Heimilisritið - 01.10.1947, Page 28

Heimilisritið - 01.10.1947, Page 28
sóknum. Enginn hefur hingað til skilið, hvað þessum ósköpum olli. Það var eins og logandi eldspýtu hefði verið fleygt ofan í púður- tunnu. Voveiflegt hvískur fór að berast með blænum. „Bráðum handsama þeir bölv- aða gyðingana. Eg vona að þeir drepi þá alla“. Litlu síðar hófust svo ofsókn- irnar. Rúða var brotin á markaðs- staðnum. Menn þustu til. Slag- brandar voru teknir af krókum og hafðir að vopni. Dráps- og grimmd- aræði hafði gripið borgarbúa. Aftur birti upp og friður komst á í borginni. En eftir þetta undum við ekki í þessu landi. Við urðum ásátt um að flytja burtu. Við réð- um af að fara til Ameríku. Foreldrum mínum fannst þetta voðaleg tilhugsun, en mér fannst nú annað. Ameríka! Nafnið eitt var örfandi drykkur. En þó skyggði dimmt sorgarský á gleði mína, þegar burtförin nálgaðist. Fim gat ekki komið með mér. Við þorðurn engum að segja frá því, að okkur langaði til að hún færi. Við vissum, að hvorugir foreldr- anna myndu gefa leyfi sitt til þess, og við vorurn of ung til að mega giftast. Sorg okkar varð að sárri neyð, þegar skilnaðarstundin rann upp. Og þá, eins og æ síðan, var það Fim, sem sýndi hvers hún var megnug, og hugprýðin hennar veitti mér styrk til að þola þessa raun. „Hertu upp hugann vinur minn“, sagði hún, „og farðu bara. Þú mátt vita það með vissu að ég kem. Ekkert skal aftra mér frá því. Ég kem áreiðanlega seinna, því lofa ég“. Svo kyssti hún mig þarna á ár- bakkanum og öll angist mín var rokin burt. Það er tvennt ólíkt að hverfa að heiman frá þægilegu heimili og stöðu og setjast að í stórri heims- borg. Fljótt á litið virtist faðir minn ekki breytast til niuna. En hann var nú farinn að eldast og reyndist ekki fær um að taka hinn nýja heim með áhlaupi. Hann gat jafnvel ekki fengið neitt að gera. Hann gat ekki stundað starf sitt í Ameríku og treysti sér ekki til að fá sér aðra atvinnu. Hann var sem fallinn eik, en móðir mín var hinsvegar seig eins og víðitág. Um- skiptin höfðu að vísu fengið á hana, og ég vissi, að henni hlaut að leiðast og langa heim, en samt tók hún brátt að skjóta rótum í hinni nýju mold. Hún, sem áður hafði •leitt fram í dagsljósið marga litla þegna handa Austurríkiskeisara, fór að veita litlum Ameríkumönn- um liina sömu þjónustu af sömu verkhyggni og áður. Hún skipti við fátæklingana í Chicago og bar lít- ið úr býtum fjárhagslega, en henni varð npkið úr litlu. 26 HEIMILISRITIÐ

x

Heimilisritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.