Heimilisritið - 01.10.1947, Síða 11

Heimilisritið - 01.10.1947, Síða 11
bandi við vinnuna. Það er heldur engin ástæða til þess að þér skyld- uð giera það“, sagði hann svo hæ- versklega. „Eg?“ spurði Lvdía aulalega. Það var næstum aldimmt í stof- unni, og þó var hún full af birtu. Ef til vill var sú birta aðeins fyrir innri sjónum hennar. „Lydía“, sagði hann örvænting- arfullur, ,,ég er að reyna að segja yður, að ég elski yður. Ég hef gert það frá upphafi. En mér fannst ég ekki hafa nokkurt leyfi til að kvænast, og fara síðan burt í hverja svaðilförina eftir aðra. Mér fannst það eigingirni o;f verra en það, næstum glæpur. En þegar ég sá þessa stúlku, með litla drenginn sinn. . .. Þegar ég sá þau og hugs- aði til þess, hversu miklis virði þau myndu vera manninum þarna austur í Indlandi, hvernig hann myndi hugsa til hennar og drengs- ins. ... Lydía, þér skiljið að slík bönd ná hvert sem er. Inn í jap- anskar fangabúðir, sjúkrahús eða fljúgandi virki. Þau eru föst og áþreifanleg, þýðingarmeiri en ör- yggi og heimili“. „Já, ien þetta vissi ég allt“, sagði Lydía. „Hver sú .kona, sem elskar, veit það“. Hann sagði ákveðið: „Jafnvel þó þér væruð giftar þessuni náunga, myndi ég reyna að ná yður frá hon- um. Þá byrjaði hún að hlæja, en þó var henni skapi nær að gráta. Hún Iagði höfuðið á stólbríkina og blý- anturinn datt á gólfið. Hláturinn, sem hristi hana — eða ef til vill var það grátur — var mesta sæla, sem hún hafði fundið á sinni stuttu ævi. „Að minnsta kosti þakka ég guði fyrir, að þið eruð ekki gift ennþá“, sagði hann. Hún vissi, að hann var að hugsa um Larry Bishop, og slík fjar- stæðk fyllti hana ósegjanlegri við- kvæmni. Hún sagði: „Bill, þú þarft ekki að slá neinn út, það er enginn nema þú. Ég fann það líka, þegar stúlkan og drengurinn hennar voru hérna“. Iíann trúði henni ekki í fyrstu. Einhvern veginn þreifaði hann sig að stólnum hennar. Ilann lyfti and- liti hennar og reyndi að lesa úr augum hennar, en það var tilgangs- laust í myrkrinu. Svo tók hann hana í faðm sér, en draumar henn- ar hurfu ekki. Og þeir voru svo bjartir að hún varð að loka augun- um fyrir þeim í fyrstu. Virða þá fyrir sér einn og einn — hún fann klunnalega hönd hans strjúka hár ;sitt og heyrði hann segja: „Elsku Lydía“. Það var fyrsti draumur- inn, siem rættist, og hann hefði ver- ið henni nóg, þótt hinir síðari hefðu ekki verið skínandi bjartir, þegar þeir rættust. ENDIB HEIMILISRITIÐ 9

x

Heimilisritið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.