Heimilisritið - 01.06.1955, Side 52
•Ópera í fjórum þáttum eftir Wolf-
gang Amadeus Mozart. Texti eftir
Lorenzo da Ponte, saman eftir leik-
riti Beaumarchais.
Fyrst leikin í Vín 1786.
PERSÓNUR:
.Almaviva, greifi .......... Bariton
Rosina, greifafrú, kona hans Sópran
Fígaró, þjónn greifans ....... Bassi
Súsanna, unnusta hans ...... Sópran
Batítolo, læknir ............ Bassi
Basilio, söngkennari ......... Tenór
•Cherubino, skósveinn ....... Sópran
Marcellina, ráðskona ........... Alt
Antonio, garðyrkjumaður ...... Bassi
Barbarina, dóttir hans......Sópran
Don Guzman, dómari ........... Tenór
.Staður: Sevilla. Tími: Sextánda öld.
I. ÞÁTTUR
Stofa í höll greifans. Fígaró og
:Súsanna eru að ræða um framtíð
:sína, þar á meðal hvernig haga
:skuli brúðkaupi þeirra. Tvísöng-
ur: „Skyldi greifafrúin kalla á
þig í kvöld“. Fígaró segir hana
:mega treysta því, að greifinn,
rsem hefur verið að reyna að
daðra framhjá konu sinni, muni
hætta að ónáða hana. Fígaró:
:Í0
„Ef hann leyfir sér“. Marcellina,
ráðskona, staðhæfir, að Fígaró
hafi lofað að ganga að eiga sig,
og segist hafa fengið Bartolo,
lækni, til að taka að sér málið
fyrir sig. Bartolo á sín 1 að hefna
á Fígaró og er þess vegna sólg-
inn í að taka að sér málið. Bar-
tolo: „Hefndin fróar“. Súsanna
og Marcellina skiptast á nokkr-
um orðum og Cherubino kemur
inn. Hann elskar Barbarínu, sem
greifinn hefur einnig verið að
fara á fjörurnar við, og biður nú
Súsönnu um aðstoð. Greifinn
kemur inn, og verða þau þá að
hætta samtali sínu. Cherubino
laumast í felur bak yið stól.
Koma enn einnar persónu inn
á sviðið veldur því, að greifinn
fer einnig í felur bak við stól-
inn. Cherubino tekst að forða
sér upp á stólinn og fleygir Sús-
anna þar kjól yfir hann. Bæði
greifinn og skósveinninn finnast
þó og er hinum síðarnefnda skip-
að að hypja sig tafarlaust burtu.
HEIMILISRITIÐ
\