Prentarinn - 01.04.2002, Side 29
Ájram ísfólkið
ri andlit
1) Kolla spreytir sig
í skollaleiknum.
2) Elísabet sýndi
okkur hvernig á
að gera þetta
Þessar myndir voru teknar í
árlegri sumarferð Isfólksins á
Þingvöllum þar sem vinabönd
styrktust (mynd 1), fólk fann
íþróttir við sitt hcefi (mynd 2 og 3),
þar var líka dansað (mynd 4), svo
var borðað og drukkið (mynd 5)
og mikið hlegið (mynd 6).
Allir skemmtu sér prýðilega
(sumirfram á morgun mesta dags).
4) Dansað 5) Grillað
5) Spjallað
og hlegið
í rútunni
Við starfsmenn í Isafoldarprentsmiðju rákum upp stór augu þegar við
litum í síðasta eintak Prentarans og sáum grein frá íslensku
auglýsingastofunni um starfsmannafélagið þeirra sem ber
heitið „ísfólkið". Undrun okkar var ekki aðeins vegna
þess hve nafnið er frumlegt og fallegt á prenti, heldur
vegna þess að ÍSFÓLKIÐ starfsmannafélag ísafoldar-
prentsmiðju er skráð félag hjá Hagstofu íslands með
kt. 470301-2870 og verður því nafnið að teljast okkar.
Engin tvö lögleg og skráð félög geta nefnilega borið
sama nafnið. En þar sem meðlimir ísfólksins eru bæði
„ligeglad" og friðelskandi manneskjur viljum við síst standa i
vegi fyrir tækifæri starfsmanna íslensku auglýsingastofunnar til að
verða „ódauðleg í félagsstarfi" eins og þau sjálf orðuðu það.
Höfum við því ákveðið að deila nafninu með þeim og sendum
þeim af því tilefni okkar bestu kveðjur. Engu að síður finnst
okkur tilefni til að birta hér í Prentaranum það sem við kjósum
að kalla „LÖG(U)LEGRI ANDLIT ÍSFÓLKSINS".
Árið 2001 með ísfólkinu B
Það var kraftur í félagslífinu hjá ísfólkinu árið 2001
þrátt fyrir mikið umrót og flutninga fyrirtækisins milli
sveitafélaga. Hér eru nokkuð af því sem við höfum haft
fyrir stafni:
Þorrablótið í Valsheimilinu var f rábært, þar var mikil
gleði og glaumur og matur sem sumum fannst
góður og öðrum ekki.
Keilumótin hafa verið þónokkur og vel sótt.
Áfram keilulið.
Sumarferðin - Sjá myndir*
Farið var á Þingvöll að þessu sinni. Lagt
var af stað snemma dags og svo fengu
allir ölbauka og samlokur við Almannagjá. Þegar
við höfðum matast skiptum við liði, sumir fóru í göngu með
leiðsögumanni en aðrir fóru á hestbak. Svo var leikið, grillað,
dansað og drukkið fram á nótt.
Stokkseyri - Haustferðin
Vitinn og rjómabúið skoðuð og borðaður humar - frábær ferð
sem endaði með pöbbarölti í Reykjavík.
Jólahlaðborðið - Nammi, namm.
Þökkum Veislueldhúsi Harðar kærlega fyrir frábæra veislu.
Isafoldarprentsmiðja lif.
3) Arnar tók sig vel
út í stígvélakastinu...