Fréttatíminn - 02.11.2012, Qupperneq 20
Leyfi frá störfum
vegna ásakana
Guðmundur Örn Jóhannsson, framkvæmda-
stjóri Landsbjargar, óskaði eftir leyfi frá
störfum í kjölfar birtingar Youtube-myndbands
um meint peningaþvætti og
gjaldeyrisbrask. Ákvörðun
framkvæmdastjórans var
tekin með hagsmuni Lands-
bjargar að leiðarljósi svo
málið hefði hvorki áhrif á
starfsemi félagsins né mikil-
væga fjáröflun – enda hefur
komið fram að málið
tengist á engan hátt
Slysavarnafélaginu
Landsbjörg.
Vikan sem Var
Hannesi brugðið
Þessi orð eru ótrúleg, ekki síst þegar
þau koma frá embættismanni, sem
stjórnar áhrifamiklum fjölmiðli og hefur
lögbundnar skyldur til
að gæta í hvívetna
óhlutdrægni og
sanngirni.
Prófessor Hannes
Hólmsteinn
Gissurarson kom
félaga sínum
Davíð Oddssyni,
Moggaritstjóra, til
varnar eftir að Páll
Magnússon, útvarpsstjóri, sendi þeim
síðarnefnda ískaldar kveðjur.
Tveggja heima sýn
Þetta er bara ávísun á fangelsispláss
þegar menn haga sér svona. Mér finnst
þetta nú ekki spennandi heimur.
Jón sá er jafnan er nefndur stóri gaf
Óskari Jónassyni, höfundi Pressu, góð
ráð um hvernig kaupin gerast á glæpa-
eyrinni en finnst krimmarnir í Pressu
ekki alveg í samræmi við veruleika
íslenskra undirheima.
Sjúklegt ástand
Ég var eiginlega útbrunninn eftir ár í
starfi. Ég var nýútskrifaður læknir og
allt spennandi og svona, svo var maður
bara búinn að fá ógeð.
Læknir sem ekki vill koma fram undir
nafni sagði DV frá því að undirmönnun
og ömurlegar aðstæður væru að gera
lækna bilaða.
Að baki hverjum
manni er kona
Og auðvitað felst
engin „kven-
fyrirlitning“
í þeirri stað-
hæfingu minni
að Jón Ásgeir
eigi, ráði og reki
í raun 365.
Páll Magnússon, út-
varpsstjóri, kom við kaunin á fleirum en
Hannesi Hólmsteini með skrifum sínum
og þurfti að svara Ara Edwald, forstjóra
365, sem vændi Pál um stæka kvenfyrir-
litningu með því að kalla Jón Ásgeir
Jóhannesson eiganda 365 en fjölmiðla-
risinn er að meirihluta í eigu eiginkonu
hans, Ingibjargar Pálmadóttur.
Norn ver tján-
ingarfrelsi
Ég er oft ósam-
mála Hildi
Lilliendahl en ég
virði tjáningar-
frelsi hennar.
Eva Hauksdóttir,
norn og bloggari,
mótmælti harðlega
að femínistanum Hildi
Lilliendahl skyldi vísað af Facebook í
30 daga.
Spákona sækir fram
En einnig fólk sem kann að meta
ákveðni og innsæi mitt fyrir hrun og
það hvernig ég átti
auðvelt með að skil-
greina samfélagið.
Athafnakonan
Jónína Benedikts-
dóttir er komin á
kaf í stjórnmálin
og færir rök fyrir
því hvers vegna
hún er verðug
fyrsta sætis Fram-
sóknarflokksins í öðru Reykjavíkurkjör-
dæmanna.
Klámkynslóð á skólabekk
Upprennandi karlrembur í MS gera
hallærismyndband í tilefni 85 vikunnar
sem er þeim og skólanum þeirra til
hreinnar skammar.
Sigríður Guðmarsdóttir, sóknarprestur
í Grafarholti, brást harkalega við
klámfengnu myndbandi sem nemendur í
MS settu hróðugir á vefinn.
Lífsreynsla og samkennd – orrustur og stríð
Að bera óttann ofurliði
Ö ll höfum við orðið fyrir mótlæti í lífinu. Mismiklu, reyndar, en öll einhverju.
Mótlætið felst stundum í átökum við
aðstæður og óvænta atburði. Tilfinn-
ingastríði sem virðist ómögulegt að sjá
fyrir endann á meðan á því stendur.
Stríðið sem við heyjum breytir
okkur. Við verðum sterkari.
