Fréttatíminn - 02.11.2012, Side 24
Bækur Arnaldar
Indriðasonar
á 990 kr.
Mýrin (Rafbók)
Grafarþögn (Rafbók)
Furðustrandir (Hljóðbók)
Ingvar E. Sigurðsson les
Einvígið (Raf- og hljóðbók)
Ingvar E. Sigurðsson les
...að auki erlendar útgáfur
L ögregluaðgerðin sem kölluð var Pólstjarnan var umfangsmikið samstarfsverkefni fíkniefnadeild-ar lögreglunnar í Reykjavík, Ríkislögreglustjóra,
Landhelgisgæslunnar og lögregluliða í Danmörku,
Noregi, Færeyjum, Þýskalandi og Hollandi í gegnum
Europol.
Yfirvöld höfðu góðar gætur á hópi manna mánuðum
saman með það fyrir augum að koma í veg fyrir djarfa
tilraun til þess að smygla miklu magni örvandi efna
til Íslands með seglskútu. Þegar lögreglan lét loks til
skarar skríða var fjöldi manns handtekinn á Íslandi, í
Noregi og Danmörku en þrír menn voru gripnir glóð-
volgir á hafnarbakkanum á Fáskrúðsfirði þar sem hald
var lagt á tugi kílóa af amfetamíni og e-töflum.
Von um mikinn og skjótfenginn gróða rak nokkra
unga íslenska menn út í það sem segja má að hafi verið
feigðarflan en tveir þeirra stofnuðu sér beinlínis í lífs-
hættu þegar þeir sigldu á lítilli skútunni frá Noregi til
Danmerkur þar sem þeir sóttu ólöglegan varninginn.
Síðan gerðu þeir stutta viðdvöl í Skotlandi en síðan lá
leiðin til Færeyja. Þar stöldruðu þeir við í rúma viku,
meðal annars til þess að gera við skútuna sem var í
slæmu ástandi. Frá Færeyjum sigldu þeir við illan leik
til Íslands þar sem ævintýri þeirra lauk á Fáskrúðsfirði
þar sem fjölmennt lögreglulið beið þeirra og setti í járn.
Einbeittur brotavilji
Mennirnir tveir sem tóku að sér að sigla með dópið
voru báðir ár 26. aldursári og höfðu báðir reynslu af
sjómennsku. Þeir fengu hvor um sig sjö ára fangelsis-
dóma fyrir aðild sína að málinu. Þeir sögðu frá hremm-
ingum sínum á hafi úti í viðtali við Karen Kjartansdótt-
ur á Vísi.is þar sem þeir virtust ekki sjá eftir neinu enda
hafi þeir verið meðvitaðir um áhættuna sem þeir tóku
með smygltilrauninni.
„Við vissum vel hvað við vorum að fara út í. Það sést
vel hversu einbeittur brotavilji lá að baki í ljósi þess að
lögreglan var búin að fylgjast með okkur í tíu mánuði
áður en við vorum teknir. Auðvitað vissum við að svona
gæti farið enda höfum við aldrei verið að svekkja okkur
á því að hafa verið teknir.
Ég er brotamaður og kaus mér það sjálfur. Það þýðir
ekki að kenna öðrum um eða væla yfir ranglæti. Það
eina sem liggur fyrir hjá mér núna er að búa vel að
konu minni og barni og standa mig í skólanum hér,“
sagði Guðbjarni Traustason sem hafði eignast son með
unnustu sinni skömmu áður en hann var handtekinn.
Háskaleg sigling
„Skútustrákarnir“, eins og fangaverðirnir á Litla-
Hrauni kölluðu þá, sögðust hafa fengið veður af því að
eitthvað um áform þeirra hafi lekið til lögreglu. Þeir
breyttu því áætlunum sínum og héldu síðan ótrauðir
áfram í þeirri trú að þeim hefði tekist að villa um fyrir
lögreglunni. Guðbjarni og félagi hans, Alvar Óskars-
son, lögðu því á Atlantshafið í minni skútu en upp-
haflega stóð til að nota. Skútu sem ætluð var til styttri
ferða við strandlengjuna. Þeir sögðu við Karen að þeir
hefðu verið í lífshættu á hafi út en þó ósmeykir.
