Prentarinn - 01.04.2002, Page 10
Guðjón Steingrímsson í Vörumerkingu.
Hafdís Hlöðversdóttir i Prentkó.
Jón Þór og Kolbrún Guðmundsd. hjá Isafold.
SJÚKRASJÓÐUR BÓKAGERÐARMANNA
REKSTRARREIKNINGUR ÁRSINS 2001
Skýr. 2001 2000
Rekstrartekjur:
Iðgjöld 23.940.778 22.921.958
Rekstrartekjur samtals 23.940.778 22.921.958
Rekstrargjöld:
Sjúkradagpeningar og styrkir 12.942.233 15.034.027
Skrifstofukostnaður 4 6.275.434 5.334.262
Húsnaeðiskostnaður 2.008.039 2.907.480
Rekstrargjöld samtals 21.225.706 23.275.769
Rekstrarhagnaður (-tap) 2.715.072 ( 353.811)
Fjármunatekjur (fjármagnsgjöld):
Vaxtatekjur og verðbætur 3 15.857.583 7.233.076
Vaxtagjöld og verðbætur ( 14.957) ( 14.882)
Reiknuð gjöld vegna verðlagsbreytinga 2 ( 10.057.526) ( 4.535.958)
Fjármunatekjur (fjármagnsgjöld) 5.785.100 2.682.236
Hagnaður ársins 8.500.172 2.328.425
SAMSTARF VIÐ ÖNNUR
FÉLÖC
A starfsárinu gekk Félag graf-
ískra teiknara til samstarfs við
okkur í FBM. Unnið er í sam-
ræmi við samning sem gerður var
við sameiningu félaganna sem
felst í að formaður FGT hefur
haldið sinni stöðu óbreyttri en
skrifstofan hefiir tekið yfir dag-
lega starfsemi og innheimtu á
gjöldum fyrir félagsmenn í FGT,
nú er 51 félagsmaður skráður í
deild FGT.
Samstarf FBM við önnur félög
hefur verið með hefðbundnu sniði
innan Fjölmiðlasambandsins. Auk
þess eigum við samstarf við Raf-
iðnaðarsambandið vegna Marg-
miðlunarskólans og sameiginlegt
áhugamál sem er rekstur golfvall-
ar í Miðdal og þar eigum við
saman klúbbhúsið ásamt Dalbú-
um. Þá erum við í samstarfi við
ijölmörg félög innan ASÍ í Ferða-
nefnd stéttarfélaga.
Eins og félagsmönnum er
kunnugt var tillaga um að ganga
til samstarfs við ASÍ felld á aðal-
fundi árið 2000. En eftir að ASÍ
breytti lögum sínum á síðasta Al-
þýðusambandsþingi er það opið
fyrir FBM að sækja um aðild að
ASÍ.
FJÖLMIÐLASAMBAND
Blaðamannafélag Islands, Félag
bókagerðarmanna, Félag grafískra
teiknara, Rafiðnaðarsamband Is-
lands, Starfsmannasamtök Ríkis-
útvarpsins og Verslunarmannafé-
lag Reykjavíkur stofnuðu til
formlegs samstarfs og samvinnu
þessara félaga með því að stofna
Fjölmiðlasambandið þann 24,
október 1999. Hlutverk sam-
bandsins er að vinna að sameigin-
legum hagsmunamálum þeirra
sem starfa með einum eða öðrum
hætti við íjölmiðla eða fjölmiðl-
un. Sérstök áhersla verður lögð á
samstarf og samráð um kjaramál,
fagleg málefni, réttindamál,
vinnuumhverfi, starfsmanna-
stefnu, tæknimál, orlofsmál, heil-
brigði, endurmenntun og áhrif
starfsmanna á stjórn fjölmiðla.
Fjölmiðlasambandið mun leitast
við að efla og glæða félagsanda
og samheldni starfsmanna á íjöl-
miðlum. Þá mun sambandið koma
fram á opinberum vettvangi sem
sameiginlegur málsvari fjölmiðla-
starfsmanna. Einnig mun fjöl-
miðlasambandið sameina eins og
kostur er þátttöku fulltrúa starfs-
manna í norrænu og alþjóðlegu
samstarfi. Þetta eru háleit mark-
mið sem að litlu leyti hafa gengið
eftir en stjórnin hittist nokkrum
sinnum á ári og ræðir sameiginleg
málefni. Fulltrúar FBM í stjórn
Fjölmiðlasambandsins eru Georg
Páll Skúlason, sem er formaður
Fjölmiðlasambandsins, og Sæ-
mundur Amason.
BÓKASAMBAND ÍSLANDS
Félag bókagerðarmanna er aðili
að Bókasambandinu en innan
þess eru félög sem eiga hagsmuna
að gæta í bókaútgáfu og atvinnu-
starfsemi henni tengdri. Auk
FBM eru Samtök iðnaðarins, Rit-
höfundasambandið, Bókavarðafé-
lagið, Hagþenkir, Bókaútgefendur
og Samtök bóka og ritfangaversl-
ana aðilar að sambandinu. Fulltrúi
FBM í stjórn Bókasambandsins er
Stefán Ólafsson sem er jafnframt
formaður bókasambandsins.
Bókasambandið hefur undan-
farin ár gengist fyrir átaki á degi
bókarinnar 23. apríl, til að vekja
athygli á bókaútgáfu og bóklestri.
j desember birti Bókasambandið
upplýsingar um prentstað ís-
lenskra bóka er komu út fyrir síð-
ustu jól og var skýrslan birt í
Prentaranum.
SKÝRSLA BÓKASAFNS-
NEFNDAR
Bókasafnsnefndin kom saman
tvisvar sinnum á siðasta starfs-
tímabili. Stjórn félagsins vísaði til
10 ■ PRENTARINN