Fréttatíminn - 02.11.2012, Blaðsíða 15
matargerðin byrjar
á gottimatinn.is
nýjung –
matarbloggarar
H
V
ÍT
A
H
Ú
SI
Ð
/
S
ÍA
Á nýjum vef Gott í matinn nnur þú einfaldar,
óknar, spari- og hversdagsuppskriftir fyrir öll
tilefni. Sjáðu spennandi hráefnisnotkun og
girnilegar hugmyndir frá matarbloggurum.
Brettu svo upp ermar, hnýttu á þig svuntu og
gerðu eitthvað girnilegt.
Gottimatinnn.is er alltaf jafn aðgengileg í
tölvunni, snjallsímanum eða spjaldtölvunni.
Við kynnum til leiks óra ferska matar-
bloggara á vefnum okkar.
Þau Thelma Þorbergsdóttir, Inga Elsa og
Gísli Egill, Kári Sævarsson og Erna
Sverrisdóttir deila með okkur uppskriftum
og matartengdum fróðleik.
Tilboðið ekki að höfða til allra
Hann er sannfærður um að sveitar-
félögin geti betur brugðist við því
vandamáli sem brottfall nemenda
úr framhaldsskólum er hér á landi.
„Það tilboð, sem við erum með í
framhaldsskólunum, er ekki að
höfða til allra. Auk þess á tölu-
verður fjöldi nemenda í verulegum
erfiðleikum eftir grunnskólann,
ýmist vegna námsleiða, nemendur
upplifa sig sumir sem tapara í
grunnskóla og dofna þar af leið-
andi fyrir frekari skólagöngu. Við
þurfum að skoða þetta betur í því
skyni að minnka brottfall og mæta
nemendum betur á milli grunn-
skóla og framhaldsskóla með ein-
hverju algjörlega sérstöku tilboði
meðan þeir eru að ná áttum. Það
gæti til að mynda gengið út á það
að vekja þau á morgnana og koma
þeim af stað í skipulegt starf,“
segir Gunnar.
Margrét Pála Ólafsdóttir, stofn-
andi Hjallastefnunnar, tekur undir
þetta sjónarmið. „Ég vil tengja
saman unglingastig grunnskólans
og framhaldsskólann því akk-
úrat við 16 ára aldurinn eru börn
mjög viðkvæm. Þau eru í miðjum
unglingafasa og eiga þá að kveðja
skóla sem þau hafa haft öryggi sitt
í og náð að varpa akkerum og stíga
yfir í framhaldsskóla með full-
orðnu fólki, 19 og 20 ára og jafnvel
eldra,“ segir hún. „Þau eru ennþá
börn og eftir að sjálfræðisaldur-
inn var hækkaður í 18 ár er þessi
umræða ekki síður tímabær,“ segir
hún.
„Þarna missa þau mjög oft
fótanna og byrja í neyslu sem er
það hættulegasta sem hendir börn
í okkar heimi. Þarna byrjar brott-
fallið. Stór hluti drengja nær ekki
árangri og finnur sig ekki. Þetta
er eins og happdrætti, skelfilegt
happdrætti sem við setjum ung-
lingana okkar í með skelfilegum
afleiðingum fyrir marga þeirra,“
segir hún.
Gunnar segir að skoða þurfi
vel hvað sé í boði fyrir nemendur
og hvers vegna þeir hætti í námi.
„Ungt fólk hættir ekki bara út
af neyslu eða aumingjagangi,
það er líka vegna þess að námið
höfðar ekki til þeirra. Þetta er
nákvæmlega sama vandamálið
í íþróttunum þar sem brottfallið
verður í kringum 14 ára aldurinn
því íþróttir bjóða einungis upp á
keppnisíþróttir en ekki félagslega
gleði í kringum það að hreyfa sig,“
bendir Gunnar á.
Sveitarfélögin bregðast fljótar við
Brottfall hefur verið þekkt vanda-
mál í fjölda ára hér á landi. Hvers
Gunnar Einarsson, bæjarstjóri
Garðabæjar.
Margrét Pála Ólafsdóttir, stofnandi Hjallastefnunnar.
Framhald á næstu opnu
Þetta er nákvæmlega sama
vandamálið í íþróttunum þar
sem brottfallið verður í kringum
14 ára aldurinn því íþróttir
bjóða einungis upp á keppnis
íþróttir en ekki félagslega gleði
í kringum það að hreyfa sig.
Gunnar Einarsson
úttekt 15 Helgin 2.-4. nóvember 2012