Heimilisritið - 01.10.1947, Side 9

Heimilisritið - 01.10.1947, Side 9
aðu Jeliffe höfuðsmanni, elskan“. Litli drengurinn neitaði. Hann kastaði vettlingunum sínum á gólf- ið og dansaði í hring. Stúlkan hló. „Þér getið sagt Dick, að hegðun sonar hans sé ekki til fyrirmyndar. Segið honum að eplið falli ekki langt frá eikinni!“ Bill hló. „Lydía, gjörið svo vel að skrifa niður ágrip af þessu fyrir mig. Ég vil ógjarnan gleyma nokkru af því“. Lydía kinkaði kolli. ILún skrif- aði: „Eplið fellur ekki langt frá eikinni, vildi ekki heilsa; kastaði vettlingum á gólfið“. Jóhanna virtist ekki láta þetta á sig fá. Hún sagði, dálítið alvar- legri: „Dick var embættismaður í Síam, og ég var látin fara heim áð- ur en Dicki fæddist. Svo, þegar við ætluðum til hans aftur, var styrj- öldin að hefjast og við fengum ekki að fara. Skömmu síðar var Dick fluttur til Indlands“. Hún sagði heimilisfang hans og Lydía skrif- aði niður. Dicki uppgötvaði ösku- bakka og kastaði honum umsvifa- laust í bréfakörfu úr málmi svo söng í. Bill brosti. „Skrifið niður, Lydía, að honum falli hávaði vel í geð“. Jóhanna sagði: „Ég ætla að klæða hann úr snjófötunum svo þér getið séð vöðvana á honum“. Það var ekki auðvelt vierk að færa drenginn úr snjófötunum. Dicki velti sér á gólfinu og spark- aði fótunum upp í loftið. Hvorugt þeirra virtist taka sér þetta nærri. Lydía uppgötvaði allt í einu, sem hún skildi ekki vel, að Jóhanna virtist vera hamingjusöm — ekki einmana eða áhyggjufull. Lydía sagði, þegar drengurinn var kominn úr útifötunum í bláu prjónafötin sín: „Hann er sannar- lega hraustlegur og sterkur“. „Já, það er satt!“ samsinnti Jó- hanna ánægjulega. Iíún leiddi drenginn í loftköst- um að skrifborðinu. Bödd hennar varð snöggvast lítið eitt óstöðug. „Ég hef auðvitað sent myndir, margar. Og lýsingar; en ég hugsaði, að ef þér sæuð Diek sjálfan og segðuð honum frá öllu saman, væri það allt öðru máli að gegna. Segið honum frá vöðvunum. Dicki, sýndu manninum vöðvana“. Drengurinn kreppti hnefana og gretti sig af alefli í framan. BilL hló. „Ilann virðist halda, að áfeynslan sé -mest fyrir andlitið“. Hann lagði stóra höndina á hand- legg drengsins. „Agætt, ég skal segja pabba þínum frá þér, Dicki“. „Og svo er annað“, sagði Jó- hanna. „Fyrsta orðið, sem hann sagði, var „pabbi“. ITann byrjaði að segja það níu mánaða gamall. Segðu „pabbi“ fyrir manninn, væni minn“. „Pabbi, pabbi, pabbi“, galaði drengurinn og steypti sér kollhnís — ekki mjög fimlega — á miðju HEIMILISRITIÐ 7

x

Heimilisritið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.