Heimilisritið - 01.10.1947, Side 32

Heimilisritið - 01.10.1947, Side 32
Og mæðusvipurinn sat enn á andliti hans, meðan hringsviðið skalf af hlátri. ]\Iér fannst ég sjá bregða fyrir kankvíslegri glettni á andliti líksins! Ég var sílesandi og kúrði mig svo rækilega niður í námsbækurn- ar, að ég hafði lokið við að lesa þær allar, þremur mánuðum áð- ur en prófið átti að hefjast. Ilv'ern skollann átti ég að gera við þessa þrjá mánuðiP Eg leitaði ráða hjá Jolin M. Dob- son. „Thorek“, sagði hann. „Þekk- inguna á læknisilistinni er að finna í líffærafræðinni. Ég myndi ráða yður til að nota tímann til að at- huga krufningar. Þér skuluð byrja á þessu í næstu viku“. Sennilega liefði mér verið holl- ara að hvíla mig. Ég var ekki vel hraustur. En samt fór ég að stunda þessa fræði, sökkti mér bókstaf- lega niður í þau í níutíu daga. Oft hef ég minnst Dobsons með þakklæti fyrir þetta heijlaráð hans. Og svo rann prófdagurinn upp. í það skipti var ég vel og viðeig- andi kJæddur. Samt voru skuldirnar og fátækt- in hvergi nærri yfirbuguð. En þó var mér ekki neitt í hug nema fögnuður, þegar ég tók við þeirri sauðskinnsskrá, sem Alma Mater hafði ritað á viðurkenningu sína fyrir því, að ég lrefði rétt tii að stunda hina mikilvægu íþrótt Eskulaps. Fyrsta takmarki mínu var náð. Ég var orðinn læknir. Enn var þó eftir að yfirstíga einn þröskuld. Ég var sendur til Marcyfæðingardeildarinnar, sem er á mótum Maxwell Street og Newberry Avenue. Ég tók þessu með þökkum. Ég hafði ætlað mér að verða fæðinga- læknir, og ég vissi, að aðalstarf stúdenta við þ^nnan spítala var að fara inn á heimilin í nágrenninu til að aðstoða við fæðingíjr, hjálpa nýjum og nýjum einstaklingum inn í þennan yfirfyllta mannheim. Fæðingarhjálp í fátækrahverfi FRÁ ÞEIM tíma, er ég starfaði á fæð'ingarspítalanum, bregður upp mörgum minningum. Aldrei varð af því, að ég yrði fæðingalæknir. En dularvefur fæðinga er svo sam- ofinn kufli lífsins, að sérhver læknir hlýtur að finna þræði hans á ótal stöðum. INIannlegt eðli er ætíð samt við sig, þegar fæðing barns er annars vegar, hvort sem það er snortið af skopi eða hátíðlcika, gleði eða sorg. Tökum til dæmis vanstilltan föður, er lætur alla sína magnlausu skelfingu, yfir því að sjá konuna sína ofurselda kvölum, bitna á lækninum. Sem betur fer eru fáir menn líkir hinum boldangslega, rúmenska svola, sem réðst á mig 30 HEIMILISRITIÐ

x

Heimilisritið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.