Heimilisritið - 01.06.1950, Side 44
Ur einu í annað
Margir fuglar lifa í lífstíðar hjóna-
bandi, og er fuglinn þá það gáfaðri en
mannskefnan, að hann fer aldrei lengra
frá maka s'tnum allan ársins hring, en
að hann geti annað hvort heyrt til hans
eða séð
*
Teblettum má ná úr með hreinu,
sjóðandi vatni. Hellið vatninu yfir blett-
inn og í gegnum hann.
*
Kristofer Kólumbus steig aldrei freti
á meginland Ameríku.
*
Takmörkun framleiðslunnar er náð,
þegar allir hafa það sem þeir þurfa.—
Henry Ford
*
Sannleikurinn um ofdrykkjuna er sá,
að í hinni óheiðarlegu verzlunar-sið-
menningu vorra daga, er ekki htegt fyr-
ir ódrukkinn mann að láta sér líða vel,
en í heiðarlegri siðmenningu gceti hins-
vegar engum drukknum manni liðið vel.
G. Bernhard Shaw.
#
Málningarblettum, sem orðnir eru
þurrir og gamlir, má ná úr ullar- og
baðmullarefnum með klóróformi. Fyrst
skal borið smjör á blettinn.
*
Hjólið er eiginlega það eina, sem mað-
urinn hefur fundið upp af eigin ramm-
lcik. Allt hitt hefur náttúran blásið hon-
um í brjóst og bent honum á að meira
eða minna leyti.
*
Við notum einungis lítinn hluta heil-
ans ennþá. Ónotaði hlutinn er ótak-
markaður. — Charles Mayo.
Ef hárlos gerir vart við sig, er gott
að bleyta hárið vel einstöku sinnum upp
úr sterku saltvatni.
#
Lœknirinn: — Og munið að sofna
alltaf á fastandi maga!
Sjúklingurinn: — En ég get ekki
sofnað nema ég liggi á bakið.
*
Trú án leyndardóma hættir að vera
trú. — Manning biskup
*
Hœstsctta höfuðborg í heimi er La
Pas í Boliviu. Hún stendur á fjalli,
12.4.JO fet yfir sjávarmál.
#
Til þess að gera hvíta þvottinn bragg-
legan, er ágætt að láta matskeið af
terpentínu í suðuvatnið.
*
Kennarinn: — Eru buxur í eintölu
eða fleirtölu?
Siggi litli (eftir langa umhugsun):
— Þær eru í eintölu efst en í fleirtölu
neðst.
*
Snillingurinn er 1% innblástur og
99% sviti. — Thomas A. Edison.
*
Rómverjar fluttu perur frá austurlönd-
um til Evrópu og rcektuðu fyrstir
Evrópumanna perutré. Sama er að segja
um epli.
#
Ef rotta, sem veiðst hefur í gildru
eða verið handsömuð lifandi á annan
hátt, er smurð með lýsi eða öðru óþrifa-
legu efni og síðan sleppt í holu sína
aftur, má reikna með því að allar rott-
ur flýi staðinn.
42
HEIMILISRITIÐ