýnd en hún hefst á
Grænlandi þar sem ekkert er að sjá annað en aðal-
persónuna á ísilagðri auðninni,“ segir Aníta. „Þetta
þróaðist svo þannig að rödd mín kemur fyrst inn
og minnir á eins konar verndarengil sem vakir yfir
honum og leggur með honum upp í þetta áhrifa-
ríka ferðalag.“
Leikkonurnar Mira Sorvino og Dakota Jo-
hnson eru í stórum hlutverkum í myndinni en sú
síðarnefnda er dóttir Miami Vice-hetjunnar Dons
Johnson og leikkonunnar Melanie Griffith. Auk
kvennanna eru Adrian Martinez og Christopher
Backus í mikilvægum hlutverkum og sjálfur Larry
King er í eigin persónu í myndinni. Þá spillir varla
fyrir að þótt um litla, sjálfstæða mynd sé að ræða
er Hollywood-risinn James Cameron á meðal fram-
leiðenda.
„Ég hef aldrei spilað tónlistina mína opinberlega
en ég nota hana þegar ég er að undirbúa mig fyrir
senur og koma mér í karakter. Ég finn mjög sterka
tilfinningalega tengingu í tónlistinni og upp úr
henni koma oft alls konar nýjar hliðar á persón-
unni,“ segir Aníta sem á þó ekki langt að sækja
tónlistaráhugann þar sem hún er dóttir Gunnlaugs
Briem, trommara Mezzoforte, og söngkonunnar
Ernu Þórarinsdóttur.
„Hingað til hef ég að mestu haldið tónsmíðum
mínum leyndum en varla mikið lengur fyrst ég er
að tala við þig,“ segir Aníta og hlær. Tónlistin er
eitt af því fáa sem ég hef getað verið alveg einlæg
í og þess vegna hef ég haldið henni alveg prívat
fyrir sjálfa mig. Ég nota sömu aðferðir við að semja
tónlist og þegar ég bý mig undir að leika og þannig
hefur þetta farið mjög vel saman.“
Anita og Backus léku saman í spennutryllinum
Elevator og Backus kynnti Anítu í framhaldinu
fyrir Ezna Sands en hann hefur meðal annars getið
sér gott orð sem handritaráðgjafi hjá ekki ómerk-
ari mönnum en Tim Burton og Steven Spielberg.
„Christopher sagði að ég yrði að hitta hann og
það endaði með því að við fórum í hóp saman út
að borða og enduðum heima að hlusta á tónlistina
mína. Ég hef gert nokkuð af því að spila tónlistina
mína fyrir samstarfsfólk mitt þegar við erum að
kynnast og tengjast en tónlistin mín hefur aldrei
farið út fyrir einhverja svona þrönga hópa.“
Ezna hreifst greinilega af tónsmíðum Anítu því
hann hringdi strax daginn eftir og vildi endilega fá
hana í heimsókn til þess að ræða möguleika á því
að nota tónlistina í kvikmyndina Theo. „Ég er var-
kár hérna úti. Ég þekkti hann eiginlega ekki neitt
og tók þessu fálega til að byrja með. Maður þarf að
fara varlega með heimsóknir til ókunnugra karl-
manna. Hann gafst samt ekki upp og hélt áfram að
hringja þangað til ég lét tilleiðast.“ Aníta heimsótti
síðan leikstjórann sem lét myndina rúlla fyrir hana
og hún söng titillagið með. Kannski meira í gamni
en alvöru en úr varð að myndin Theo hefst á söng
hennar.
Aníta býr í Los Angeles ásamt eiginmanni
sínum, leikstjóranum og framleiðandanum Dean
Paraskevopoulos. „Ég hef alveg nóg að gera hérna
og er þessa dagana að byrja í tökum á rosalega
spennandi gamanmynd. Maðurinn minn er einn
framleiðenda en ég get lítið sagt um myndina
núna. Þetta er allt frekar mikið leyndó ennþá,“ seg-
ir Aníta sem er nýkomin aftur heim til Los Angeles
eftir löngu tímabæra og kærkomna Íslandsheim-
sókn. „Það er bara alltaf svo mikið að gera. Ef það
eru ekki tökur þá er það undirbúningur. Þannig að
það er sjaldan góður tími til að fara til Íslands en
nú sagði ég bara hingað og ekki lengra, dreif mig
og það var æðislegt. Frábært að hitta ömmu og afa,
mömmu og pabba, Katrínu systur og alla,“ segir
leikkonan og, nú opinberlega, tónskáldið Aníta
Briem.
Þórarinn Þórarinsson
toti@frettatiminn.is
Í leikkonunni leynist tónskáld
Hingað til
hef ég að
mestu haldið
tónsmíðum
mínum
leyndum en
varla mikið
lengur fyrst
ég er að tala
við þig.
Leikkonan Aníta Briem er sjálfsagt einna þekktust fyrir leik sinn
í ævintýrastórmyndinni Journey to the Center of the Earth á móti
Brendan Frasier. Aníta er einnig tónskáld en hefur hingað til haldið
tónsmíðum sínum að mestu fyrir sjálfa sig. Eftir að leikstjórinn Ezna
Sands þrábað hana um að syngja lag eftir sjálfa sig í kvikmyndinni
Theo lét hún tilleiðast og er að koma út úr skápnum sem tónskáld.
Aníta Briem segist geta
verið fullkomlega einlæg
í tónsmíðum sínum sem
hjálpa henni bæði að
undirbúa sig fyrir hlutverk
og að tengjast fólki.
20 viðtal Helgin 27.-29. maí 2011