Heimilisritið - 01.10.1947, Page 52

Heimilisritið - 01.10.1947, Page 52
vitað áttu að meta ástina meira en vin- áttuna. BRÉFASAMBAND Sp.: Kæra Eva! Getur J>ú sagl mér, livert ég á að snúa mér til þess að kom- ast i bréfasamband við dreng eða stúlku í Noregi? Hvernig líst þér á skriftina? U.P.K. Sv.: Snúðu þér til Norræna félagsins. Formaður þess liér er Guðlaugur Rosen, kranz. Skriftin er ekki sem verst. ÞYNGD OG L.TÓÐ Sp.: 1. Eg er 18 ára og 164 sm. há. Hvað á ég að vera Jrung? Getui'ðu birt fyrir mig textann ,,One Day When We Were Young(<; lagið er eftir Strauss? Susý. Sv.: 1. Þú átt að vera 57—58 kg. 2. Það mun verða reynt. LÍKAMSÆFINGAR Sp.: Svo er mál með vexti, að ég þreyt- ist mjög á baki og hálsi, og reyndar er ég farin að finna til þre.vtuverkja víðar um Jíkamann, ef ég er lengi við eitthvað > erk. Geturðu gefið mér nokkuð ráð við þessu? Uthaldslaus. Sv.: Hér er auðveld og einföld líkams- æfing. sem ])ú skalt gera á hverjum morgni — tólf sinnum í fyrstu, en oftar, allt að fimmtíu sinnum, eftir því sem fram liða stundir. Þegar þú ert komin fram úr og hefur fengið J)ér heitt bað færðu þér sæti. Þú átt að sitja nokkuð gleitt og láta hand- leggina hanga utan vert við hnén. Nú beygirðu þig fram um injaðmarliðina, Jiangað til höiuðið er komið niður á milli hnjánna, fyrst til hægri og síðan til vínstri. Beygðu þig eins mikið fram og niður og þú getur, því ef þú hlífir þér er æfingin tilgangslaus. Svo réttirðu úr bakinu og endurtekur æfinguna. Þessar auðveldu leikfimisæfingar eru mjög hollar og heilsubætandi fyrir hvern þann er iðkar þær á hverjum morgni, hvort sem hann þjáist af bakverk eða ekki. Og ]>ær hafa þann stóra kost, að það er hægt að sitja meðan maður iðkar þær, svo að jafnvel lötustu manneskjur ættu ekki að telja þær eftir sér. UM ROY ROGERS Sp.: T. Mig langar ákaflega mikið til að vita eitthvað um kúrekahetjuna og kvik- myndaleikarann Roy Rogers. Viltu verða við bón minni? 2. Ég er 167 sm hár piltur. 16 ára gam- all. Hvað á ég í)ð \-era þungur? Dúi. Sv.: 1. Roy Rogers er vafalaust hinn ókrýndi konungur þeirra, sem leika í kú- rekakvikmyndum um þessar mundir enda hefur hann halt aðalhlutverkið með hönd- um í 50- 60 kvikmyndum siðustu 10 ár. Auk þess kemur hann fram í útvarpi tvö kvöld í hverri viku. TTann er 33 ára gam- all, broshýr og unglingslegur. ITann er á- gætur gítarspilari og söngmaður; liefur líka haft ofan af fyrir sér sem slíkur, áður en hann varð leikari. 2. Þú átt að vera um það bil 60 kg. FLUGÞERNUSKILYRÐI Svar til „Einnar af tuttugu“: I Banda- ríkjunum eru haldin sérstök námskeið fyr- ir væntanlegar flugþernur og eru skrifstof- ur flugfélaganna hér líklegar til að gefa upplýsingar í því sambandi. Annars eru skilyrði til þess að verða flugþerna eink- um þau, að viðkomandi hafi þokkalega framkomu, sé sæmilega kurteis og geti tal- að norðuilandamálin og ensku. ÖIl mennt- un þar fram yfir er auðvitað vel þegin. Eva Adams. 50 HEIMILISRITIÐ

x

Heimilisritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.