Fréttatíminn - 02.11.2012, Blaðsíða 80
Hipsteragleraugun virka við nærsýni
Auður Viðarsdóttir er 25 ára mannfræðinemi og söngkona og hljómborðsleikari hljómsveitarinnar Nóru.
Hljómsveitin var að gefa út sína aðra plötu, Himinbrim, og treður upp á Iceland Airwaves tónlistarhátíðinni.
Á morgun, laugardag, spilar sveitin í Eymundsson klukkan 17.
Staðalbúnaður
Ég kaupi rosa lítið af fötum en mér
áskotnast samt nokkuð af fötum.
Svo reyni ég að nota sköpunargáf-
una til að gera eitthvað kúl úr því.
Mér finnst langskemmtilegast að
versla í útlöndum þó ég fari reyndar
ekki oft út. Uppáhaldsflíkin mín er
gamall skógarhöggsullarjakki sem
ég held að tengdapabbi minn eigi.
Ég var að fá mér ný gleraugu um
daginn og bróðir minn skammaði
mig þegar hann sá þau. Hann sagði
að þau væru of hipsteraleg. Það var
samt eiginlega óvart, ég er mjög
nærsýn þannig að ég var alls ekki
bara að reyna að vera kúl.
Hugbúnaður
Mér finnst alltaf gaman að kíkja í
bæinn seinnipartinn á föstudögum á
Happy Hour. Ég hef farið á Danska
barinn, Slippbarinn og Stofuna.
Mér finnst frábært hvað íslenskir
staðir eru orðnir metnaðarfullir
um þetta. Ég fer afar sjaldan út að
djamma en þegar það gerist þá elti
ég bara fólkið sem ég er með. Ég
reyni aftur á móti að vera dugleg
að fara á tónleika og fer því oft á
Faktorý sem er frábær tónleika-
staður. Tónlistin, skólinn og barna-
uppeldi taka meirihluta tíma míns
þannig að ég horfi lítið á sjónvarp.
Ég get því aldrei tekið þátt í sam-
ræðum um sjónvarpsþætti þó ég
vildi. Í staðinn horfi ég á hinar og
þessar barnamyndir. Ætli ég hafi
ekki horft svona þrjátíu sinnum á
brot úr Monsters Inc. síðasta mán-
uðinn. Hún er skemmtileg. Ég reyni
að vera dugleg að fara í jóga og vildi
að ég kæmist oftar en ég geri.
Vélbúnaður
Uppfærsla á vélbúnaði hefur setið á
hakanum síðustu árin því allur pen-
ingur hefur farið í hljóðfærakaup.
Macbook-tölvan mín er fimm ára,
það er mjög mikið að henni en hún
virkar samt. Síminn minn vekur
alltaf athygli hjá fólki. Þetta er eld-
gamall Nokia-sími með svarthvítum
skjá og engri myndavél. Fólk sér
þessa síma bara ekkert lengur.
Á móti get ég verið stolt af Nord
Electro 3 hljómborðinu mínu, það er
mitt helsta stolt fyrir utan son minn.
Ég komst yfir 300 vina mörkin á
Facebook um daginn. Ég hef ekki
hugsað mér að fara mikið hærra því
ég vil hafa þetta lítið og kósí.
Aukabúnaður
Kærastinn minn er kokkur svo það
er alltaf gott að borða heima en
ég fer samt af og til út að borða. Í
sumar fór ég á Tapashúsið því hann
var að vinna þar. Svo förum við
stundum á Laundromat því krakkal-
eiksvæðið þar er svo gott. Ég legg
ekki mikinn metnað í snyrtivörur
en lít samt oftast ágætlega út. Ég á
bíl en þar sem ég bý í Vesturbænum
labba ég mjög mikið. Í sumar fórum
við fjölskyldan í fyrstu utanlands-
ferðina með syni okkar. Við fórum
til Köben og Berlínar að heimsækja
vinkonur mínar. Það var algjör
snilld. Uppáhaldsstaðurinn minn í
heiminum er samt sveitin hjá ömmu
og afa rétt fyrir utan Akureyri. Ég
reyni að komast þangað eins oft og
ég get.
Auður og félagar hennar í hljómsveitinni Nóru voru að gefa út nýja plötu. Þau spila
þrisvar yfir Airwaves-helgina. Síðustu tónleikarnir eru á morgun, laugardag, í
Eymundsson. Ljósmynd/Teitur
Í takt við tÍmann auður viðarsdóttir
Iceland Airwaves tónlistarhátíðin
stendur nú sem hæst. Auk hefð-
bundinnar dagskrár og „off venue“
dagskrár eru fjölmargir áhuga-
verðir viðburðir í gangi í miðborg
Reykjavíkur. Til að mynda hefur
stór hópur tónlistarmanna og mynd-
listarmanna lagt undir sig Restaur-
ant Reykjavík að Vesturgötu 2. Þar
verða bæði hljómplötur og mynd-
list til sölu og eru allir velkomnir og
ókeypis aðgangur.
Þeir myndlistarmenn sem sýna
verk sín og selja eru Hugleikur
Dagsson, Lóa Hlín Hjálmtýs-
dóttir, Bergur Thomas Ander-
son, Sigga Björg, Helga Páley,
Páll Ívan, Loji Höskuldsson, Ing-
var Högni Ragnarsson og Svav-
ar Pétur Eysteinsson. Þá verða
Útúrdúr og Ókeibækur með útibú á
staðnum.
Tónleikadagskrá föstudagsins er
svohljóðandi: Klukkan 14 Borko, kl.
16 Prins Póló, kl. 17 Eysteinn Péturs-
son og kl. 18 Sóley. Á morgun, laug-
ardag, treður Tilbury upp klukkan
14, klukkan 16 er komið að Ásgeiri
Trausta og klukkan 18 er það Jónas
Sigurðsson.
Listamenn hertaka
Restaurant Reykjavík
Berglind Häsler og Svavar Pétur Eysteinsson, sjálfur Prinspóló, sjá um dag-
skrána á Restaurant Reykjavík. Ljósmynd/Ingvar Högni
76 dægurmál Helgin 2.-4. nóvember 2012