Heimilisritið - 01.06.1955, Qupperneq 11
—“ spurði ég, „kona eða leik-
kona?“
Henni tókst að brosa á móti.
„Ég hélt að ég væri kona,“ sagði
hún, „og mig langar til þess að
verða leikkona. En mér finnst
erfitt að leika ástarsenu með
honum sem leikara. Mér finnst
— “ og nú fór hún fyrst að gráta
fyrir alvöru, „— mér líður illa.“
„Gerir hann þig æsta?“ spurði
ég.
„Mér finnst hann dásamleg-
ur,“ viðurkenndi hún.
Þetta var auðvitað gömul saga.
Reyndur leikari var að leika á
móti óreyndri stúlku og bilið
á milli þeirra sagði til sín. Clark
Gable hefði haft sömu áhrif á
stúlkuna, en hún hefði ekki orð-
ið fyrir eins miklum áhrifum af
ógiftum manni eins og af gift-
um.
Já, mér líkar vel að leika á
móti reyndum manni. Á þann
hátt finnst mér að ég geti leik-
ið bezt — með öllum þeim til-
finningum, sem gera kvik-
myndahlutverk mín meira sann-
færandi.
Er það ekki skiljanlegt, að
maður, sem hefur verið giftur,
geti vakið eðlilegustu og á-
nægjulegustu tilfinningarnar. Á
hinn bóginn, ef hann er ógiftur,
kann hann að hafa þá lífs-
reynslu, að hafa elskað í raun og
sannleika í það minnsta einu
sinni. En slíkir leikarar eru því
miður fáséðir.
Við skulum horfast í augu við
þessar staðreyndir. Maður, sem
er giftur eða hefur elskað heitt
áður, er vanari að geðjast kven-
fólki. Er nokkuð sárgrætilegra í
ástalífinu en þegar stóra augna-
blikið kemur, þegar tunglið er
alveg mátulega bjart, og kærast-
inn kann ekki að kyssa fyrsta
kossinn?
Af allri afbrýðisemi held ég
að sú versta sé að vera afbrýði-
söm út í fyrstu stúlkuna, eða
fyrsta karlmanninn. Ef maður
hugsar út í það, eiga allir sína
fortíð og það er vegna þeirrar
fortíðar, að þetta er orðið fólkið,
sem maður elskar.
Þegar ég lék í kvikmyndinni
„All The King's Men“ hjá Col-
umbia sá ég John Ireland í
fyrsta skipti. Þá hugsaði ég
strax: „Þarna er maður, sem ég
vildi láta faðma mig.“
Enda þótt hann væri enn ung-
ur, hafði hann margt við sig, sem
var hjá eldri mönnum, hann
hafði verið giftur og var faðir
tveggja yndislegra barna. Hann
kyssti mig. Ekki einu sinni, ekki
tvisvar, heldur miklu oftar en
ætlazt var til í kvikmyndahand-
ritinu. Og hvað gerðist?
Ég giftist honum.
JÚNÍ, 1955
9