Heimilisritið - 01.10.1947, Side 42

Heimilisritið - 01.10.1947, Side 42
Nei, hún vildi .ekki hugsa um hann, eða brjóta heilann um það, hvað lægi að baki orða hans. — Góðan daginn, Joan! Þvílík indælis veðurblíða! Freddy Cart- er stóð i dyrunum og brosti glað- lega. Hann var mikill aðdáandi Joans og hafði á sínum tíma gjarnan viljað verða hlutskarpari en Michael. — Jæja, sagði hún annars hug- ar. Freddy Carter kom nær. — Er eitthvað að, Joan? — Nei ... svaraði hún í stytt- ingi. Eg hef fengið bréf frá Michael og það hefur komið mér úr jafn- vægi. — Þú hefur borið þig svo vel, Joan, sagði Freddy. Þú mátt ekki halda, að ég skilji þig ekki, því að það geri ég sannarlega. — Skilurðu hvað? spurði Joan byrst. — Þessa áhyggjuleysis . grímu, sem þú hefur brynjað þig með, svaraði hann af skilningi. Auðvit- að héfur þetta verið mikií þolraun fyrir þig — en þú berð þig miklu bietur en fyrst, þegar þú komst hingað. Hann klappaði hughreyst- andi á hönd hennar. Gætirðu ekki orðið eftir hér í borginni í kvöld og komið með mér í leikhúsið? Ilún gat ekki neitað því, að hana langaði að taka boðinu. Henni stóð orðið stuggur af kvöldunum heima og hinum endalausu ræðum móður hennar um búsáhyggjur sín- ar. — Jú, það vil ég fegin, sagði hún loks. Við kvöldverðarborðið ræddu þau einungis'um fjármál, en þeg- ar þau sátu, að lokinni leiksýuing- unni, í einum næturklúbbanna, laut Freddy að henni og sagði: — Joan, hefur þú hugsað þér að skilja við Michael? Hún stirðnaði upp. — Eg sé enga ástæðu til þess, sagði hún. Freddy hristi höfuðið samúðar- fullur. — Guð nrinn góður, elskarðu hann ennþá? spurði hann. — Elska? Elska? endurtók hún óþolinmóðlega, og vangar hennar glóðu. Eg elska að minnsta kosti engan annan! Morguninn eftir var hún dauð- þreytt og fór svo seint á fætur, að það munaði engu að hún missti af lestinni. Þegar hún var á leið til bílskúrsins hrópaði móðir henn- ar: — Ó, Joan, vertu svo væn að taka heim með þér dálítið af græn- meti í kvöld. Það er svo erfitt að ná í það hér, og ... Hvers vegna gat fólk aldrei séð um matvælakaupin sjálft! Hún aflaði peninganna, þá átti móðir hennar líka að vera einfær um að sjá um húsið. 40 HEIMILISRITIÐ

x

Heimilisritið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.