Tölvumál - 01.12.1999, Blaðsíða 17
Kasmír mikl
Vafri
URL:lhttp://.1
Vefþjónn
Vefrekill
Informix Universal Server
Hlutbundinn venslagrunnur
fMynda SQL skipunf
Vefsíðu tafla
HTML
síöa með
lifandi
gögnum
HTML
síöa meö
SQL
tögum
1 Webexplode falllið I
síðan er hægt að sækja úr skrá eða klippa
og líma inn í síðuumsjónarhluta Kasmírs.
Myndir sem kunna að fylgja nýrri síðu eru
sóttar inn í kerfið sérstaklega í myndaum-
sjónarhluta Kasmírs. Áður en hægt er að
vista síðuna er henni gefið nafn og valin
staðsetning í veftrénu með kaflanúmeri.
Kasmír sér síðan um að gera síðuna að-
gengilega með því að birta tengil á viðeig-
andi stað á almenna hluta vefsins en stað-
setningin ræðst af því kaflanúmeri sem
síðunni var gefið. Þó að þetta sé nóg til að
korna síðu á framfæri er hægt að stilla
fleiri atriði í síðuskilgreiningunni. Ef vísa
þarf í síðuna innan vefsins er þörf á
auknefni eða kenni, það tryggir að tengill-
inn í síðuna brotnar ekki þó að staðsetn-
ingu síðunar sé breytt í veftrénu. Venju-
lega er heiti síðunar notað í tengli á síðuna
en einnig er mögulegt að notast við graf-
ískan hnapp. Ef ekki er óskað að síða birt-
ist á almenna hluta vefsins er það gert með
einum músasmell. I síðuskilgreiningunni
er einnig möguleiki á að láta síðuna birtast
þegar ákveðin dagsetning rennur upp og
einnig hvenær hún er útrunnin. Þegar síða
er útrunnin á tíma er möguleiki á að láta
kerfið senda skeyti til umsjónarmanns
þess efnis eða fjarlægja hana af almenna
vefnum. Til að spara mönnum sporin er
inöguleika á að tengja snið við síður til að
gefa jreim staðlað útlit. Síðast en ekki síst
bíður síðuumsjónarhlutinn upp á að að-
greina síður eftir tungumálum. Kerfið
samþykkir hverskonar HTML texta en
síðuumsjónarhlutinn getur einnig tekið við
hreinum texta og því er ekki þörf á HTML
kunnáttu ef stuðst er við snið.
Myndir
í Kasmír eru allar myndir geymdar í
gagnagrunni. Á þartilgerðri myndaum-
sjónarsíðu er hægt að hlaða upp myndum
frá diski einkatölvu, gefa henni nafn og
stilla stærð í pixelum. Þegar mynd er vist-
uð er henni einnig valinn flokkur eins og
t.d. hnappar. Notandinn býr sjálfur til
myndaflokkana og eru þeir fyrst og fremst
til aðgreiningar á myndum. Flokkamir
bjóða þó upp á möguleika eins og t.d.
ilettiskilti fyrir auglýsingar. Áður en mynd
er birt á vefnum eru nokkur atriði sem
hafa ber í huga s.s. tegund, þjöppun , upp-
lausn og stærð. Algengustu tegundimar
sem ganga í flestar gerðir vafrara eru GIF
(Graphics Interchange Fonnat) og JPEG
(Joint Photographic Experts Group).
Ágætt er að styðjast við eftirfarandi þum-
alputtareglur þegar mynd er undirbúinn
fyrir vefinn:
• Til að tryggja hraðari birtingu reynið
að halda stærð mynda undir 30K
• Skerið út eða breytið stærð myndar
þannig að þær taki minni flöt og séu
innan 600 X 300 díla (miðað við
640x480 díla skjáupplausn).
• Notist við smækkaðar myndir
(thumbnails) og sýnið fulla stærð þeg-
ar smellt
Tolvumál
17