Heimilisritið - 01.10.1947, Page 10

Heimilisritið - 01.10.1947, Page 10
ski-ifstofugólfinu. Hann skríkti af kátínu, v.elti um bréfakörfunni svo pappírinn dreifðist út um gólfið. Jóhanna hló. ,,Rétt eins og fað- irinn. Ofugsnúin gamansemi! Og han er líkur Dick í fJestu. Viljið þér segja honum það? Sami mat- goggurinn, og hefur sama stríðnis- glampann í augunum“. „Eg skal segja honum frá því“, lofaði Bill hátíðlegur. „Þér eigið ljómandi strák, fyrirmyndar barn“. Lydíu varð þungt um hjartaræt- urnar. Ilún liefði ekki getað skýrt það sjálf, hvernig á því stóð. En þegar hún sá þessa fallegu stúlku halda á útifötum barnsins í annarri hendi og neyna að grípa skokkandi drenginn með hinni. var eins og hún fyndi til sársauka. Og allt í einu vissi Lydía af hverju það var. Henni varð það skyndilega hræði- lega ljóst. Ef ég ætti lítinn dreng, hugsaði hún, myndi ég vilja að hann líktist Bill. Annars gæti ég ekki orðið hamingjusöm. Og hún fann til sárs saknaðar, því það var eins og hún hefði misst allt nema draiimana. Hún gæti aldrei gifzt neinum. „Það er gott“, sagði stúlkan. „Segið honum að Dicki sé kátur, að okkur líði viel, og að við bíðum eftir því að hann komi heim“. „Ég skal ekki gleyma því“. sagði Bill. Jóhanna lyfti drengnum upp á handlegg sér. „Ég ætla að klæða hann frammi á ganginum“, sagði hún. „Verið þér sælir, herra höfuðsmaður“. Bill sagði: „Þegar ég kem aftur skal ég færa yður kveðjur. Skila- boðin komast þá báðar leiðir!“ Og Ijóminn á andliti Jóhönnu, þegar hann sagði þetta, lýsti upp litlu skrifstofuna, löngu eftir að hún var farin. „Iíann er efnilegur snáði“, taut- aði Bill. Hann gekk út að glugg- anum og horfði út. Það var orðið næstum dimmt. Lydía sat þarna í tómleika myrk- ursins, hún var þurr í munninum og gi'áturinn sat í hálsi hennar. Bill snéri ennþá baki að henni, og sagði: „Lydía, ég veit að það er ekki til neins fyrir mig. En ég verð að reyna. Ég á við, ef ég gæti slegði þennan náunga út, þann sem þér voruð með í gærkvöldi. Ég — ég á við —“ stamaði hann — „ef ég hefði minnstu möguleika. ...“ Hann sneri sér við, en hún gat varla greint andlit hans í myrkr- inu. „Líf mitt hefur verið svo örygg- islaust, að ég hef reynt að kannast ekki við þetta fyrir sjálfum mér“, hélt hann áfram hikandi. „Ég hef gert það, sem ég hef getað til þess livorki að sjá yður né hugsa um yður. En það tekst ekki. Ég get ekki hrundið yður úr huga mér. Yður finnst þetta ef til vill fjar- stæðukennt. Þér hafið sennilega aldrei hugsað um mig nema í sam- 8 HEIMILISRITIÐ

x

Heimilisritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.