Heimilisritið - 01.09.1947, Blaðsíða 61
keppinaut? . . . Nei, ég býst við ég
sé ekki mikils virði. En ég ætlaði
að gefa þér þetta tækifæri.
„0, nei! Ég fer ekki þangað —
ekki strax að rmnnsta kosti. Eg
hef hugsað niér að halda í horfinu
.. . Hræddur um þú iðrist þess'
samt. Vertu sæll“.
Hávaðmn í fremri skrifstofunni
færðist í aukana. Síðan var barið
feimnislega að dyrum. Dyrnar
opnuðust til hálfs og ungfrú Gor-
don stakk höfðinu inn. Hún
horfði á herra Whimple með npp-
glennt augu. Kannski af ótta —
eða æsingu.
„Það eru sex menn frammi",
sagði hún. „Blaðamenn. Þeir
hljóta að hafa komizt á snoðir uni
eitthvað í sambandi við — þeir
segjast ætla að skrifa um það í
blöðin —
Berra Whimple hallaði sér aftur
á bak í stólinn.
„Tala við þá á eftir“, drundi
hann og ýtti -frá sér símanum.
„Punktið þér fvrst niður það, sem
ég segi yður“.
Ilún gekk að skrifborðinu með
minnisbókina á lofti.
„Takið hlaupareikninginn minn
úr Nothernbankanum“, • sagði
herra Wbimple með þjósti. „Færið
hann inn hjá Merchants“.
„Já, herra Whimple", sagði ung-
frú Gordon.
„Tilkynnið innkaupadeildinni,
að við skiptum ekki framar við
Sharpman & Thorpe — eða Bill
Fulton".
„Já, herra Whimple“.
„Skrifið Searchlight Film Studi-
os, og segið, að sonur minn hætti
hjá þeim í lok mánaðarins“.
„Já, herra AVhimple"’.
„ITringið til Matildu frænku og
segið henni, að við getum ekki
tekið á móti henni í næstu viku“.
„Já, herra Whimple".
„Hafið þér náð í listann yfir við-
skiptavini Johnsons?"
„Já, herra Whimple".
„Skrifið þeim öllum og segið,
að við seljum tuttugu prósent’
lægra en verðlisti hans segir til
um. Fáið yður aðstoðarstúlku ef
þér getið ekki annað þessu ein“.
,.Já, herra Whimple“.
Hann ýtti stólnum frá skrifborð-
inu.
„Hleypið þeim nú inn“, sagði
hann.
Blaðamenn! Þeir þyrptust inn.
Sumir otuðu fram ljósmyndavél-
um. Blýantar voru á lofti. Einn
hafði orð fyrir hinum — lúygðun-
arlaus, framhleypinn.
„Iívernig er ]nað, herra
Whimple", sagði hann, „að draga
tuttugu þúsuncl punda .vinninginn
í happdrættinu?“
Ilerra Whimple stóð upp og
yppti öxlum.
„Það er alveg stórkostleg!“ sagði
hann.
E N D I a
HEIMILISRITIÐ
59