Fréttatíminn


Fréttatíminn - 02.11.2012, Síða 62

Fréttatíminn - 02.11.2012, Síða 62
58 prjónað Helgin 2.-4. nóvember 2012  Úrval prjónabóka á boðstólum nú á haustdögum Sjáðu allt nýjasta jólaföndrið á Facebook síðunni okkar Laugavegi 59, 2. hæð | 101 Reykjavík | Sími 551 8258 storkurinn@storkurinn.is | www.storkurinn.is Storkurinn - sælkeraverslun hannyrðakonunnar Námskeið í prjóni, hekli og bútasaumi V ið sem höfum áhuga á prjóni og öðrum hannyrð-um höfum oft kvartað und- an því að ekki væri nóg úrval af bókum á íslensku þessu tengdar. Þegar prjónabylgjan skall á, um og eftir hrun, varð prjón meira áberandi en nokkru sinni fyrr. Þá hafa prjónarar senni- lega mælst sem sérstakur markhópur því nú er sagan önnur. Aldrei þessu vant þá hafa komið út nokkrar nýjar prjónabækur núna á haustdögum og frést hefur af fleiri. Nokkrar hefur rekið á mínar fjörur og þar á meðal HÚFUPRJÓN eft- ir Guðrúnu S. Magnús- dóttur. Bókin inniheldur 57 uppskriftir af húfum á kríli, krakka, konur og karla, eins og segir á bókarkápunni. Frá Kristínu Harðar- dóttur kom nýverið út VETT- LINGABÓKIN, en hún hefur áður gefið út bækur um vettlinga- og sokkaprjón. Þetta er gormabók og í henni er í bland uppskriftir af göml- um og nýjum vettlingum úr fínu og grófara bandi. Vettlingaprjón er sérstakt áhugamál margra sem prjóna og við búum að ríkri vett- lingahefð hér á landi. LITFRÍÐUR heklað, prjónað og endurskapað kemur úr smiðju Sig- ríðar Ástu Árnadóttur, öðru nafni Kitschfríðar. Höfundurinn er þekkt Legghlífar GrunnupplýsinGar Ein stærð passar öllum Efni og áhöld: Plötulopi: 1 plata Sokkaprjónar nr 3 skammstafanir l : lykkja, lykkjur sl : slétt br : brugðið prjónfesta: 10 x 10 cm = 25 lykkjur og 36 umferðir í sléttprjóni á prjóna nr 3. Sannreynið prjónfestu og skiptið um prjónastærð ef þörf er á. aÐFErÐ Legghlífarnar eru að mestu prjónaðar í hring, með sléttprjóni og krónuprjóni. Byrjað er efst og prjónað krónuprjón eftir mynsturteikningu. Inga Hrönn var eitt sinn beðin um að hanna legghlífar eða sokka fyrir konur sem mikið eru í stígvélum. Hún gerði nokkrar tilraunir, fannst þær aldrei nógu þunnar þar til hún prófaði að nota einfaldan plötulopa. Hér er útkoman og takið eftir hvað þær eru fallegar þegar þær gægjast upp í stígvélunum eins og blóm! Notið plötulopann einfaldan og fitjið upp 116 L á sokkaprjóna nr 3. Tengið í hring og prjónið 1 umferð slétt. Prjónið nú krónuprjón eftir teikningu. Hver mynstureining nær yfir 29 L og er því mynstrið endurtekið 4 sinnum yfir umferðina. Í 4. hverri umferð er prjónað útprjón og í flestum þeim umferðum fækkar lykkjum. Til hliðar við mynstur er tekið fram hver lykkjufjöldi í mynstri er þegar umferðin hefur verið prjónuð. Best er að setja prjónamerki á milli mynstureininga til að fylgjast með því að lykkjufjöldi sé réttur hverju sinni. Þegar lokið hefur verið við að prjóna eftir mynsturteikningunni eiga að vera 60 L á prjóninum. Prjónið nú sléttprjón 9 umferðir. Gott er að setja prjónamerki við byrjun umferðar. Næsta umferð: Takið úr 2 L, eina í byrjun og hina í enda umferðar. Endurtakið úrtökur í 10. hverri umferð, alls 10 sinnum (= 40 L). Prjónið þá 5 umferðir slétt. Fellið af 10 L fyrir miðju að aftan, fyrir hæl, þannig: Prjónið slétt þar til 5 L eru eftir af umferð, fellið þá af 10 L (= 30 L). Prjónið nú fram og til baka, 2 umferðir sléttprjón (slétt frá réttu, brugðið frá röngu). Næsta umferð (rétta): 1 sl, 