Heimilisritið - 01.06.1950, Side 22
Þetta byrjaði allt í Moncont-
our. A níundu öld komst lítið
brot úr hauskúpunni af sankti
Maturin til Bretagne. Þetta bein
var greypt í silfur og því fenginn
staður í kirkjunni í Moncontour.
Þar fór það að' gera heilmikið af
kraftaverkum á sjúkum og sár-
um, svo að pílagrímar streymdu
að úr öllum áttum. Til þessa
dags er Maturinsmessa, sem
haldin er um hvítasunnulevtið,
mesti geistlegur og veraldlegur
stórviðburður ársins í Norður-
Bretagne.
Fyrst ganga pílagrímarnir
skrúðgöngu í þjóðbúningum. Þá
er hinn helgi dómur dýrkaður
ýmist með því, að menn smella
á hann kossi eða fleygja sér niður
fyrir framan hann. Næst er hald-
in ræða á Breton-mállýzku, en
aðeins örfáir af söfnuðinum
skilja eitt einasta orð í henni.
Loks hefst mikill markaður, sem
stendur í þrjá daga, og pílagrím-
arnir, sem hafa hingað til orðið
að sitja á sér, geta nú náð sér
niðri við mat og drykk, söng og
dans, ástabrall og verzlunarþjark
í búðunum, sem settar hafa ver-
ið upp í kringum Ponthiévre-
torgið.
Presturinn í Issy-en-Vilaine
varð, árið, sem freistingin kom
vfir hann, fyrir þeim heiðri, að
vera beðinn að prédika á hátíð-
inni á Breton-mállýzku, tungu
feðra sinna. Þessi stutta ferð var
heilmikill viðburður fyrir hann,
því að hann fór sjaldan út úr
sinni sókn, nema þegar kirkju-
völdin kölluðu liann fyrir sig til
Rennes til að standa reiknings-
skap ráðsmennsku sinnar. Hann
vafði brúnum pappír utan um
náttskyrtuna sína og rakhnífinn,
stakk þessum böggli undir hand-
legginn en brevíaríum og ræðu-
stúf í vasann, fór í strætisvagni
til Lamballe, komst þar í áætl-
unarbíl, sem var í sérstökum
ferðum með pílagríma, og komst
til Moncontour síðdegis. Þar
tóku embættisbræður lians á
móti honum, og í rökkrinu sté
GEORGE BELLAIRS, höfudur ]>essarar smásögu, er Englendinsur.
Hann fæddist árið 1902 skammt frá Manehcster. Hann naut góðrar skóla-
menntunar og lauk prófi frá háskólanum í Lundúnum. Síðan hefur hann
skrifað smíisögur, greinar og pistla um margvísleg efni í bUið og tímarit.
Einnig hefur hann unnið við brezka útvarpið. I nokkur ár liélt liann há-
skólafjTÍrlestra fyrir almenning um nútíðarsögu Evrópu. Fyrir styrjöldina
(1939—15) fór hann oft til Þýzkalands og hefur skrifað margt um nazism-
ann og ástand allt þar í landi. Til Bretagne í Frakklandi leitar hann iðulega
sér til hvíldar og hressingar, þegar á milli verður annarra starfa hjá honum,
og þangað er efnið sótt í þessa smásögu, sem H. V. sneri á íslenzku.
20
HEIMILISRITIÐ