Heimilisritið - 01.10.1947, Síða 30

Heimilisritið - 01.10.1947, Síða 30
stætt ætlun minni. „Já, ég er trommuspilari“. Svo var mér tilkynnt, að hljóm- sveitin yrði að íá góðan trommp- sjDÍlara eða engan. Eg lét drjúgt yfir mér og var ráðinn! Ef ég tæki að mér að slá trommu í hljómsveit Rush-'lækna- skóla átti ég í staðinn að fá allt frítt við skólann. Svo .þyrmdi óttanum yfir mig. Hvílík vitleysa að ímynda sér, að ég væri fær um að læra að slá trommu. Ég, sem ekki vissi, hvérn- ig át'ti að halda á stöfunum. En nú var annaðhvort að hrökkva eða stökkva. í veðlánabúð í North Clark Street keypti ég gamla trommu. Kunningjar mínir í Tat- arahljómsveitinni kenndu mér fyrstu handtökin. Ég var fljótur að læra undirstöðuatriðin. Og þrír mánuð'ir voru ennþá til stefnu. — A þeim tíma varð ég að læra að slá trommu betur en nokkur annar. Skelfingardagurinn rann upp, er halda skyldi hljómleika i Man- del Iíall, og hjartað í mér hélt prýðilega trommuhljómleika í brjóstinu, er ég gckk inn í salinn og reyndi að láta sem ekkert væri, en þó fannst mér ég vera að stíga á höggstokkinn. Ég var svo viðutan, að ég vissi ekki hvort ég sló trommuna vel eða illa, fyrr en prófessor Hobson kom þjótandi að símanum. „Harper rektor“, sagði hann. „Þessi maður er óviðjafnanlegur. Hann var rétt í þessu að leika á trommu krýningarmarz Mayer- beers, og hann gerði það miklu bet- ur en ég hef nokkru sinni áður heyrt“. „Tollering" ÞEGAR ég vissi, að ég gat far- ið að byrja á læknanáminu, fórum við móðir mín að hugsa mér fyrir fötum. Við þóttumst bæði vita, hvernig fötum læknastúdent ætti að klæðast. Ég hafði ge.fið náinn gaum að læknastúdentunum í Búdapest, þessum dýrðlegu ver- um, sem ég hafði séð í sévintýra- ljóma. Og svo, þegar ég gekk inni í skól- ann, var ég alveg óaðfinnanlegur frá hvirfli til ilja. Ég var í röndótt- um buxum, sem hefðu sómt sér prýðilega í kvöldsamkvæmi eða brúðkaupsveizlu, og svörtum klæðisfrakka, með því sniði, sem kiennt var við Albert prins. Érá mér numinn af gileði lét ég skrásetja mig, og lagði svo af stað upp í ifyrstu deild. Ég gekk upp háan stiga, komst inn í kennslu- stofuna, og litaðist um eftir sæti. Fremstu sætin voru auð. Ég settist niður, feiminn og hlægilega ham- ingjusamur. Ég var að velta fyrir mér því vandamáli, livað ég ætti að gera 28 HEIMILISRITIÐ

x

Heimilisritið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.