Tölvumál - 01.12.1999, Blaðsíða 36

Tölvumál - 01.12.1999, Blaðsíða 36
NetWorld + Interop Arkitektúr er ekki það sama og högun net- kerfis sem segir til um stærð og staðsetn- ingu eininganna, heldur er hann leið- beinandi um tækni- legar útfærslur Netgreiningardagur var fyrir fagmenn í tæknirekstri og fjallaði um greiningu vandamála og rekstur netkerfa. Farið var yfir mikilvægustu þættina, svo sem skjöl- un netkerfa, greiningu á afköstum og svar- tíma, skynjun á innbrotum og þjónustu- samninga (e; service level agreements: SLA). A VöIP deginum var farið ýtarlega í út- færslu á tali yfir IP netkerfi, allt frá grund- vallaratriðum í símtækni, meðhöndlun tals í stafrænum kerfum, flutning tals yfir tölvukerfi og yfir í hönnun netkerfa. Farið var yfir sýnidæmi og reynslusögur, og spáð í framtíð VoIP. A Ljóstæknideginum var farið yfir stöðu ljósleiðaratækni í dag og fjallað um ýmsa tæknilega þætti ljósleiðarakerfa og háhraðanetkerfa. Framsöguræður Nokkrir mikilsmetnir aðilar úr tölvu- og fjarskiptaheiminum héldu framsöguræður (e; keynotes) flesta ráðstefnudagana. A slíkum fyrirlestrum er áhersla á þróun tölvu-, upplýsinga- og fjarskiptatækni og rökstudda spádóma um framtíðina. Rick McGinn, forstjóri Lucent Technologies, lagði áherslu á hlutverk hugbúnaðarþróunar í aukningu á afkasta- getu og þjónustu á Alnetinu. Forritanlegur netbúnaður verður forsenda útþennslu á rafrænum viðskiptum (e; e-commerce). Hann spáði því að bandbreidd myndi aukast um 100- til 250-falt á næstu 5 árum, og fullyrti að sú tækni sem tengir notendur við Alnetið, bæði lagnir og þráð- lausar lausnir, yrði mikilvægur hlekkur í þróuninni. Kathleen B. Early, framkvæmdastjóri AT&T Internet Services, benti á að sam- kvæmt rannsóknum sem gerðar hafa verið sé um 280 milljónum klukkustunda eytt á ári í bið eftir niðurflutningi skráa af Alnet- inu. Því væri mikil áhersla á aukningu á bandbreidd, og kynnti hún í því sambandi nýja þjónustu hjá AT&T fyrir DSL og kap- almótöld. Hún fjallaði líka um IP væðingu og möguleika á útfærslum í öllum hugsan- legum tækjum og tólum með tengingum þráðlaust við Alnetið — ljósmyndavél með GPS, stefnuvita og IP tengingu við gagnagrunn, lófatölvur og nýja kynslóð armbandsúra með gagnagrunnstengingum. Hún lagði áherslu á að forritanleiki tækja og valkostir notandans myndu aukast stöðugt á næstu misserum og árum. William Larson, stjórnarformaður og forstjóri Network Associates, kynnti nýtt nettæki sem fyrirtækið hefur þróað. Má segja að tækið sé „svartur kassi” sem inni- heldur ýmsa öryggisþætti, eins og veiru- varnir, eldveggi og fleira, þar sem stjómun og umsjón er möguleg yfir fjarvinnslulín- ur og víðnet frá miðlægri tölvumiðstöð. Jorma Ollila, stjórnarfonnaður og for- stjóri Nokia, benti á að vöxtur í farsíma- notkun hefur sífellt orðið meiri en bjartsýn- ustu spár hafa áætlað, og hann fullyrti að svo yrði áfram. Hann lagði áherslu á að þróun í far-tækjum fælist í einu samræmdu kerfi sem tengir alla þættina saman, og sem gerir farsíma að alhliða tæki með veraldar- vef og tengingum inn á Alnetið. Hann lagði til að menn leggðu skammstöfunina WAP á minnið, því hún stæði fyrir forsendu í þró- un framtíðarinnar. Sýningin A sýningunni, sem stóð í þrjá daga, voru 509 sýningaraðilar með bása. Sýningar- gólfin eru meira en 90.000 fermetrar að flatarmáli og skiptist svæðið í tvo stóra sali. Meðal sýnenda voru öll stærstu fyrir- tækin í heiminum sem selja vörur eða þjónustu fyrir upplýsingatækni. Sem dæmi nægir að nefna fyrirtækin 3Com, Check Point, Cisco, Citrix, Computer Associates, Hewlett-Packard, Intel, Lucent, Microsoft, Network Associates, Newbridge, Nokia, Nortel og Novell. Meðal þess sem var til sýnis var net- kerfi sýningarinnar, en það er talið vera með stærstu og fullkomnustu tölvunetum sem sett hafa verið upp. Þar var markmið- ið að staðfesta samvirkni tæknilausna og sýna fram á að nýjar tæknilausnir virki. Notendafjöldinn var rúmlega 50.000 not- endur þar sem allir sýningargestir fengu kenni og aðgangsorð inn á staðarnetið auk þess sem allt sýningarsvæðið var tengt kerfinu og byggði í raun á því. Arkitektúr netkerfa I boði voru 53 námskeið, ýmist dags nám- skeið eða tveggja daga. Efnisflokkar voru átta; Grunnþættir Alnetsins, Netskiptar, Aðgangstækni (þráðlaus tækni, hröð pakkanet, kapall), Netumsjón, skipulagn- 36 Tölvumál

x

Tölvumál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.