Fréttatíminn - 02.11.2012, Side 36
Markaðsverðlaun ÍMARK verða afhent
á Hilton Reykjavík Nordica
fimmtudaginn 8. nóvember kl. 12
Forseti Íslands afhendir verðlaun fyrir
Markaðsfyrirtæki ársins og Markaðsmann ársins.
Allir velkomnir
2012
Nánari upplýsingar á imark.is
Í huga Margrétar er ímynd íslenskr-
ar kvennaknattspyrnu mikilvæg. Hún
vill ekkert ræða sérstaklega þá stað-
reynd að hún sé andlit kvennaboltans
og vinsælda hans hér á landi. Hún var
engu að síður fyrsta knattspyrnukonan
sem var valin íþróttamaður ársins
og finnur sjálf að því fylgir ákveðin
ábyrgð.
„Ég tek því hlutverki alvarlega og
reyni að vera stúlkum góð fyrirmynd.
Þannig drekk ég hvorki né reyki og
skorast ekki undan að kynna
íslenska kvennaknatt-
spyrnu,“ segir Mar-
grét Lára.
Frábærar á eigin
forsendum
Kvennaknatt-
spyrnan í heiminum
hefur sótt mikið í sig
veðrið undanfarin ár
en ákveðið bakslag
kom þegar bandaríska
deildin hætti. Að
sögn Margrétar Láru
hækkaði deildin í Ameríku launin og
jók samkeppni um knattspyrnukonur
mikið. Sjálf segist hún reyndar hafa
það fínt fjárhagslega en markaður fyrir
kvennaknattspyrnu er enn lítill í heim-
inum.
„Það er því afrek út af fyrir sig að við
frá litla Íslandi séum að standa okkur
svona vel,“ segir Margrét Lára sem
þakkar fyrir áhugann sem stelpunum
er sýndur á Íslandi. „Það komu tæp
sjö þúsund manns á síðasta leik og
ef maður setur það í samhengi þá er
það stórkostlegt. Þróunin er upp á við
og þetta á bara eftir að verða betra,“
segir Margrét Lára og bendir á að í
Þýskalandi, þar sem hún spilaði síðast,
mættu tíu þúsund á lokaleikinn þeirra
og meðaláhorfendafjöldi var milli 5 og
7 þúsund manns.
„Við eigum ekki að vanþakklátar
heldur hefur mér þótt betra að rækta
með mér þakklæti,“ segir Margrét
Lára og bendir á að lokum að þær stel-
urnar eigi ekki að miða sig við karlana:
„Við erum frábærar á okkar eigin for-
sendum.“
Nafn: Sif Atladóttir
Staða á vellinum: Miðvörður.
Aldur: 27 ára.
Hjúskaparstaða: Gift manni sem heitir
Björn Sigurbjörnsson.
Hvaðan ertu? Hafnarfirði.
Starf: Atvinnumaður í fótbolta.
Helsta fyrirmynd: Pabbi , mamma og stóri
bróðir.
Skemmtilegasta landsliðskonan? Finnst
þær allar þræl skemmtilegar :)
Besta landsliðskonan? Finnst Margrét
virkilega góð, svo verð ég að nefna Dóru
Maríu varnarbuff.
Draumaleikurinn? Úrslitaleikurinn á EM.
Fyrsta liðið sem þú spilaðir með? Haukum
eitt sumar, en uppeldisfélag FH.
Besti leikmaður allra tíma? Puyol...
Superman varnarmannana...
Markmið? Núna stefni ég á að vera
Svíþjóðarmeistari og að komast alla leið á
EM á næsta ári.
Sif Atladóttir
Nafn: Sandra María Jessen.
Staða á vellinum: Vinstri kantmaður.
Aldur: 17 ára.
Hjúskaparstaða: Einhleyp.
Hvaðan ertu? Akureyri.
Starf: Ég vinn hjá Capacent Gallup og er
stundum að þjálfa.
Helsta fyrirmynd: Kata Jóns er frábært dæmi,
hefur verið í boltanum síðan ég fæddist og er
ennþá einn besti leikmaður Íslands.
Skemmtilegasta landsliðskonan? Þarna koma
Sif Atla og Katrín Ómars fyrst upp í hugann.
Besta landsliðskonan? Sara Björk Gunnars-
dóttir.
Draumaleikurinn? Úrslitaleikur á EM í Svíþjóð
2013.
Fyrsta liðið sem þú spilaðir með? Ég er uppal-
inn Þórsari.
