Tölvumál - 01.12.1999, Side 43
Tæknisamruni
Síma- Tölvu- Gacnvirk Nettexta- Veftal GSM
þjónusta póstur Fax Intcmct b spjall “VolP” SMS/WAP K-iosk
staðir
maður einfaldlega ekki. Þess í stað verður
sífellt algengara að hafa tölvusíma á
skjánum hjá sér, þar sem hægt er að fram-
kvæma allar algengustu aðgerðir eins og
hringja, svara, leggja á, flytja símtal, setja
á bið ofl. Til að halda símafund þyrfti ein-
ungis að merkja við í lista hverjir vera
ættu á fundinum og smella síðan á hringja
hnappinn.
Tölvusímtæki tengjast vanalega einnig
viðskiptamannagrunni eða öðrum þeim
grunnum sem notandinn kýs. Aður en
svarað er kemur því fram á skjá hver er að
hringja og hægt er að halda utan um sam-
skiptasögu viðkomandi. Ef maður bregður
sér frá sést á skjánum hverjir hafa hringt á
meðan og nægjanlegt er að tvísmella á
viðkomandi til að hringja til baka.
Öntíur dæmi um slík kerfi eru t.d. tölvu-
skiptiborð, tölvueftirlitskerfi og úrvinnslu
og skýrslukerfi varðandi upplýsingar um
símanotkun.
Sameinuð skeytasýsla
Mikilvægi tölvupósts verður seint ofmetið
þar sem MS-Exchange og Lotus Notes
póstkerfi eru ráðandi hérlendis. Sending
símbréfa er enn algengur samskiptamáti
og eru ýmsar þekktar tölvulausnir í boði á
jiví sviði. Síðan eru talskilaboð sem fram
að þessu hafa tilheyrt símaheiminum. Með
samræmdum skilaboðakerfum (e. „Uni-
fied Messageing“) eru þessir þrír þættir
sameinaðir. Hvort heldur er um að ræða
tölvupóst, símbréf eða talskilaboð kemur
það fram í póstkerfinu, hvert með sínu
merki til að notandinn geti aðgreint teg-
und skilaboðanna. Með því að tvísmella á
línu sent sýnir talskilaboð, á sama hátt og
tölvupóstur er opnaður, þá heyrast skila-
boðin. A sama hátt eru símbréfasendingar
skoðaðar með því að tvísmella á viðkom-
andi línu. Einnig er hægt að nota kerfið til
að taka upp skilaboð og senda eins og um
tölvupóst væri að ræða og þarf því ekki að
slá inn texta. Þessi kerfi eru byrjuð að
ryðja sér til rúms hérlendis og líklegt er að
innan fárra ára verði þetta talinn eðlilegur
hluti af póstkerfum.
Gagnvirkt raddsvarkerfi
Gagnvirk raddsvarkerfi eru trúlega hvað
best þekkt af þeim lausnum sem flokkast
sem tölvusímtækni. Gagnvirk raddsvar-
kerfi byggjast á notkun símkerfis til að
hringja inn og óska ákveðinna upplýs-
inga nreð vali á takkaborði. Upplýsing-
arnar eru síðan sóttar í gagnagrunn.
Þekkt dæmi um svona kerfi er til dæmis
Bankalínan þar sem hægt er að fá upp-
lýsingar um stöðu reikninga og síðustu
hreyfingar. Annað dæmi er komur og
brottfarir flugvéla. Hins vegar er sérhæfð
notkun slíkra kerfa sérlega áhugaverð,
þar sem notast er við þá staðreynd að
flestir eru með síma og því aðgangur að
kerfinu alls staðar tryggður. Síminn er
því í raun notaður sem lófatölva sem er
Tölvumál
43