Fréttatíminn - 02.11.2012, Qupperneq 16
www.forlagid.is – alvöru bókaverslun á netinu
Strandir er safn meitlaðra
ljóða eftir Gerði Kristnýju
sem hlaut Íslensku bók-
menntaverðlaunin fyrir
síðustu ljóðabók sína,
Blóðhófni.
„Sterk, meitluð, falleg
og listilega ort ljóð
sem undirstrika enn stöðu Gerðar Kristnýjar
sem eins okkar fremsta ljóðskálds.“
F r iðr iK a Be nón ýsdó t t ir / F r ét ta Bl a ðið
bbbb
Útgáfuteiti aldarinnar!
Fögnum Sögu dægurtónlistar
á Íslandi eftir Dr. Gunna.
Bókabúð Máls & menningar, Laugavegi.
Föstudaginn 2. nóv. kl. 18:00.
Veitingar! Stuðrantur á tilboði!
7 landsþekktir leyni gestir!
sogurutgafa.is
„Rannsóknir sýna að uppeldisaðferðir skipta veru-
legu máli þegar horft er til þeirra sem ljúka námi í
framhaldsskólum. Sýnt hefur verið fram á að börn
á heimilum þar sem notað er svokallað leiðandi
uppeldi ljúka fremur námi,“ segir Kristjana Stella
Blöndal, lektor í starfs- og námsráðgjöf við Há-
skóla Íslands. Hvergi í heiminum er meira brottfall
úr framhaldsskólum en á Íslandi þar sem fjögur af
hverjum tíu ungmennum hafa ekki lokið framhalds-
skólanámi við 24 ára aldur.
„Leiðandi uppeldi er uppeldisaðferð þar sem agi
er viðhafður og kröfur gerðar til barnsins í samræmi
við þroska þess en um leið er mikill tilfinningalegur
stuðningur og hlustað er á skoðanir barnsins. „Því
meira sem viðhaft er af leiðandi uppeldi því líklegra
er að ungmenni ljúki framhaldsskólanámi,“ segir
Kristjana Stella.
Aðrar uppeldisaðferðir eru skipandi, þar sem
mikill agi er viðhafður en lítil hlýja og stuðningur,
eftirlátt uppeldi, þar sem mikill stuðningur en lítill
agi, og svo loks afskiptaleysi, þar sem foreldrar fylgj-
ast ekki mikið með því hvað börnin taka sér fyrir
hendur og sýna ekki mikinn tilfinningalegan stuðn-
ing. „Það er sá hópur sem kemur alltaf hvað verst út í
öllum mælingum,“ bendir Kristjana Stella á.
Rannsóknir hafa ítrekað sýnt að börn og ung-
lingar foreldra sem beita ákveðnum aðferðum í
uppeldi, svokölluðum leiðandi uppeldisháttum,
sýna síður merki um þunglyndi, kvíða og áhættu-
hegðun, svo sem vímuefnaneyslu og afbrotahneigð.
Leiðandi uppeldi ýtir jafnframt undir þroska, virkni,
sjálfstæði, sjálfsaga og sjálfstraust hjá börnum og
unglingum.
Það sem einkennir leiðandi foreldra er
að þeir krefjast þroskaðrar hegðunar af
börnum sínum og unglingum, sýna mikla
umhyggju en setja um leið skýr mörk. Jafn-
framt eru samræður foreldra og barna og
unglinga mikilvægur þáttur þar sem for-
eldrar og börn ræða sjónarmið sín og hug-
myndir.
Foreldrar geta haft áhrif á skuldbind-
ingu
Skuldbinding gagnvart námi er jafnframt
lykilhugtak þegar kemur að því að meta
líkurnar á því að barn ljúki framhalds-
skólanámi. „Skuldbinding gagnvart námi
minnkar með aldrinum en eftir því sem
unglingar sýna meiri skuldbindingu við
14 ára aldurinn því líklegra er að þeir ljúki
framhaldsskólanámi,“ segir Kristjana
Stella. Hún segir að foreldrar geti haft
mikil áhrif á unglingsárunum með því að
styðja við börnin sín í námi.