Við stækkum. Við verðum
betri manneskjur. Við öðlumst
reynslu sem við höfðum ekki
áður en reynslan gerir okkur
kleift að finna sannar til með
þeim sem ganga í gegnum
svipaða hluti. Við öðlumst
samkennd.
Kínverskt máltæki segir að
heilbrigður maður eigi margar
óskir en veikur maður aðeins
eina. Hið sama á við um fólk
sem stendur í miðju stríði eða
hefur nýlokið enn einni barátt-
unni og veit ef til vill aldrei hvenær hin
næsta verður háð. Það eina sem skiptir
þá máli er að lifa af í aðstæðunum. En
þegar aðstæður eru orðnar bærilegar
tekur óttinn völd. Óttinn við að erfið-
leikarnir komi upp að nýju.
Sigurinn felst í því að sigrast á ótt-
anum. Að leyfa honum ekki að herða
tökin og halda manni í heljargreip-
um. Því óttinn lamar.
Þau ykkar sem hafa misst ástvin
hafa öðlast skilning á sorginni. Þau
sem hafa reynt þunglyndi þekkja
lamandi svartnættið. Þau sem hafa
upplifað veikindi hafa horfst í augu
við endalok sín.
Og öllu fylgir óttinn.
Óttinn við sorgina, svartnættið og
endalokin.
Óttinn við að stríðið breytist í orr-
ustu og því sé ekki lokið. Að því ljúki
aldrei. Orrusturnar verði æ fleiri
og stríðið sjálft verði opið í annan
endann.
Til þess að bera óttann ofurliði þarf
að sigrast á honum, horfast í augu við
hann, hafa hann undir. Það þarf að
læra á hann. Hvenær hann birtist. Og
hvernig hafa má hann undir.
Börn aðstandenda fólks með geð-
sjúkdóma og börn alkóhólista búa
við stöðugan ótta. Foreldrarnir gera
það hugsanlega líka. Hulda Dóra
Styrmisdóttir skrifaði eftirmála í bók
föður síns, Ómunatíð, sem kom út í
fyrra og fjallar um geðveiki móður
Huldu, Sigrúnar Finnbogadóttur,
þar sem hún segir að hinn undir-
liggjandi, nánast stöðugi ótti sé enn
einn fylgifiskur þess að vera að-
standandi einstaklings með alvarlega
geðröskun. Sem barn hafi óttinn
snúist að viðbrögðum móður hennar
á veikindatímabilinu – „þau gátu
verið ofsafengin og óútreiknanleg“.
En eftir að hún varð fullorðin birtist
óttinn í hræðslu við að verða sjálf
veik og svo seinna að börnin hennar
yrðu það. „Ég hef tekist á við óttann
vegna barnanna minna, m.a. með því
að leggja mig fram um að búa þeim
öruggt umhverfi, umvafið ást og kær-
leika,“ segir Hulda Dóra. Hún tókst á
við óttann.
Óttinn minn felst í því að missa
börnin mín. Reynsla mín hefur kennt
mér að svo getur gerst. Ég er ekki
hrædd við þunglyndið mitt þótt ég
hafi hræðst hugsanir mínar í erfið-
ustu orrustunum. Ég veit að ég mun
alltaf hafa betur í stríðinu við þung-
lyndið, svo vel þekki ég það í dag.
Hinn óttinn er óviðráðanlegri. Sá
er hluti af lífinu.
Sigríður
Dögg
Auðunsdóttir
sigridur@
frettatiminn.is
sjónarhóll
Leikstýrir sjónvarpsþætti
fyrir HBO
Bandaríska sjónvarpsstöðin HBO hefur staðfest að
Baltasar Kormákur muni leikstýra prufuþætti fyrir
sjónvarpsþáttaröðina The Missionary sem Mark
Wahlberg framleiðir. Wahlberg
hefur framleitt vinsæla sjón-
varpsþætti að undanförnu,
meðal annars Entourage og
Boardwalk Empire. Baltasar
og Wahlberg hafa áður gert
kvikmyndirnar Contraband og
síðast 2 Guns sem verður
frumsýnd í
ágúst á
næsta ári.
Góð vikA
fyrir
Baltasar Kormák leikstjóra
Slæm vikA
fyrir
Guðmund Örn Jóhannsson,
framkvæmdastjóra Landsbjargar
Til þess að bera óttann ofurliði þarf að sigrast á honum, horfast í
augu við hann, hafa hann undir.
20 fréttir Helgin 2.-4. nóvember 2012 vikunnar