2 sl saman, prjónið sl þar til 3 L eru eftir á prjóni, 2 sl saman, 1 sl. Næsta umferð (ranga): Prjónið brugðið. Endurtakið þessar tvær umferðir 3 sinnum í viðbót (= 22 L). Fellið nú af 10 L fyrir miðju (rist). Þá eru 6 L eftir hvorum megin. Hælband Prjónið sléttprjón og takið úr 1 L ristar- megin í 1. umferð (= 5 L). Prjónið 20-30 umferðir með slétt- prjóni, geymið lykkjur. Prjónið hælbandið á móti eins, eða þar til æskilegri lengd hefur verið náð, þannig að endarnir mætist undir ilinni. Lykkið endana saman. Prjónið aðra legghlíf eins. Handþvoið legghlífarnar úr mildu sápuvatni og leggið þær sléttar til þerris. Prjónabækur 164 Dömur – fylgihlutir stærð Ein stærð passar öllum efni og áhöld Plötulopi: 1 plata Sokkaprjónar nr 3 skammstafanir L : lykkja, lykkjur sl : slétt br : brugðið prjónfesta 10 x 10 cm = 25 lykkjur og 36 um- ferðir í sléttprjóni á prjóna nr 3. Sannreynið prjónfestu og skiptið um prjónastærð ef þörf er á. A Ð F E R Ð Legghlífarnar eru að mestu prjónaðar í hring, með sléttprjóni og krónuprjóni. Byrjað er efst og prjónað krónuprjón eftir mynstur- teikningu. Inga Hrönn var eitt sinn beðin um að hanna legghlífar eða sokka fyrir konur sem mikið eru í stígvélum. Hún gerði nokkrar tilraunir, fannst þær aldrei nógu þunnar þar til hún prófaði að nota einfaldan plötulopa. Hér er útkoman og takið eftir hvað þær eru fallegar þegar þær gægjast upp í stígvélunum eins og blóm! grunnupplýsingar Hönnun: Inga Hrönn Guðmundsdóttir Legg- hlífar með krónu- prjóni Slétt lykkja. Slegið upp á. Brugðin lykkja. 2 lykkjur prjónaðar saman. Tvær lykkjur prjónaðar saman Slegið upp á Brugðin lykkja Slétt lykkja 21 22 23 24 25 26 27 28 29 29 27 27 25 25 23 21 19 17 15 Umf. L eftir í m 30 31 32 33 34 35 36 37 38 39 40 41 42 K R Ó N U P R J Ó N Tvær lykkjur prjónaðar saman Slegið upp á Brugðin lykkja Slétt lykkja 21 22 23 24 25 26 27 28 29 29 27 27 25 25 23 21 19 17 15 Umf. L eftir í munstri 30 31 32 33 34 35 36 37 38 39 40 41 42 Endurtekið Guðrún Hannele Henttinen hannele@ storkurinn.is Legghlífauppskrift með krónuprjóni. fyrir litríkar flíkur sem eru endurunnar. Í bókinni eru uppskriftir sem gleðja svo sannarlega augað og hvetja til nýtingar á öllum afgöng- unum sem bíða í skúffum og skápum hjá flestum sem prjóna. Öðruvísi bók sem ýtir undir skapandi prjón og hekl. Þá er það STÓRA PRJÓNA- BÓKIN sem ber nafn með rentu því þetta er innbundin bók, í stóru broti með 229 blaðsíður. Í bókinni eru 100 uppskriftir hannaðar af ýmsum íslensku hönnuðum og prjónurum. Allar uppskriftirnar hafa áður birst í Saumaklúbbnum, sem var áskrifendaklúbbur og margir kannast eflaust við. Þarna er mikill fjölbreytileiki á ferðinni, fatnaður og fylgihlutir fyrir allan aldur og líka eitthvað fyrir heim- ilið. Bendi sérstaklega á að það eru margar góðar og einfaldar peysuuppskriftir fyrir dömur í bókinni. Lopinn er áberandi, enda mest notaða hráefnið á Íslandi í prjóni, en það eru líka uppskriftir úr annars konar bandi. Mæli með þessari bók fyrir þá sem eru að feta sín fyrstu skref í prjóni og þá sem komnir eitthvað áleiðis því uppskriftaúrvalið er svo mikið og vandað er til verka í ritstjórn uppskriftanna. Til að gefa ykkur smá sýnishorn þá fylgir hér ein uppskrift að legghlífum með hinu sívinsæla krónuprjóni eftir Ingu Hrönn Guðmundsdóttur. Njótið!
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Fréttatíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.