Fréttatíminn


Fréttatíminn - 27.05.2011, Blaðsíða 37

Fréttatíminn - 27.05.2011, Blaðsíða 37
F í t o n / S Í A Rafrænni atkvæðagreiðslu um kjarasamning VR og FA, Félags atvinnurekenda, lýkur kl. 12:00 á hádegi 3. júní. Nánari upplýsingar og aðgangur að atkvæðaseðli á vef VR, www.vr.is Kjörstjórn VR Virðing RéttlætiVR | KRINGLUNNI 7 | 103 REYKJAVÍK | S. 510 1700 | F. 510 1717 | WWW.VR.IS Mundu eftir að kjósa Dagskrá: Euraxess starfatorg www.euraxess.is Helga Rún Viktorsdóttir, sérfræðingur hjá Rannís Erlendir starfsmenn á Íslandi Sophie Froment, mannauðsstjóri CCP START rannsóknarstöðustyrkir Eiríkur Stephensen sérfræðingur hjá Rannís Hvernig er að starfa sem erlendur vísindamaður á Íslandi? Heidi Pardoe, rannsóknastöðustyrkþegi hjá Rannsóknasjóði Veitingar í boði í fundarlok Laugavegi 13, 101 Reykjavík sími 515 5800, rannis@rannis.is www.rannis.is H N O T S K Ó G U R g ra fí s k h ö n n u ní dag! Á sunnudag varpa sex lista-menn frá Íslandi og Þýska- landi nýju ljósi á Íslendingasög- urnar með ljóðum, tónum og uppistandi. Hér leiða saman hesta sína þau Nora Gomringer, Bas Böttcher, Finn-Ole Heinrich, Ugla Egilsdóttir, Bergur Ebbi Benediktsson og Dóri DNA. Hópurinn ferðaðist um Ísland síðastliðið vor til þess að kynna sér uppruna og umhverfi Íslend- ingasagna, las sér til og ræddi við rithöfunda og fræðimenn um íslenskan sagnaarf. Af þeirri ferð spratt upp verk í anda fornsagna og upp- lifunar listafólksins af landi og þjóð. Í verkinu ægir saman listgreinum; tónlist, ljóðaflutningi og uppistandi svo að úr verður frumlegt og spennandi verk sem birtir Íslendingasög- ur í nýju og óvæntu ljósi. Verkið er öðrum þræði tíma- bær skuggsjá sem verður íslensku þjóðinni hvatning, uppörvun og skemmtun. Sýnt í Tjarnarbíói á sunnudags- kvöld klukkan 20.  listahÁtíð Áflog bænda Leikur að Íslendingasögum Listahátíð heldur áfram á fullu um helgina og ungir sem aldnir ættu flestir að geta fundið eitthvað við sitt hæfi. Franska leikhúsið Théâtre du Petit Miroir býður til að mynda upp á barnasýninguna Rebbasögu (Le Roman de Renart). Þar er sótt í miðaldasöguna um refinn Renart sem beitir hin dýrin ýmsum klækjum til þess að komast af. Sýningin er byggð á kínverskri skuggaleikhús- hefð og í henni er notast við brúður og tónlist til þess að miðla sögunni til áhorfenda. Síðan sýningin var frumsýnd í Taílandi árið 1993 hefur hún ferðast um Frakkland og ríflega fjörutíu önnur lönd og verið flutt á fjölda tungu- mála. Vigdís Gunnars- dóttir og Þór Tulinius ljá að þessu sinni dýrunum í sýningunni raddir sínar. Friðrik Rafnsson þýddi textann en Sölvi Björn Sigurðsson snaraði söngtextunum. Sýnt í Tjarnarbíói á laugardag- inn klukkan 14 og 17.  listahÁtíð skuggaleikur renarts Rebbi reddar sér l istakonan Louise Bourgeois var 98 ára þegar hún lést á liðnu vori. Listasafn Íslands opnar í kvöld, föstudagskvöld, klukkan 20 fyrstu stóru sýninguna á verkum hennar hér á landi. KONA/ FEMME er yfirgripsmikil sýning yfir fjölbreyttan feril þessarar fjölhæfu listakonu sem var síður en svo einhæf í list sinni en á sýningunni gefur að líta mál- verk, höggmyndir, teikningar, grafík og innsetning- ar, frá 1946 til 2008. Louise Bourgeois er talin ein af fremstu listamönn- um ofanverðrar 20. aldar Hún fæddist í París og flutti til New York 1938 þar sem hún bjó og starfaði alla ævi. Hún varð bandarískur ríkisborgari árið 1955. Bourgeois hóf feril sinn sem listmálari en sneri sér að höggmyndalist í stríðslok. Elstu viðarhöggmyndir hennar, oddmjóar að neðanverðu og festar beint á gólfið án stöpuls, urðu meðal fyrstu umhverfisinn- setninga í New York. Í gallerísalnum gekk áhorfand- inn innan um höggmyndirnar líkt og í samkvæmi. Þær voru einar og sér eða hópað saman. Snemma á sjöunda áratugnum hvarf Bourgeois frá tréskurðinum og tók í staðinn til við að móta völundarsmíð úr fljótandi gifsi, latexi og trjákvoðu. Sérkennileg verk hennar hlutu ekki alþjóðlega viðurkenningu fyrr en Nútímalistasafnið í New York skipulagði yfirlitssýningu á list hennar 1982. Á KONA/FEMME í Listasafni Íslands er innsetn- ing hennar CELL (BLACK DAYS), frá 2006, sem nú er sýnd í fyrsta sinn. Samanlagt munu 28 verk eftir Louise Bourgeois prýða sýningu á höggmyndum, málverkum, teikningum og veflist. Þau eru úr fórum einkasafns Ursulu Hauser í Sviss, Hauser & Wirth, Louise Bourgeois Trust í New York og öðrum einka- söfnum.  listasafn íslands louise bourgeois Rebbi deyr ekki ráðalaus og platar hin dýrin sér til framdráttar. Louise Bourgeois, Klefi (Svartir dagar), 2006 © Louise Bourgeois Trust. Með leyfi Hauser & Wirth and Cheim and Read. Ljósmynd: Christopher Burke. Konan og Louise Sérkennileg verk hennar hlutu ekki alþjóðlega viðurkenn- ingu fyrr en Nútíma- listasafnið í New York skipulagði yfirlits- sýningu á list hennar 1982. Hópurinn leikur sér með Íslendingasögurnar. listahátíð 29 Helgin 27.-29. maí 2011
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.