„Fyrri námsárangur er stærsti einstaki
þátturinn hvað varðar brottfall. Nem-
endur með hæstu einkunnirnar eru líklegastir til að
ljúka framhaldsskólanámi og þeir líklegastir til að
hætta sem eru með lægstu einkunnirnar. Því fannst
mér forvitnilegt að skoða ástæðurnar fyrir því að
góðir námsmenn hætta námi og einnig
ástæðurnar fyrir því hvers vegna slakir
námsmenn ljúka námi eða hætta,“ segir
Kristjana Stella.
„Í ljós kom að óháð félagslegri og
efnahagslegri stöðu og hve vel þau
standa sig í námi þá ýtir leiðandi upp-
eldi undir skuldbindingu og dregur úr
líkunum á að þau hætti í námi,“ segir
Kristjana Stella. Börn í miðjuhópnum
hvað varðar einkunnir eru líklegri til
að ljúka framhaldsskólanámi fái þau
stuðning foreldra til þess í gegnum
leiðandi uppeldi. „Aðalatriðið virðist því
vera að foreldrar virki börn sín og að
þau fái hjálp við að velja markvissar,“
segir hún.
Kristjana Stella segir að ungmenni
hætti ekki námi fyrr en að loknu löngu
ferli. „Börn koma öll brosandi í sex ára
bekk en hjá sumum fjarar undan áhug-
anum með árunum. Þetta er langt ferli
en ef þetta er ferli þá er líka hægt að
snúa því við,“ segir hún.
vegna tekst ekki að bregðast við
því? „Leiðirnar frá stefnumótun
í framkvæmd eru svo langar á
meðan framhaldsskólarnir eru á
ábyrgð ríkisins. Áhyggjur ríkisins
eru aldrei jafnmiklar og áhyggjur
sveitarfélaganna, sem annast nær-
þjónustu við íbúa. Sveitarfélögin
geta brugðist mun fljótar við en
ríkið, við vitum það af reynslu okk-
ar við yfirfærslu grunnskólanna
frá ríki til sveitarfélaga árið 1996.
Þá höfðu grunnskólarnir verið
sveltir í mörg ár og það varð algjör
bylting í grunnskólastarfinu eftir
að sveitarfélögin tóku við þeim.
Það mun líka gerast í framhalds-
skólunum,“ segir Gunnar.
„Allt sem heitir persónulegur
stuðningur og eftirlit og eftirfylgni
og persónuleg tengsl skipta máli
í að minnka brottfall. Það þarf að
leggja vinnu í þann þátt og sveitar-
félögin eru betur í stakk búin til
þess en ríkið,“ segir hann.
Margréti Pálu dreymir um að
tengja saman unglingastig grunn-
skólans og framhaldsskólann
„Ég vil að unglingastig grunn-
skólans sé samtengt framhalds-
skólastiginu og þau skarist. Börn
byrja fimm ára í Hjallastefnunni,
ég myndi vilja útskrifa börn úr
framhaldsskóla 18 ára, þegar þau
eru orðin sjálfráða,“ segir Margrét
Pála.
Sigríður Dögg Auðunsdóttir
sigridur@frettatiminn.is
viðtal Kristjana stella Blöndal
Uppeldisaðferðir skipta höfuðmáli
Börn koma
öll brosandi
í sex ára
bekk en
hjá sumum
fjarar undan
áhuganum
með ár-
unum.
Kristjana Stella Blöndal, lektor í starfs- og námsráðgjöf við
Háskóla Íslands.
Gunnar Einarsson „Allt sem heitir persónulegur stuðningur og eftirlit og eftirfylgni og persónuleg tengsl skipta máli í að minnka
brottfall“.
með Retina skjá
Nýr og öugri
er lentur
iPad 4
16 úttekt Helgin 2.-4. nóvember 2012