Heimilisritið - 01.10.1947, Page 18

Heimilisritið - 01.10.1947, Page 18
Ég hlustaði og heyrði fótatakið nákvæmlega eins og hann hafði lýst því. Það brakaði í hv-erju þrepinu eftir annað niður stigann. Hann þreif í mig í ofboði og sagði hásri röddu: „Þannig er það nótt eftir nótt — hverja einustu nótt! Og nú heyrið þér mig opna úti- hurðina —“. Ég beið ekki eftir að heyra í úti- hurðinni, sem stigapallurinn skyggði á. Ég vildi sjá hana og flýtti mér niður á eftir fótatakinu. Ég heyrði útihurðina opnast og lokast, og kom nógu snemma til að komast að raun um, að hún hreyfðist alls ekki, svo að ég flýtti mér út til að hafa hendur í hári draugsa. Hann var fremur efnismikil! af draug að vera, kraftalegur verka- maður, sem bjó í næstu sambygg- ingu við Jón. Hann hafði tíma til að tefja fáeinar mínútur, svo að hann féHst á að koma með mér upp til Jóns til að fullvissa hann um, að draugagangurinn væri ekki hættulegur. Málinu var þannig farið: maðurinn, sem bjó uppi andspænis stiganum í næstu á- föstu byggingu, fór til vinnu sinnar á sama tíma og Jón vinur okkar kom heim. Nábúinn átti enga vekjaraklukku og það truflaði hann við lestur að þurfa sífellt að líta á úrið. Gegn- um þunna veggi gömlu byggingar- innar, sem hafði verið tekin til í- búðar fyrir verkamenn í hergagna- verksmiðju, heyrði hann þegar Jón kom upp stigann frá vinnu, og einmitt þá varð hann sjálfur að leggja af stað. Þannig notaði nábúinn Jón sem einskonar tímamerki. Fótatakið' niður stigann og dyrnar, sem geng- ið var um, voru í næsta húsi. Skoplegt fyrirbrigði, óneitan- 'lega, en a.f slíkum atvikum verða draugarnir til! E N D I R Stjörnumar og hann „Elskan mín. A meðan ég er burtu, ætlarðu þá að horfa upp til stjarn- anna og hugsa um mig?“ „Já, það geri ég. Þú og stjörnurnar liafa svo mikið sameiginlegt". „Hvernig þá?“ „Þær skína nlla nóttina og eru svo fölar á daginn“. Spakyrði um konuna Jafnvel dauðinn er ekki eins dularfullur og konan. Konan elskar alla nema þann, sem lnin af lilviljun er gift. Kona verður aldrei hamingjusöm, ef hún verður ekki óhamingjusöm öðru hverju. 16 HEIMILISRITIÐ

x

Heimilisritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.