Fréttatíminn - 27.05.2011, Side 54
46 tíska Helgin 27.-29. maí 2011
Sækjumst eftir sam-
þykki kynsystra
Það er eins og samfélagið setji þær reglur og
kröfur að við þurfum að eiga mikið af öllu.
Mikið af buxum, skóm, bolum og yfirhöfnum.
Við reynum að passa okkur að klæðast ekki
sömu flíkinni tvo daga í röð. Viljum ekki að
aðrir fari að tala um okkur. Tali um okkur
eins og við eigum ekki ný, flott föt sem eru
samkvæmt nýjustu tísku. Þess vegna finnst
okkur við þurfa að eiga mikið af öllu.
Ég hef oft orðið vitni að því þegar stelpur
segja: „Af hverju þurfti ég að hitta hana
einmitt í dag. Síðast þegar ég hitti hana
var ég í sömu fötunum.“ Og takið
eftir því – hana. Þegar stelpur
klæða sig, til dæmis fyrir skemmt-
analífið, velja þær yfirleitt ekki flík-
urnar til þess að tæla hitt kynið. Þær klæða
sig upp til að vera samþykktar af kynsystrum
sínum. Passa sig að klæða sig rétt samkvæmt
reglum samfélagsins og vonast eftir því að
falla í fjöldann.
Samkvæmt minni kenningu eru það þó aðeins
við sjálfar sem tökum eftir og pælum í hvort
við göngum í sömu fötunum tvo daga í röð.
Hverjum er ekki sama þótt við notum eina
flík meira heldur en aðra. Og ef það vill svo
til að þú sért manneskja sem aðrir tala um;
af hverju ætti þér ekki að vera sama hvað
öðrum finnst? Vertu sjálfri þér trú, kauptu
föt sem þér líður vel í og láttu baktalið og
gagnrýnina sem vind sem eyrun
þjóta. Vandamálið liggur ekki
hjá þér.
Viktor Breki Óskarsson er 22 ára og
starfar hjá World Class. Áhugamál hans
eru golf, fótbolti og líkamsrækt.
„Undanfarið hef ég keypt fötin mín erlend-
is, í Zöru, H&M, Urban Outfitters og fleiri
algengum verslunum. Uppáhaldsbúðin
mín er þó klárlega All Saints; flott föt sem
oft eru öðruvísi. Fötin sem ég kaupi eru
blanda af mörgu sem ég set saman í minn
persónulega stíl. Miklar andstæður finnst
mér töff: fínir jakkar – snjáðar buxur og
fleira. Ég er mikið í núinu, klæðist því sem
mér dettur í hug.
Ég er svolítið eins og fótboltamaðurinn
David Beckham, með sams konar
fatastíl og líferni.“
Miklar andstæður eru flottar
5
dagar
dress
tíska
Kolbrún
Pálsdóttir
skrifar
Þriðjudagur
Skór: Nike
Buxur: Cheap Monday
Bolur: Urban Outfitters
Peysa: Hollister
Jakki: Revolution
Mánudagur
Skór: H&M
Buxur: Acne
Skyrta: Levi’s
Peysa: Diesel
Jakki: Diesel
Miðvikudagur
Skór: Hudson
Buxur: Diesel
Bolur: G-star
Peysa: H&M
Jakki: Junk De Luxe
Föstudagur
Skór: Jónsson
Buxur: Mao
Skyrta: Bruuns Bazaar
Vesti: Zara
Bindi: Marco
Gleraugu: Tiger of Sweeden
Úr: Dolce & Gabana
Belti: Calvin Klein
Fimmtudagur
Skór: All Saints
Buxur: Diesel
Bolur: H&M
Skyrta: Zara
Úr: Casio
Taska: Forever 21
Gleraugu: Ray Ban
Tískurisinn Top-
shop hefur sent
frá sér nýjustu
fatalínuna sína,
Urban Traveler
Collection, sem
er sérhönnuð
fyrir sumarið. Inn-
blástur línunnar
kemur frá Mar-
okkó, Indlandi og
Mið-Ameríku þar
sem mynstraðar
flíkur eru í fyrir-
rúmi. Hönnuðum
línunnar fannst
vanta föt sem
Mynstraðar flíkur fyrir ferðalögin
Alexa Chung virt í
tískuheiminum
Breska tískudrósin og þáttastjórn-
andinn Alexa Chung hefur skapað
sér stórt nafn innan tískuheimsins
og mun prýða tvær Vogue-forsíður
núna í júní, því breska og kóreska.
Það er ekki oft sem sama
manneskjan prýðir tvær
forsíður á sama blaði, í sama
mánuði, og það er greinilegt
merki um að Chung er orðin
virt innan tískubransans. Hún
hefur einu sinni áður setið
fyrir hjá Vogue og var það í
mars í fyrra, einnig hjá breska
tímaritinu.
hentuðu vel fyrir útihátíðir
og ferðalög í sumar og hefst
salan á næstu dögum bæði í
Bretlandi og á Topshop.com.
Við Íslendingar fáum einnig
að njóta góðs af línunni því
vel valdar flíkur úr henni
koma í verslanir hér á landi.
Undirfatalína Beckhams
Fótboltastjarnan David
Beckham hefur trúlega ekki
þolað alla þá athygli sem
konan hans, Victoria, hefur
fengið frá tískuheiminum
síðustu mánuði og ætlar nú
að hefja sinn eigin tískuferil.
Hann fékk í lið með sér fram-
kvæmdarstjórann Simon
Fuller sem hefur hjálpað
Victoriu mikið gegnum tíðina
og munu þeir saman hanna
undirfatalínu fyrir karlmenn.
Sjálfur hefur David verið andlit
undirfatalínu tísku-
fyrirtækisins Armani
og segir hann
hugmyndina að nýrri
línu hafa fæðst þar.
Einnig mun nýr ilmur
frá kappanum koma
í sölu í september og
fékk konan hans að
skipta sér mikið af
þeirri hönnun.
www.noatun.is
Verslanir Nóatúns eru
opnar allan sólarhringinn
Nýttu þér nóttina í
Nóatúni