Heimilisritið - 01.09.1947, Side 9
Redfern er ennþá ven-i. Um dag-
inn, þegar við fórum eftir klettun-
um, á leið til Harford, fékk hún
svima og hélt dauðahaldi í mig.
Hún sagðist ■einu sinni hafa fundið
■til þess, þegar hún fór upp tröpp-
urnar utan á dómkirkjunni í Mil-
ano. Hún hugsaði ekki út í það á
leiðinni upp, en þegar hún fór nið-
ur aftur, greip.það hana“.
„Þá ætti hún ekki að fara nið-
ur stigann við klettavíkina“, sagði
Lane.
Ungfrú Brewster gretti sig. „Eg
forðast hann líka. Hann er fyrir
unglinga. Cowmansdrengirnir og
börn Mastermans hlaupa hann upp
og niður eins og ekkert sé“.
„Þarna kemur frú Redfern“,
sagði Lane, „hún hefur verið í
sjónum“.
Ungfrú Brewster sagði:
„Poirot ætti að falla vel við
hana; hún flatmagar ékki í sól-
inni“.
Hin unga frú Redfern hafði tek-
ið af sér sundhettuna og dustaði til
hárið. Ilún liafði glóbjart hár,
og ljósan hörundslit. Handleggir
hennar og fætur voru nærri hvítir.
Barry majór rak upp hásan hlát-
ur og sagði:
„Hún lítur hálf kjánalega út inn-
anum hin, ha?“
Christine Redfern kom uppeftir
frá ströndinni, sveipuð síðum bað-
slopp. Iíún var björt yfirlitum, al-
varleg í andliti, snoppufríð, með
'smáar, fallegar hendur og netta
fætur.
Hún brosti til -þeirra, vafði um
sig baðsloppnum og lét fallast nið-
ur í stól.
„Þér verðsþuldið virðingu og að-
dáun Poirots. Honum lízt ekki á
þetta sólbrennda; segir að það
minni sig á kjötbúð, eða eitthvað
þessháttar", sagði ungfrú Brewster.
Christine Redfern brosti rauna-
lega. Hún sagði:
„Ég vildi óska að ég þyldi sól-
bað! En ég verð ekki brún. Ég fæ
bara brunabletti og hroðalegar
freknur um alla handleggina“.
„Það er þó betra en að verða
kafloðin, eins og Ircna Gardener“,
sagði ungfrú Brewster. Þegar
Christine leit spyrjandi á hana,
hélt hún áfram: „Frú Gardener
hefur verið á fullum straum í
morgun, alveg óstöðvandi. Ég vildi
bara, Poirot, áð þér hefðuð tekið
hana til meðferðar. Því sögðuð þér
henni ekki, að þér væruð hér í þeim
erindum að grafast fyrir um hræði-
legt morð, og að morðinginn, æðis-
genginn manndrápari,’ væri áreið-
anlega einn af dvalargestunum?“
Ilercule Poirot andvarpaði og
mælti:
„Ég er bara hræddur um að hún
hefði tekið það alvarlega“.
Barry majór hló og sagði:
„Hún hefði áreiðanlega gert
það“.
Emily Brewster sagði:
HEIMILISRITIÐ
7