Heimilisritið - 01.06.1955, Qupperneq 6
fyrst í vasann. og byrjaði svo á
verkinu. Hermönnunum leið nú
miklu betur, vegna þess að þeir
höfðu fundið mann, sem var fús
til að smíða naglana, sem þeir
þurftu að fá. Þegar sígauninn
hafði lokið smíði fyrsta naglans
settu þeir hann í poka. Og þegar
sígauninn hafði lokið smíði ann-
ars naglans settu þeir hann í pok-
ann. Og þegar sígauninn hafði
lokið smíði þriðja naglans settu
þeir hann í pokann. Sígauninn
byrjaði á smíði fjórða naglans.
Hermönnunum var nú orðið
rórra, áhrif vínsins voru farin
að dvína, þá sögðu þeir við sí-
gaunann:
„Með þessum nöglum ætlum
við að krossfesta Asa ben Mir-
iam.“ Jafnskjótt sem þeir höfðu
sagt þetta tóku raddir jámsmið-
anna þriggja, sem hermennirnir
höfðu drepið þá um eftirmiðdag-
inn, að tjá sígaunanum hvaða
meðferð þeir hefðu sætt. Og
raddirnar voru annarlegar. Her-
mennirnir litu hvor á annan.
Myrkrið var að skella á. Þeir
hlupust á brott áður en sígaun-
inn hafði lokið við smíði síðasta
naglans.
Þegar hermennirnir höfðu
hlaupizt á brott var sígauninn
ánægður yfir því að hafa stung-
ið koparpeningunum fjörutíu í
vasa sinn áður en hann byrjaði
á verkinu. Síðan lauk hann við
fjórða naglann. Þegar hann
hafði lokið við að smíða hann
beið hann eftir því að hann kóln-
aði áður en hann léti hann hjá
öðru dóti sínu. Hann hellti vatni
á heitt járnið en það hraut af
og virtist engin áhrif hafa og
jámið hélzt jafn heitt og rautt
eins og áður.
Sígaunann furðaði á þessu og
hellti meira vatni á það. Myrkr-
ið var að skella á, og naglinn
glóði eins og allt í einu hefði
farið að blæða úr járninu, og að
blóðið væri logandi eldur. Hann
hellti því meira vatni á. En þetta
hafi engin áhrif og naglinn var
jafnglóandi sem áður. Koldimmt
var orðið í eyðimörkinni, en samt
sem áður lýsti birta hins glóandi
nagla langar leiðir. Skjálfandi
af hræðslu batt sígauninn tjald-
ið upp á asnann og flýði aftur
inn í eyðimörkina.
Á miðnætti var asninn orðinn
svo þreyttur að hann komst ekki
úr sporunum og sjálfur var sí-
gauninn svo örmagna úr þreytu
að hann setti aftur upp tjald
sitt. En þegar hann leit við sá
hann aftur glóandi naglann, þó
að hann hefði skilið hann eftir
við hlið Jerúsalem af því að
hann hafði ekki þorað að taka
hann upp.
Það vildi svo til að hann var
4
HEIMILISRITIÐ