Fréttatíminn - 27.05.2011, Qupperneq 59
Plötuhorn Dr. Gunna
Eyfi 50 ... ykkur syng ég mína söngva
Eyjólfur Kristjánsson
Margfaldur Eyfi
Eyfi varð fimmtugur í apríl og
fagnar því glæsilega: spilar
á 50 tónleikum um land allt
og gefur út þennan þrefalda
diskapakka með 50 lögum sem
hann hefur sungið og samið (í
flestum tilvikum). Eyfi er miklu
betri lagahöfundur en maður
hefur gefið honum kredit
fyrir, líklega vegna þess að
mikið af tónlistinni hans kom
til framkvæmda á sándlega
niðurlægingartímabilinu 1988-
1994 og ber þess dauðhreins-
að vitni. Stundum er lífrænna
sánd á lögunum og fjarlægi
maður lyftu-sándið í huganum
blasa oftast við verulega flott
popplög. Í þykkum bæklingi
eru textar, myndir og ágætt
ferilsyfirlit. Splæst hefði mátt
í diskógrafíu fyrir nördana, en
í heildina litið er þetta hinn
fínasta pakki frá stórpoppara
sem er ekki allur þar sem hann
er séður.
Born this Way
Lady GaGa
Lafðin lafir í hásætinu
Með algjörlega frábærum
popplögum eins og Poker
Face og Bad Romance
hlammaði Lady GaGa
sér í hásæti poppsins.
Það skiptir þó engu hvað
hún glennir sig eða er í
fríkuðum múnderingum;
ef hún er ekki með góð lög
til að bakka upp fyrir-
ferðina mun hún þurfa að
hörfa úr sætinu. Eitthvað
mun hún þó lafa þar enn,
því þótt ekkert á þessari
annarri plötu hennar sé
jafn æðislegt og það æðis-
legasta sem hún hefur gert,
er hér alveg hellingur af
ágætis nútímapoppi. Platan
er tröllaukin. Meira en
klukkutími af músík en flest
lögin svipuð, ýkt hressileg
með búmmbúmm-takti
og sykursætum gusu-við-
lögum. Dálítið yfirþyrmandi
og einsleitt, en gott í minni
skömmtum.
Helgin 27.-29. maí 2011
arabian horse
GusGus
Besta plata GusGus!
Gusarar hafa ekki alltaf vitað í
hvorn fótinn þeir ættu að stíga.
Stundum verið popp, stundum
rafmagnað taktatorf. Nú – eftir
langt ferðalag – koma þessir hlutar
saman í saumlausa og sterka heild;
fágað og heillandi taktpopp með
sál, sem ég get ekki ímyndað mér
annað en að muni blakta í sumar.
Öll lögin (nema hið óvænta
opnunarlag Selfoss og lokalagið)
eru sungin af Daníel, Urði eða
Högna úr Hjaltalín, saman eða
sitt í hvoru lagi. Það gera þau
stormandi vel. Stephan og Birgir,
hinn eiginlegi kjarni sveitarinnar,
eru orðnir gríðarlega leiknir í
að búa til ofursvala tónlist með
rafdótinu (aðallega á einhver þýsk
galdratól, sem mátti sjá á sviðinu
í Hörpu á opnunargigginu þar), en
virkilega smart álegg dettur inn
í formi lífrænna aukahljóðfæra.
Þar eru fagmennirnir Samúel Jón
Samúelsson með safaríka strengi
og Davíð Þór Jónsson með alls
konar að gera góða hluti.
Það er óvenjulegt að hljómsveitir
komi með sína bestu plötu þegar
plata númer átta skríður í rekkana,
en það er einmitt það sem nú
hefur gerst hjá GusGus. Þetta
er klárlega besta platan þeirra,
fnæsandi gullfallegur gæðingur,
langfremstur á skeiðvellinum.
Mygluostur, rauðvín og GusGus
– þetta verður bara betra með
aldrinum!
Náttúru- og umhverfisfræði
skógfræði og laNdgræðsla
umhverfisskipulag
háskóli lífs
og lands
hægt er að stunda nám til Bs- prófs á fimm náms-
brautum við lbhÍ: Búvísindum, hestafræði, náttúru-
og umhverfisfræði, skógfræði/landgræðslu og umhverfis-
skipulagi (fornám að landslagsarkitektúr). miðstöð
háskólanámsins er á hvanneyri í Borgarfirði.
Nemendagarðar á hvanneyri bjóða einstaklings herbergi,
einstaklingsíbúðir og tveggja til fjögurra herbergja íbúðir.
allar upplýsingar um verð og stærð húsnæðis á vegum
garðanna eru á heimasíðu Nemenda garða. félagslíf nem-
enda er með miklum ágætum, en því stýrir stjórn
Nemendafélags landbúnaða-
háskóla Íslands.
kyNNtu þér Bs Nám við laNdBúNaðarháskóla ÍslaNds.
á heimasÍðu skólaNs - www.lBhi.is - fiNNur þú greiNagóðar upplýsiNgar um Námið.
sÍmiNN er 433 5000
BúvÍsiNdi
hestafræði
umsóknarfrestur um
háskólanám er til
4. júní.