Heimilisritið - 01.10.1947, Síða 59

Heimilisritið - 01.10.1947, Síða 59
Hún fór að hugsa um kvöldið, þegar þau komu. Það var hrein- asta ævintýri að fara út í eyna. Það var stórstreymt, og granda- garðurinn í kafi. Þau urðu að fara á bát. Og þegar þau komu upp á hjallann, kom hávaxin, dökkhærð kona á móti þeim og sagði: „Hvað — Kenneth!“ Og faðir hennar svaraði undr- andi: „Rosamund!11 Linda hafði virt Rosamund gaumgæfilega fyrir sér. Henni leizt vel á hana. Rosamund, hugsaði hún, er skynsöm. Hárið fór henni vel, og klæðnaðurinn var dásamleg- ur. Og svo var andlit hennar svo ánægjulegt. Rosamund hafði sýnt Lindu þægilegt viðmót; hún hafði ekki látið dæluna ganga, ekki sagt neitt (að segja eitthvað, var það sem Linda kallaði alls konar að- finnslur og háðsglósur). Og Rosa- mund hafði ekki litið á hana eins og einhvern fáráðling. Nei, hún hafði litið á hana sem fullþroskaða manneskju. Linda fann ekki oft til þess, að hún væri fullþroskuð manneskja, og hún var afar þakk- lát því, að þannig væri litið á sig. Faðir hennar virtist líka vera ánægður yfir að liitta Rosamund Darnley. Það var skrítið — það var eins og hann breyttist allt' í einu. Ilann varð — ungur, já það var einmitt það sem hann varð; hann hló eins og strákur. Þegar Linda fór að hugsa um það, hafði hún sjaldan heyrt hann hlæja. Það var eins og hún hefði allt í einu séð fyrir sér annan mann. „Hvernig skyldi pabbi hafa litið út á mínum aldri“, hugsaði hún. En hvað það hefði verið gaman, ef þau hefðu getað verið hérna tvö saman — og Rosamund Darnley Iíún sá þetta í anda, föður sinn kátan og hlæjandi, og allt það scm hægt var að skemmta sér við.. Það sló skugga á þetta glæsta útlit. Það var ekki hægt að skemmta sér í návist Arlenu. Linda 'gat það að minnsta kosti ekki. Það er enga sælu að finna í návist manneskju, sem maður hat- ar, — já, hatar. Linda hataði Ar- lenu. Linda varð náföl, varirnar dróg- ust sundur og augasteinarnir herpt- ust saman. Hún kreppti hnefana .. III. KENNETH Marshall barði að dyrum hjá konu sinni. Þegar hún svaraði gekk hann inn í herbergið. Mariena var að ljúka við að snyrta sig. Hún sat við spegil og var að sverta augnahárin. „Ó, ert það þú, Ken?“ „Já, ég ætlaði að vita hvort þú værir tilbúinn“. „Augnablik“. Kenneth Marshall gekk út að HEIMILISRITIÐ 57

x

Heimilisritið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.