„Nei, maður hafði eiginlega engan tíma til að hugsa
um annað en að halda lífi,“ sagði Alvar.
Klúður í Færeyjum
Höfuðpaurinn og hugmyndafræðingurinn að baki
smygltilrauninni var Einar Jökull Einarsson, þá 27 ára
gamall. Hann axlaði fúslega ábyrgð á smyglinu og hafði
þetta að segja í áðurnefndu viðtali á Vísi.is. „Eins og
fram hefur komið fyrir dómi og fjölmiðlum skipulagði
ég þessa tilraun til smyglsins. Þessi maður sem situr
inni í Færeyjum átti engan hluta að þessu máli það
voru alger mistök að hann blandaðist inn í þetta vegna
vináttu við einn okkar. Hann vissi ekkert um málið,“
sagði Einar og vísaði til æskufélaga Guðbjarna sem
aðstoðaði þá Alvar í Færeyjum og endaði með að dúsa í
löngu gæsluvarðhaldi í Færeyjum.
„Enginn okkar hefur viljað vera í sviðsljósinu eða
fjölmiðlum en það er lítið við því að gera úr þessu. Það
eina sem ég vil er að fólk geri sér grein fyrir því er að
það er saklaus maður sem gæti þurft að gjalda mest
fyrir það sem við gerðum,“ sagði Einar á Vísi.is
Sigur lögreglunnar
Það var ekki aðeins hasar í höfninni á Fáskrúðsfirði
daginn sem Guðbjarni, Alvar og vitorðsmaður þeirra í
landi, Marínó Einar Árnason, voru gripnir glóðvolgir.
Húsleitir voru gerðar á höfuðborgarsvæðinu, í Sand-
gerði, í Kaupmannahöfn og í Noregi. Tveir voru hand-
teknir í Kaupmannahöfn og einn í Noregi. Málið teygði
einnig anga sína til Hollands og Þýskalands þar sem
lögregluaðgerðir fóru fram án þess að nokkur væri
handtekinn.
Haraldur Johannessen ríkislögreglustjóri var á sín-
um tíma mjög ánægður með hversu vel Pólstjörnuað-
gerðin heppnaðist og Morgunblaðið hafði eftir honum
að aðgerðin hefði verið mjög vel skipulögð og að hann
teldi víst að allir málsaðilar hefðu gengið grunlausir í
flasið á lögreglunni.
„Það hefur ríkt mikill trúnaður hjá löggæslustofnun-
um í mjög langan tíma, sem sýnir fram á að íslenskar
löggæslustofnanir eru fullfærar um að sinna svona
stórum verkefnum, sem teygja anga sína inn í alþjóða-
samfélagið, án þess að vitneskja um það berist út.“
Þórarinn Þórarinsson
toti@frettatiminn.is
Full skúta af dópi
Lögreglan var við öllu búin þegar hvít skúta kom að landi í Fáskrúðsfirði að morgni 20. sept-
ember 2007. Þrír voru handteknir á Fáskrúðsfirði en um borð í skútunni fundust 50-60 kíló af
amfetamíni. Aldrei áður hefur lögregla haldlagt jafn mikið magn örvandi fíkniefna í einni aðgerð
á Íslandi. Skútan fékk viðurnefnið „spíttbáturinn“ með vísan í farminn en umfangsmikil lög-
regluaðgerðin var kölluð Pólstjarna. Smyglmálið er þriðja málið sem tekið er fyrir í þáttunum
Sönn íslensk sakamál á Skjá einum á mánudagskvöld.
Dópskútan, eða „spíttbáturinn“, var ekki heppileg til langra siglinga úti á reginhafi en smyglararnir lögðu ótrauðir á Atlantshafið.
Guðbjarni var vanur sjómaður og kom skútunni í höfn við
erfiðan leik, drekkhlaðinni af dópi. (Sviðsett mynd úr Sönn
íslensk sakamál).
24 sakamál Helgin 2.-4. nóvember 2012