Heimilisritið - 01.01.1947, Page 15
vill var Rebekka samvizkusnauð,
en hana vantaði hinsvegar ekki
hyggindi til þess að nota ýmsar
aðferðir, sem vöktu athygli á
henni.
Það er hyggin kona, sem kýs
sjálfri sér ákveðin einkenni og not-
ar þau ætíð. Það getur verið á-
kveðinn bókstafui;, sérstök tegund
af ilmvatni eða eitthvað annað
smekklegt, sem hún kýs sér sjálf.
Kona nokkur, sem ég þekki, er
mjög hrifin af bleikrauðum lit.
Hún reynir ætíð að hafa brjóstin
á kjólunum sínum í þeim lit, og
hafi hún engin hrein kjólbrjóst við
hendina þannig lit, reynir hún að
láta kjólana bera sama svip með
því að festa í barminn vasaklúta
með miklum útsaumi í þessum lit,
eða þá að hún klæðist blússu með
líningum og vasa úr bleikrauðu
efni.
„Okkar á milli sagt v'erð ég
stundum þreytt á þessum lit“,
sagði hún við mig einu sinni, „en
ég veit, að þetta uppátæki borgar
sig samt. Hvenær sem kunningjar
mínir sjá þennan lit, verður þeim
hugsað til mín, og ef þér tekst að
láta fólk hugsa oft til þín, þarftu
ekki að óttast, að persónuleiki þinn
hafi ekki aðlaðandi eiginleika“.
Ég veit, hvað þessi vinkona mín
syngur, því að ég hef reynt þetta
sjálf. Miklu af kunningskap mín-
um við aðra verð ég að halda við
með bréfaskiptum. Um langt skeið
beitti ég' öllu mínu ímyndunarafli
til þess að láta þessi bréfaviðskipti
bera sem mestan áargnur. Það var
áður en ég þekkti gildi þess að
nota sérstakt einkenni. Nú hef ég
mitt ákveðna einkenni, ekki sér-
lega skrautlegt eða óvenjulegt, en
merki, sem er fyrst og fremst mitt
og ekki annarra. Ég hef vanið mig
á að innsigla sérhvert bréf með
dropa af rauðu lakki, áður 'en þáð
er látið í póst. Auðvitað er þetta
ekki neitt stórkostlegur hlutur, en
það eru einmitt svona smáatriði,
sem með aðgætni má nota til að
gera persónu sína eftirtektarverða!
Ég veit, að þeir, sem skrifast á
við mig að staðaldri, hafa meira
gaman af að fá bréf mín, síðan ég
tók upp þennan sið. Kunningjar
mínir hafa svo, oft sagt mér það
sjálfir.
Verið ekki hversdagsleg.
Eftir að þér eruð búnar að kjósa
yður sérstakt „fangainark“, hvern-
ig væri þá að breyta út af hvers-
dagsvenjunum í einhverju sem
snertir hið daglega líf yðar. Ef til
vill hafið þér greitt hár yðar á
sama hátt síðastliðin fimm ár,
vegna þess að einhver hefur sagt
yður, að þannig greiðsla gerði yð-
ur svo líka leikkonunni Myrnu
Loy. Ef til vill klæðist þér fötum
af nákvæmlega sama lit og gerð
vetur, -sumar, vor og haust. Það
er hyggin kona, sem þekkir tak-
HEEVHLISRITIÐ
18