Besti leikmaður allra tíma? Það er spurning
hvort Messi sé ekki orðinn sá besti í sögunni,
en annars var Ronaldinho einn af þeim bestu.
Markmið? Að komast í hópinn sem fer á EM í
Svíþjóð 2013.
Sandra María Jessen
Nafn: Katrín Jónsdóttir
Staða á vellinum: Miðvörður/Miðjumaður
Aldur: 35.
Hjúskaparstaða: Gift Þorvaldi Makan
Sigbjörnssyni. Stjúpsonur Egill Darri
Þorvaldsson.
Hvaðan ertu? Kópavogi.
Starf: Læknir (í sérnámi í heimilislækningum í
Stokkhólmi) og fótboltakona.
Helsta fyrirmynd: Vigdís Finnbogadóttir.
Skemmtilegasta landsliðskonan? Erfitt að gera
upp á milli þessara snillinga.
Besta landsliðskonan? Sama sagan hér, erfitt
að gera upp á milli.
Draumaleikurinn? Ísland – Þýskaland í úrslita-
leik EM 2013 þar sem við förum með sigur af
hólmi ;-)
Fyrsta liðið sem þú spilaðir með? Koll í Osló
í Noregi.
Besti leikmaður allra tíma? Erfitt að meta en
núna myndi ég segja að Veronica Bouquet
leikmaður Tyresö og spænska landsliðsins
sé best.
Markmið? Langar að halda þeim út af fyrir mig.
Katrín Jónsdóttir
Nafn: Rakel Hönnudóttir
Staða á vellinum: Það er góð spurning, hef
verið að spila bakvörð, miðju, kant og frammi.
Aldur: 23 ára.
Hjúskaparstaða: Engin börn, enginn maki.
Hvaðan ertu? Ég kem frá Akureyri.
Starf: Sem stendur er ég að vinna við afgreiðslu-
störf.
Helsta fyrirmynd: Guðjón Valur Sigurðsson.
Skemmtilegasta landsliðskonan? Sara Björk
herbergisfélagi minn.
Besta landsliðskonan? Þetta er líka góð
spurning þar sem allar í landsliðinu eru mjög
góðar, eiginlega ekki hægt að svara.
Draumaleikurinn? Úrslitaleikur á EM.
Fyrsta liðið sem þú spilaðir með? Þór Akureyri
Besti leikmaður allra tíma? Ég veit það ekki.
Markmið? Ég held þeim fyrir mig bara, en þau
eru háleit.
Rakel Hönnudóttir
Nafn: Dagný Brynjarsdóttir
Staða á vellinum: Miðjumaður.
Aldur: 21 árs.
Hjúskaparstaða: Ég á kærasta sem heitir Ómar
Páll Sigurbjartsson.
Hvaðan ertu? Hellu.
Starf: Nemandi í Florida State University.
Helsta fyrirmynd: Ronaldo (báðir) og mamma.
Skemmtilegasta landsliðskonan? Hólmfríður,
sveitungi minn.
Besta landsliðskonan? Dóra María og Sif Atla.
Draumaleikurinn? Að spila úrslitaleikinn á
EM 2013.
Fyrsta liðið sem þú spilaðir með? KFR.
Besti leikmaður allra tíma? Christiano
Ronaldo.
Markmið? Verða atvinnumaður og spila meðal
þeirra bestu. Að komast á HM með landsliðinu
er líka stór draumur.
Dagný Brynjarsdóttir
Nafn: Sara Björk Gunnarsdóttir.
Staða á vellinum: Miðjumaður.
Aldur: 22 ára.
Hjúskaparstaða: Trúlofuð Hákoni Atla Hall-
freðssyni.
Hvaðan ertu? Hafnarfirði.
Starf: Að spila fótbolta.
Helsta fyrirmynd: Foreldar mínir.
Skemmtilegasta landsliðskonan? Kata Jóns er
skemmtileg týpa.
Besta landsliðskonan? Þóra Björg Helgadóttir
Draumaleikurinn? Ísland-N-Írland...2008..
Ísland-Úkraína 2012.
Fyrsta liðið sem þú spilaðir með? Haukar
Besti leikmaður allra tíma? Messi
Markmið? Komast á HM með landsliðinu,
vinna sænsku deildina, komast í úrslit í
meistaradeildinni og verða meðal bestu
miðjumanna.
Sara Björk Gunnarsdóttir
Ég sé ekki eftir
einni sekúndu.
ST
ELP
URNAR OKKAR
36 viðtal Helgin 2.-4. nóvember 2012