Tölvumál - 01.12.1999, Page 16
Kasmír mikli
Kasmír mikli
Árni Gunnar Róbertsson
Það sem markaðs-
setning á vefnum hef-
ur fram yfir margar
aðrar leiðir er sveigj-
anleiki í upplýsinga-
miðlun og gagnvirkni
Kasmír er byggt á
miðlægum Informix-
Universal Server
gagnagrunni og er
aðgengilegt í gegn-
um venjulegan vafra
Fyrirtæki eru í vaxandi mæli að upp-
götva notkunargildi veraldarvefsins
sem verkfæris til að bjóða betri
þjónustu við viðskiptavini sína. Það sem
markaðssetning á vefnum hefur fram yfir
margar aðrar leiðir er sveigjanleiki í upp-
lýsingamiðlun og gagnvirkni. Ein af meg-
inforsendum þess að vefur þrífist og dafni
er að á honum sé að finna áhugavert og
lifandi efni. Þetta hljómar kannski eins og
almenn skynsemi en svo virðist þó ekki
vera þegar svipast er um á vefnum. Síður
sem ekki eru uppfærðar í óratíma gefa lít-
ið tilefni til heimsókna. Flókin forrit og
ferli til að koma efni á vefinn hafa síst
hvatt fólk til dáða á vefvellinum. Þörfin
fyrir einfalt uppsetningar- og umsjónar-
viðmót er því fyrir hendi og varð til þess
að vefumsjónarkerfið Kasmír Mikli var
hannað á Vefstofu Skímu ehf. og er því
sérstaklega ætlað er að auðvelda fyrirtækj-
um miðlun og uppfærslu efnis á vefnum.
Kasmír Mikli á sér bróður, Kasmír Litla
sem miðast að minni fyrirtækjum og fé-
lagasamtökum en í þessari grein ætla ég
að greina frá helstu eiginleikum og upp-
byggingu Kasmírs Mikla.
Informix
Vefumsjónarkerfið Kasmír er byggt á
miðlægum Informix-Universal Server
gagnagrunni og er aðgengilegt í gegnum
venjulegan vafra. Þetta hefur þann kost að
vefumsjón getur farið fram á öllum vélum,
sem tengdar eru við Internetið og hafa
vafra uppsettan, óháð stýrikerfi. Umsjón-
arkerfið og þær síður sem smíðaðar eru
með því eru allar geymdar í gagnagrunn-
inum. Til að ná til þeirra og birta þær er
gagnagrunnurinn tengdur við vefþjón sem
í dag er Netscape 4.6 á HP-Unix. Það sem
tengir vefþjóninn við gagnagrunninn er
Vefeiningin (Web Datablade Module) frá
Informix sem er um leið er kjarninn í
Kasmír. Web Datablade samanstendur af
þremur þáttum:
Webdriver (Vefrekill). Vefrekillinn sér
um myndun SQL fyrirspurna sem keyra
WebExplode fallið til að ná í síður úr
gagnagrunninum. Vefrekillinn skilar
HTML kóðanum, úr kallinu í WebEx-
plode, til vefþjónsins. í Kasmír er stuðst
við Netscape Server API (NSAPI) útgáfu
af Vefreklinum til að koma á tengingu við
gagnagrunninn.
WebExpIode fallið. Webexplode fallið
myndar kviklegar HTML síður byggðar á
gögnum geymdum í Informix gagna-
grunninum. WebExplode túlkar vefsíður
sem innihalda DataBlade vefeiningar tög
og kviklega myndar og keyrir SQL fyrir-
spurnir og skipanir sem geymdar eru í Ve-
feiningartögum. WebExplode forsníður
útkomuna úr SQL fyrirpurnunum og skip-
unum og skilar útkomunni til Vefrekilsins.
SQL fyrirspurnirnar ásamt skipunum eru
tilgreind með tögum sem falla undir
SGML staðalinn.
Vefeiningar tög og eiginleikar. Vefein-
ingin í Informix inniheldur sitt eigið safn
af tögum og eiginleikum sem fylgja regl-
um SGML staðalsins sem leyfa keyrslu
SQL fyrirspurna innan vefsíðna.
Myndin að neðan sýnir betur ferlið sem
fer af stað þegar beðið er um vefsíðu sem á
heima í Informix gagnagrunni. {ifx.drw}
Það sem er þó einna öflugast við In-
formix Vefeininguna er að hún leyfir
hönnun nýrra taga (Dynamic tags).
Notkun þeirra gerir kleift að hylja
flóknar gagnagrunnsaðgerðir eða annan
kóða fyrir notandanum bakvið einfalt við-
mót. Þessi eiginleiki Vefeiningarinnar
kemur fram í Kasmír sem X-Einingar (In-
formix-einingar).
Umsjónarhluti
Eftir að umsjónarmaður vefs hefur fengið
úthlutað notendanafni og lykilorði að um-
sjónarsíðu Kasmírs getur viðkomandi haf-
ist handa við að setja inn efni á vefinn.
Það eru þrjár leiðir til að búa til nýja síðu í
Kasmír, sú fyrsta er að skrifa efnið beint
inn á umsjónarsíðunni eða undirbúa efnið
í öðru verkfæri eins og t.d. StarOffice eða
MS-Word og vista á HTML formi sem
16
Tölvumál