Heimilisritið - 01.06.1955, Blaðsíða 62
ég til að hitta Lindu aftur. Sjálf-
sagt er sama máli að gegna um
þig?“
Maurice kinkaði kolli og gekk
framhjá henni til þess að fá illu
aflokið og tala við föður sinn.
12. kapítuli
DAGARNIR urðu bjartari og
lengri, og frú Kinlock stjórnaði
heimilinu með járnaga. Hún vék
ekki um hársbreidd frá upphaf-
lega settri áætlun að því er varð-
aði breytingar á höllinni, og hún
gerði þær í smá-áföngum, til
þess að láta sem minnst verða
vart við það. Hún sparaði hvorki
fé né fyrirhöfn, og hún fór alla
leið til Glasgow til þess að kaupa
ný gluggatjöld, og hún valdi
þau af ásettu ráði í ljósum lit-
um, sem áttu illa við gamla
veggfóðrið.
„Það er tilgangslaust að ætla
sér að 'koma nokkru lagi á hér
í húsinu meðan allt gamla dót-
ið er óbreytt,“ sagði hún við
Lindu.
„En það eru nýju gardínurnar
þínar, sem setja svo ógeðfelldan
blæ á allt,“ svaraði Lida. „Ef þú
hefðir valið rólegri liti myndi
það hafa verið áferðarfallegt.“
„Ef þú ætlar í alvöru að fara
að gagnrýna mig,“ sagði frúin
ofsafengin, „skaltu muna að ég
get tekið það sem ósvífni af
af þinni hálfu! Og það læt ég
ekki bjóða mér. Ég vil ekki und-
ir neinum kringumstæðum búa
í gamaldags heimi þar sem ligg-
ur við að maður kafni úr ryki.“
„Að mínu áliti var viðkunnan-
legt hérna áður en nýju gardín-
urnar komu,“ sagði Linda, „og
það hefur aldrei neinn þurft að
kvarta yfir ryki eða óhreinlæti
í húsinu.“
„Ég krefst þess að þú skiptir
þér ekki af þessu, Linda! Þú
skalt hafa hugfast, að þú ert hér
aðeins sem ritari hjá Bruce, og
það veitir þér engan rétt til and-
mæla. Og þú sérð sjálf, að við
getum ekki látið þetta vera eins
og það er. Ég ætla að láta vegg-
fóðra eins fljótt og hægt er.“
Linda roðnaði af gremju.
„Og það táknar auðvitað, að
þá verður líka að skipta um
húsgögn, vegna þess að þau
gömlu eiga ekki við nýja vegg-
fóðrið og nýju gólfteppin! Þeg-
ar þú hefur verið við stjóm hér
dálítið lengur, verður höllin
sjálfsagt óþekkjanleg frá því
sem áður var.“
„Það getur vel verið,“ sagði
frú Kinlock, „en hún skal að
minnsta kosti verða stílfalleg og
þokkaleg.“
Frú Kinlock hélt áfram að
setja nýtízkusnið á heimilið, og
Bruce var svo önnum kafinn, að
60
HEIMILISRITIÐ