Fréttatíminn - 02.11.2012, Qupperneq 10
Laaaaaaaaaangbestar?
Mörgum finnst Superfries vera laaaangbestu
frönskurnar og þær eru nú betri en nokkru sinni
áður. Sérvaldar kartöflur, steiktar í repjuolíu og
kryddaðar með sjávarsalti. Prófaðu núna!
Engeyjarættin
Engeyingarnir rísa hæst eftir að völd Thorsaranna dvína
en veldið stóð hæst þegar bræðurnir Bjarni, Sveinn og
Pétur Benediktssynir réðu ríkjum.
Thorsararnir
Koma fram snemma á 20. öld en í raun fjarar undan
veldi þeirra þegar Ólafur Thors deyr árið 1965 (Björgólfs-
feðgar eru úr þessari ætt).
H. Ben fjölskyldan
Mjög öflug ætt en þar var öflugastur Geir Hallgrímsson
forsætisráðherra og borgarstjóri. Hann var einnig for-
stjóri H. Ben.
Garðars Gíslasonar fjölskyldan
Stórkaupmaðurinn Garðar Gíslason átti stóran hlut í
Morgunblaðinu og varð mjög valdamikill.
Ólafs Johnson fjölskyldan
Þræðir fjölskyldu Ólafs Johnson lágu víða og voru oft
tengdir Garðari Gíslasyni en báðir áttu stóran hlut í
Morgunblaðinu.
Ingvars Vilhjálmssonar fjölskyldan
Þegar útgerðin varð svo mikilvægur hluti íslensks
samfélags urðu stórir útgerðarmenn eins og Ingvar
Vilhjálmsson valdamiklir.
F jölskyldurnar fjórtán voru frekar hugtak um ættar-veldin á Íslandi en tilvísun í
ákveðnar ættir,“ segir Guðmundur
Magnússon, höfundur nýrrar
bókar, Íslensku ættarveldin, sem
kom út á dögunum og fjallar, eins
og nafnið gefur til kynna, um ís-
lensk ættarveldi frá upphafi.
„Hugtakið fjölskyldurnar
fjórtán á ættir sínar að rekja til El
Salvador en þar voru í raun fjórtán
fjölskyldur sem áttu flestar eignir
í landinu. Þetta var svo yfirfært til
Íslands,“ segir Guðmundur sem
fann út við rannsóknir fyrir sína
bók að þetta hugtak sem varð
til á níunda áratugnum var ekki
nákvæmt því í raun má miklu
frekar tala um fimm eða sex fjöl-
skyldur eins og nefnt er hér í kassa
til hliðar.
Samfelld saga ættarvelda
„Það sem ég reyni að sýna í þess-
ari bók er að ættarveldin eiga sér
samfellda sögu hér á landi. Þetta
er engin nýlunda og var það heldur
ekki á tuttugustu öld,“ segir Guð-
mundur sem rekur sögu valda-
mikilla ætta frá upphafi en hann
segir einnig gaman að geta þess
að lengst af var ættfræði einungis
fyrir hina valdamiklu. Á tuttug-
Fjölskyldurnar fjórtán voru aldrei fjórtán
ustu öld breytist það og almenn-
ingur fer að rekja ættir sínar. Áður
voru ættartölur fyrir höfðingja svo
þeir gætu sýnt fram á að þeir væru
komnir af höfðingjum.
„Auðvitað verða svo miklar
breytingar á 19. og 20. öld. Þá fara
að koma fram einstaklingar sem
urðu miklir foringjar án þess að
vera af sérstökum ættum. Eins og
til dæmis Jón Sigurðsson, Jónas frá
Hriflu og Halldór Laxness, svo ein-
hverjir séu nefndir. Þessir menn
höfðu mikil áhrif á samfélagið og
hrærðu upp í því.“
Engar ættir í dag
Guðmundur segir að Thorsararnir
megi teljast voldugasta ættin á síð-
ustu öld. Fleiri ættir gera samt til-
kall til að fá að vera á svona listum
eins og Briem-ættin sem átti lengi
mjög marga fulltrúa á þingi og í
ríkisstjórnum.
„Staðan í dag, eins og ég met
hana, er að það urðu miklar breyt-
ingar á íslensku samfélagi með
auknu frjálsræði á tíunda áratugn-
um. Kolkrabbinn svokallaði, „fjöl-
skyldurnar fjórtán“, hverfur og
ungir og öflugir athafnamenn taka
við. Mikið til lítil fjölskylduveldi,
eins og Bakkavararbræður, Björg-
ólfsfeðgar eða Bónusfeðgar. Með
hruninu hrynja þessi nýju veldi og
það merkilega við stöðu dagsins
í dag er að það eru engin svona
ættarveldi. Minnsta kosti er ekki
hægt að greina þau og það hefur
bara ekki gerst áður á Íslandi því
hér hefur ætterni og fjölskylda
alltaf skipt miklu máli. Hvort þetta
á eftir að breytast aftur á næstu
árum verður að koma í ljós,“ segir
Guðmundur.
Mikael Torfason
mikaeltorfason@frettatiminn.is
Guðmundur Magnússon segir ættarveldi hafa fylgt Íslendingum frá upphafi. Nú er hinsvegar
komin sú skrítna staða, eftir hrun, að ekki er hægt að greina neinar valdamiklar ættir á Íslandi.
Það merki-
lega við
stöðu dags-
ins í dag er
að það eru
engin svona
ættarveldi.
Guðmundur Magnússon: „Fjölskyldurnar fjórtán voru frekar
hugtak um ættarveldin á Íslandi en tilvísun í ákveðnar ættir.“
FjölSkyldurnar SEx
10 viðtal Helgin 2.-4. nóvember 2012