Heimilisritið - 01.01.1947, Blaðsíða 44

Heimilisritið - 01.01.1947, Blaðsíða 44
hurðinni svo fast á eftir sér, að húsið skalf, og sneri síðan lyklinum í skránni með fálmandi höndum. Vindkviða skall á húsinu svo hrikti í hverju tré. Fyrst ætlaði hún að hlaupa út, en á leiðinni að útidyrunum mundi hún eftir andlitinu, sem hún hafði séð á glugganum. Ef til vill var það ekki ímyndun. Ef til vill var það andlit morð- ingja — morðingja, sem beið eftir henni úti í storminum. Hún Iét fallast í stól, skjálfandi af ótta. Hún gat ekki verið hér lengur — í návist þess, sem var í kistunni. I>ó þorði hún ekki að fara út. Bara að Ben kæmi. Hann ,mundi vita hvað gera ætti. Hún nuddaði augun. Það sem hún hafði séð, brenndi sál hennar eins og blá- sýra og varirnar bærðust í mátt- lausri örvæntingu. / gövilu kistunni liennar var samanhni'prað lconvUk. Hún hafði ekki séð andlitið; höfuðið var beygt niður í hornið og laust hárið féll um það. Konan yar rauðklædd. Önrrnr höndin hvíldi rétt undir lokinu, og á löngutöng var karlmannshringur, signet með mynd af ljóni, sem stóð á afturfótunum og hafði lítinn dem- ant í klónum. Það var demantur- inn, sem hafði endurkastað ljós- neistanum. Hún mundi aldrei gleyma því, aldrei gleyma, hvernig konan lá með kreppt hné og nakta hvíta arma í hálfbirtu kjallarans, og ógreitt, tjásulegt hár, sem féll fram yfir andlitið. Hún hélt áfram að skjálfa, svo að tennurnar glömruðu í munn- inum á henni, þótt hún reyndi að stilla sig; en vitundin um, að hún var lokuð hér inni með líki mjTtr- ar konu, ætlaði að trylla hana. Hún sveipaði jakkanum fastar að sér, reyndi að verjast þeim 'hel- kulda, sem læsti sig um hana, og smátt og smátt fór hugsun hennar að skýrast. Hún byrjaði að gera sér ljóst, að það var um margt annað að hugsa en sjálft morðið, dauðann. Það mundi hafa sínar afleiðingar; líkið hafði einhverra at- vika vegna verið falið í kjallaran- um, og það mundi finnast þar, og það múndi hafa sínar afleiðingar. Lögreglan mundi koma. Fyrst í stað fannst henni það nokkur huggun, að lögreglumenn- irnir mundu taka líkið úr kjallar- anum og fara burt með það. Svo gerði hún sér ljóst að þetta var hennar kjallari — hennar og Bens; og lögreglumenn voru tor- tryggnir og hnýsnir. Mundu þeir halda, að hún hefði drepið konuna? Mundu þeir trúa því, að hún hefði aldrei séð hana fyrr? Eða mundu þeir halda að Ben hefði gert það? Mundu þeir taka bréfin í hvítu umslögunum, fjar- veru Bens að heiman og hennar 42 HEIMILISRITIÐ
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Heimilisritið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.