Fréttatíminn


Fréttatíminn - 02.11.2012, Page 15

Fréttatíminn - 02.11.2012, Page 15
matargerðin byrjar á gottimatinn.is nýjung – matarbloggarar H V ÍT A H Ú SI Ð / S ÍA Á nýjum vef Gott í matinn nnur þú einfaldar, óknar, spari- og hversdagsuppskriftir fyrir öll tilefni. Sjáðu spennandi hráefnisnotkun og girnilegar hugmyndir frá matarbloggurum. Brettu svo upp ermar, hnýttu á þig svuntu og gerðu eitthvað girnilegt. Gottimatinnn.is er alltaf jafn aðgengileg í tölvunni, snjallsímanum eða spjaldtölvunni. Við kynnum til leiks ‚óra ferska matar- bloggara á vefnum okkar. Þau Thelma Þorbergsdóttir, Inga Elsa og Gísli Egill, Kári Sævarsson og Erna Sverrisdóttir deila með okkur uppskriftum og matartengdum fróðleik. Tilboðið ekki að höfða til allra Hann er sannfærður um að sveitar- félögin geti betur brugðist við því vandamáli sem brottfall nemenda úr framhaldsskólum er hér á landi. „Það tilboð, sem við erum með í framhaldsskólunum, er ekki að höfða til allra. Auk þess á tölu- verður fjöldi nemenda í verulegum erfiðleikum eftir grunnskólann, ýmist vegna námsleiða, nemendur upplifa sig sumir sem tapara í grunnskóla og dofna þar af leið- andi fyrir frekari skólagöngu. Við þurfum að skoða þetta betur í því skyni að minnka brottfall og mæta nemendum betur á milli grunn- skóla og framhaldsskóla með ein- hverju algjörlega sérstöku tilboði meðan þeir eru að ná áttum. Það gæti til að mynda gengið út á það að vekja þau á morgnana og koma þeim af stað í skipulegt starf,“ segir Gunnar. Margrét Pála Ólafsdóttir, stofn- andi Hjallastefnunnar, tekur undir þetta sjónarmið. „Ég vil tengja saman unglingastig grunnskólans og framhaldsskólann því akk- úrat við 16 ára aldurinn eru börn mjög viðkvæm. Þau eru í miðjum unglingafasa og eiga þá að kveðja skóla sem þau hafa haft öryggi sitt í og náð að varpa akkerum og stíga yfir í framhaldsskóla með full- orðnu fólki, 19 og 20 ára og jafnvel eldra,“ segir hún. „Þau eru ennþá börn og eftir að sjálfræðisaldur- inn var hækkaður í 18 ár er þessi umræða ekki síður tímabær,“ segir hún. „Þarna missa þau mjög oft fótanna og byrja í neyslu sem er það hættulegasta sem hendir börn í okkar heimi. Þarna byrjar brott- fallið. Stór hluti drengja nær ekki árangri og finnur sig ekki. Þetta er eins og happdrætti, skelfilegt happdrætti sem við setjum ung- lingana okkar í með skelfilegum afleiðingum fyrir marga þeirra,“ segir hún. Gunnar segir að skoða þurfi vel hvað sé í boði fyrir nemendur og hvers vegna þeir hætti í námi. „Ungt fólk hættir ekki bara út af neyslu eða aumingjagangi, það er líka vegna þess að námið höfðar ekki til þeirra. Þetta er nákvæmlega sama vandamálið í íþróttunum þar sem brottfallið verður í kringum 14 ára aldurinn því íþróttir bjóða einungis upp á keppnisíþróttir en ekki félagslega gleði í kringum það að hreyfa sig,“ bendir Gunnar á. Sveitarfélögin bregðast fljótar við Brottfall hefur verið þekkt vanda- mál í fjölda ára hér á landi. Hvers Gunnar Einarsson, bæjarstjóri Garðabæjar. Margrét Pála Ólafsdóttir, stofnandi Hjallastefnunnar. Framhald á næstu opnu Þetta er nákvæmlega sama vandamálið í íþróttunum þar sem brottfallið verður í kringum 14 ára aldurinn því íþróttir bjóða einungis upp á keppnis­ íþróttir en ekki félagslega gleði í kringum það að hreyfa sig. Gunnar Einarsson úttekt 15 Helgin 2.-4. nóvember 2012

x

Fréttatíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.