Heimilisritið - 01.06.1950, Side 20
skaða. Þær leiða iðulega til óá-
nægju, ótta við barneign, jafnvel
ónýtingar.
Mesta hamingja, sem konu
getur fallið í skaut, er sú, að
vita sig elskaða og eftirsótta.
Það er allri líkamlegri bráða-
birgðafullnægingu æð'ra. Hún
verður að lifa í þeirri vissu, að
samband hennar við manninn
þurfi ekki að rofna skyndilega
sökum einhverra duttlunga eða
breytinga. Konan er ekki sköp-
uð til þes sað lifa niðurlægjandi
lífi blekkinga og laununga í ást-
um. Henni er fyrir öllu að geta
verið viss um, að staðföst ást
mannsins sé fyrir hendi, ekki að'-
eins í dag, heldur einnig á morg-
un og um alla framtíð.
Það er engin nauðsyn fyrir
konuna að taka það spor, sem
neyðir hana til að halda aftur af
sér. Þess í stað ætti hún að halda
líkama sínum óflekkuðum svo
lengi sem hún er ógift — með
góðri samvizku og án þess að
örvænta. Sé hún fær um þetta,
verður hún að' öllum líkindum
miklu betri eiginkona, þegar þar
að kemur.
ENDIR
Nýir 'vendir sópa bezt
Nýi lögregluþjónninn (másandi og
blásandi); Sáuð þér manninn, sem kom
þjótandi hérnn út ,úr húsinu?
Húseigandinn: Já.
Lögrcgluþj.: Með úfið hár og flótta-
leg áugu?
Húseig.: Já
Lögregluþj.: Hví í dauðanum hleypt-
uð þér honum út?
Húseig.: Hvers vegna skyldi ég hafa
farið að varna honum útgöngu?
Lögregluþj.: Hann var sýnilega morð-
ingi. Sáuð þér ekki, að hann var allur
löðrandi í blóði?
Húseig.: Jú — en —
Lögregluþj.: Það verður þegar að veita
honum eftirför og reyna að handsama
hann.
Húseig.: Ja — ef þér haldið að það
sé nauðsynlegt, þá —■
Lögregluþj.: Heyrðuð þér ekki þessi
hryllilegu vein, þessi skelfilegu angistar-
óp? Hvaðan komu þau?
Húseig.: Ofan af loftinu héma.
Lögregluþj.: En í guðanna bænum,
við skulum hlaupa upp, þar er fórnar-
lambið hans.
Húseig.: Er hvað? Hvað segið þér
að sé uppi á lofti?
Lögregluþj : Fórnarlambið hans.
Húseig.: Nei, nú hlýtur yður að
skjátlast. Hérna em engin lömb, og
enginn Hans. Uppi á lofti er enginn
nema 1—
Lögregluþj.: Enginn nema hver — ?
Húseig.: Já, ég ætlaði að segja að það
er enginn nema---------
Lögregluþj.: Hver?
Húseig.: Tannlæknirinn nýi.
Lögregluþj. (labbar þegjandi burtu).
18
HEIMILISRITIÐ