Heimilisritið - 01.10.1947, Síða 4

Heimilisritið - 01.10.1947, Síða 4
Skrijstofan er ekki staður fyrir róvmntík — það vita állir góðir einkaritarar. En hjartað spyr livorki um stað né stund, þegar ástin er annars vegar. Og yfir hjartað og ástina ná engin hónn ... Hamingjuóskir Smásaga eftii Anne Homer Warner LYDIA sat í djúpa stólnum við gluggann og skrifaði niður minnis- greinar. Desembersólin skein á brúnu ullarpeysuna bennar og dökk augnahárin, og hún sá ryk- agnirnar dansa í sólargeislunum. En hún varð að hafa sig alla við, þegar William Jeliffe höfuðsmaður sat við skrifborð sitt og las henni fyrir á sinn hálfalvarlega, hálf- gamansama hátt. Næsta morgun ætlaði hún að hreinrita þessar minnisgreinar og afhenda þær yfir- manni sínum í upplýsingadeild hersins. Ef hún missti af einhverju myndi hana iðra þess. ... En ryk- agnirnar dönsuðu í sólargeislunum fyrir framan augu hennar, og hún hataði sjálfa sig innilega. Ilún gat ekki ímyndað sér neitt svo hverfult og einhliða sem allt það, er Bill JeJiffe sagði og hún skrifaði niður eftir honum, og það olH henni sífelldum sálarkvölum. Hann hafði fjórum sinnum boðið henni heim. Þau höfðu þá setið um stund yfir glasi af víni, andspænis hvoru öðru, og Bill liafði talað hægt og dregið seiminn, eins og hann átti vanda til, og látið í ljós álit sitt um ástandið í veröldinni almennt. Þetta var allur kunningsskapur þeirra — ef á annað borð var hægt að nota það orð. Og það var síður en svo ástæða til þess, að hún léti sig dreyma kjánalega ungmevja- draurna ölium stundum. Bill var liðsforingi, einskonar tengiiiður milli Washingtons og hins hluta jarðkringlunnar. Þó hann bæri ekki einkennisbúning í skrifstofunni, hafði hún stöðugt á vitundinni þær hættur. sem hann hafði boðið byrginn. Ilann hafði orðið að nauðlenda úti á Kyrra- hafi og verið með skipi, sem skot- ið var í kaf með tundurskeyti í 2 HEIMILISRITIÐ

x

Heimilisritið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.