Heimilisritið - 01.06.1955, Blaðsíða 38
þurrka af beltisspennunni með
strigadruslu. Það voru blóð-
flekkir á druslunni. Hún sneri
sér undan með hryllingi.
Hann spennti á sig beltið og
settist við eldhúsborðið. Hún bar
honum kaffi og hann sötraði það
í sig.
Hún gekk aftur að eldavél-
inni. Svo tók hún til máls, án
þess að snúa sér að honum:
„£g get ekki haft þig hérna
lengur, Jerry. Þú hefur nú ver-
ið hér í þrjá daga. Fyrr eða síð-
ar munu þeir finna þig hér. Eg
hef aldrei áður dregið fyrir
gluggana á daginn. Það vekur
grunsemdir fólks.“
„Þú verður þá að útvega mér
peninga, eins og ég bað þig um,
til þess ég komist héðan.“
„Ég hef látið þig fá aleigu
mína.“
„Nokkra koparhlunka!“ urr-
aði hann. „Eg þarf á peningnm
að halda. Svo miklu fé að ég
geti komizt lengra í burtu en
armur laganna nær.“
„Hvernig á ég að útvega það?“
Hann horfði slóttuglega upp í
loftið. „Hvemig er með leigjand-
ann þarna uppi? Það er sagt að
hann hafi falið morð fjár í her-
berginu.“
Hún sneri sér snöggt undan,
án þess að svara.
Hann gaf henni gætur með
vindlinginn hangandi milli var-
anna. „Hvað var á seyði uppi
hjá honum í morgun? Mér
heyrðist þú vera að stumra yf-
ir honum.“
„Ekkert,“ sagði hún lágt.
Hann rétti út höndina og greip
um úlnlið hennar og sneri henni
að sér. „Segðu sannleikann!
Hvað var að?“
Hún neyddist til að segja hon-
um það gegn vilja sínum.
Hann sleppti henni. Hann
deplaði til hennar öðru auganu.
„Ofninn, hm?“ Hann glotti ó-
hugnanlega. „Leiðinlegt að þú
skyldir ónáða hann,“ muldraði
hann. „Annars hefði allt verið í
þessu fína.“
„Hvað áttu við?“ spurði hún
skelfd. „Um hvað ertu að tala?“
Hann sló ösku af vindlingnum
á gólfið og horfði á hana falla.
„Nú, ég á við, að ef þú hefðir
ekki komið í tæka tíð — allt
sem hann lætur eftir sig er þín
réttmæt eign, því hann á enga
ættingja.“ Hann veifaði hend-
inni. „Og ég er ástkær hálfbróðir
þinn, er það ekki? Og allt eins
og það á að vera.“
Hún var orðin náföl og titr-
aði af ótta. „Ef — ef ég hefði
ekki reynt að bjarga lífi hans
hefði það verið — morð!“ hvísl-
aði hún með andköfum. „Jerry,
þú átt ekki snefil af samvizku!“
36
HEIMILISRITIÐ