Heimilisritið - 01.10.1947, Page 6

Heimilisritið - 01.10.1947, Page 6
og brún augu stingur blýantinum aftan við eyrað, truflar hún ein- beitingu hins aðilans, sem situr við borðið sitt og reynir að hugsa“. Lydía gretti sig og skrifaði síð- an allt niðui'. Enginn hefði getað lá'tið sér koma til hugar, að hjarta hennar bærðist öðruvísi en endra- nær. „Nokkuð fleira, Jeliffe höf- uðsmaður?“ spurði hún hæversk- lega. ,,Vissulega“ sagði hann settlega. „Þetta næsta orðist sem spurning: Hver var stóri, ljóshærði náung- inn, sem fór með ungfrú Lydíu Barton á dansleik í gærkvöldi?“ „Sáuð þér okkur?“ spurði hún undrandi. Hann glotti. „Ég sá ykkur fara inn í bíl. Þér voruð hvítklædd og höfðuð eitthvað glitrandi í hárinu“. Hún skrifaði þetta allt niður, og hann gat ekki vitað að hönd henn- ar skalf. „Nokkuð fleira?“ spurði hún glaðlega. Ilún gat ekki látið sér detta nein önnur orð í hug. Bill hafði oft verið stríðinn, en aldrei jafn persónulega og nú. „Aðeins eitt ennþá“, sagði hann hátíðlega. „Ungi maðurin virtist bæði áreiðanlegur og tryggur. Hann virtist líka ha'fa í huga að kyssa yður í bílnum“. Ef til vill var Bill að reyna að særa hana. Hún vissi það ekki. Og Larry liafði ekki reynt að kyssa hana. Hann hafði bara setzt upp í bílinn vesældarlegur á svip. Og svo hafði hann sagt eftir stundar- þögn. „Fyrst þú vilt ekki giftast mér, Lydía — er það þá vegna ein- hvers annars manns?“ Hún hafði flýtt sér að segja: „Nei, nei, Larry“. Því það er ekki hægt að segja, að það sé „einhver annar maður“, eftir jafn óverulega viðkynningu. Bill Jeliffe fór afar víða. Hann var eftirsóttur í Was- hington. En hann hafði aldnei boð- ið henni neitt með sér. Aldrei á dansleiki eða til kvöldverðar. Kunningsskapur þeirra var allur eftir þessu — hálf-ertnislegt við- mót, þegar starfinu sleppti. Það kjánalegasta og ótrúlegasta, sem hana liafði hent, var að elska hann. „Hann virtist líka langa til að >eiga yður“, hélt Bill áfram. „Og ég myndi segja, svona hinsvegar, að hann yrði prýðilegur eiginmaður. Eða skjátlast mér?“ „Nei, þetta er alveg rétt“, sagði 'hún einbeittlega. „A ég að skrifa þetta niður, Jeliffe höfuðsmaður?“ Hann glotti og virtist skammast sín lítið eitt. „Eg bið afsökunar, Lydía, en ég komst ekki hjá því að sjá yður í gærkvöldi. Þessi heim- ur getur verið dálítið ótryggur staður, og þér virtust örugg í fylgd þessa unga manns. Svo að ef ham- ingjuóskir eru viðeigandi, vil ég færa yður mínar“. Nú skildi hún allt í einu hvað hann fór. Bill var Ijóst, að hún 4 HEIMILISRITIÐ

x

Heimilisritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.