Fréttatíminn - 02.11.2012, Page 75
Hann segist strax hafa horft til
Hallgrímskirkju sem bakgrunns
fyrir verkið vegna þess hversu
táknræn og kraftmikil byggingin
er. „Það sem heillaði mig einna
mest við þessa samkeppni var að
það voru ekki sett nein skilyrði og
maður fékk alveg frjálsar hendur
og mig langaði að gera ljósa-
innsetningu vegna þess að mig
langaði að halda áfram að kanna
möguleika þessarar tækni.“
Marcos flutti til Íslands fyrir
ellefu árum eftir að hann kynntist
íslenskri konu í Madrid. -þþ
Miðaverð: kr. 3000 fullorðnir · kr. 2000 börn
forsala Miða: harpa.is · Miðasala hörpu · Midi.is
Stórsveitin heldur sína fyrstu jólatónleika í Hörpu og af því tilefni er
dagskráin sérlega glæsileg. Allir gestasöngvarar fyrri jólatónleika
sveitarinnar koma í heimsókn og halda uppi sjóðandi jólasveiflu.
Skemmtilegir og öðruvísi jólatónleikar fyrir allar kynslóðir.
Bogomil Font · DiDDú · Helgi Björns
gáttaþeFur · Kristjana steFáns
stjórnanDi: samúel j. samúelsson
2. DesemBer Kl. 16:00
silfurberg hörpu
stórsveit
reykjavíkur
áSAmt góðum geStum
Framhaldið
út á rafbók
Elí Freysson rithöfundur
gaf út sína fyrstu skáldsögu,
Meistari hinna blindu,
í fyrra en nú er komið
framhald, Ógnarmáni, og
kemur sú bók beint út sem
rafbók og er seld á Emma.
is. Þar er reyndar einnig
hægt að panta kilju af nýju
bókinni. Sería Elís er myrk
og gerist eftir dómsdags-
hörmungar sem áttu sér
stað fyrir löngu. Að sögn
er Elí að ljúka við fjórðu
bókina og leggja drög að
þeirri fimmtu. „Ég á efni
í að minnsta tíu bækur í
viðbót,“ segir Elí sem er
einnig að þróa hugmynd
að nýrri bókaseríu.
Vetrarhátíð Samkeppni um opnunarhátíð
Baðaði Hallgrímskirkju í ljósum
h ugmyndin er sprottin frá ömmu sem að smíðar dag-skrár utan um hugðarefni
sín, eins og til dæmis kvenpers-
ónur og heldur sagnakvöld þar
sem hún býður vinum og fjöl-
skyldu inn í stofu til sín. Þar flytur
hver gestur verk, ljóð sögu eða
söng,“ segir listakonan Ragnheið-
ur Harpa Leifsdóttir. Hún ferðast
nú ásamt fríðu föruneyti og sýnir
sviðslistaverk sem að hennar sögn
er ennþá í mótun. Verkið
fjallar um hyldýpi, annars-
vegar í sálinni og hins-
vegar í sjónum.
Týnd í hyldýpinu
„Ég er svo heilluð af þess-
ari tegund sagnamiðlunar
sem að amma notar að
ég ákvað fyrst að tileinka
mér hana í útskriftar-
verkefnið mitt. En þar var
þráður verksins eldingar.“
Ragnheiður útskrifaðist
af fræða- og framkvæmda-
sviði Listaháskólans vorið
2011 en sýndi útskriftar-
verk sitt aftur á sviðs-
listahátíðinni LÓKAL og
þá tóku hjólin að snúast. „Þar voru
tveir erlendir kúratorar og ég held
þeir hafi hreinlega hugsað með
sér, „það er eitthvað í þessa stúlku
spunnið.“ Þau buðu mér að koma
með nýtt verk á tilraunasýningu í
Danmörku,“ segir Ragnheiður og
útskýrir að í slíkum sýningum fái
leikhópurinn svörun og viðbrögð
frá áhorfendum sem að hjálpa
til við þróun verksins. Hún segir
verkið nú nær fullmótað, en algjör-
lega tilbúið verði það aldrei. „Það
er ákveðin áhætta sem við tökum
með því að vera með nokkra
óleysta enda í verkinu. En það
gerum við til þess að skapa „mys-
tík“ sem einkennir þema verksins.
Þannig veist þú aldrei hverju þú
gætir átt von á.“
Verkið er sem áður sagði um
hyldýpi og samkvæmt Ragnheiði
getur það átt hvort tveggja við
náttúrufyrirbæri og stað í sálinni.
„Hyldýpi í náttúrunni getur verið
þar sem að sjórinn er dýpstur
eða eins langt og himingeimur-
inn nær. Þetta eru manninum
ókunnar slóðir, eitthvað sem
veldur ótta en er á sama tíma mjög
spennandi. Mér finnst eitthvað
svo magnað við það.“
Hún segir að hyldýpi í fólki
búi í sjálfi þess. „Það getur verið
staður sköpunarkraftsins
jafnt sem eyðileggingar-
innar og þar er auðvelt
að týnast. Uppspretta
hugmyndanna kemur úr
hyldýpi sálarinnar og það
er einmitt kannski svolítið
kaldhæðnislegt hvað ég
er búin að vera upptekin
af þessu,“ segir hún hlæj-
andi og bætir við, „týnd í
hyldýpinu alveg.“
Reyna við lúðrasveit í
Helsinki
Auk Ragnheiðar koma
að verkinu þeir Leifur
Arnarson, Albert Finn-
bogason og Þórður Her-
mannsson en hópurinn ku svo
hafa tekið vísvitandi áhættu við
flutninginn í Árósum með ókunn-
ugum óbóleikara. „Það er þessi
óvissa sem við viljum einblína á,
ótroðnar slóðir. Þannig munum
við alltaf hafa einhvern óvissuþátt
í verkinu, sama hvar við sýnum
það. Fyrir Helsinki ætlum við að
reyna að redda lúðrasveit. Það
mun svo bara koma á óvart hvort
að það takist.“
Hópurinn sem styrktur er af
Evrópu unga fólksins verður á al-
þjóðlegri sviðslistahátíð í Helsinki
nú í nóvember og á Íslandi í byrjun
desember. Ragnheiður bendir
áhugasömum um að fylgjast með
á vefsíðunni sublimi.is
María Lilja Þrastardóttir
marialilja@frettatiminn.is
„Hyldýpi
geta hvoru
tveggja
verið í
sálinni
og nátt-
úrunni.“
Ljósinnsetning Marcosar Zotes á
Vetrarhátíð í Reykjavík í fyrra.
Helgin 2.-4. nóvember 2012