Heimilisritið - 01.06.1955, Síða 55
DAG NOKKURN fór Hreiðar
í fallegu bláu fötin sín.
„Ég fer á fund seinni partinn
í dag, svo það er bezt ég líti þol-
anlega út.“
Grunsemdimar fengu óðara
fæturna hjá henni . . . hún gat
ekki á sér setið að segja:
„Þessir fundir eru farnir að
verða nokkuð oft!“
Hann leit vonleysislega til
hennar, yppti öxlum og úr svip
hans mátti lesa:
„Ertu nú þar komin ennþá
einu sinni . . . geturðu aldrei
hætt að væna mig um það
versta?“
Svo fór hann.
Auðvitað ætlaði hún að rann-
saka vasana í brúnu hversdags-
fötunum — þeim, sem hann
hafði verið í daginn í gær.
Hjartað sló ofsahratt, þegar
hún fann bréf í innra brjóstvas-
anum. Hún las utanáskriftina á
umslaginu. Bréfið var til ógiftr-
ar konu í austurbænum, sem
hún hafði aldrei heyrt getið um.
Vera var snillingur í því að
opna bréf þannig, að enginn
gæti séð að þau hefðu verið opn-
uð. Þetta var ekkert verzlunar-
bréf, það var heldur ekkert
firmanafn á umslaginu. Hreiðar
hafði skrifað utan á það . . . hún
þekkti rithöndina. Nú skyldi
hún loksins fá þær sannanir í
hendur, sem húnhafði leitað svo
lengi að. Ekkert gat afstýrt því,
að hún opnaði bréfið og læsi
það. Hún gerði sér ekki einu
sinni far um að fara gætilega að.
Hún reif bréfið upp og las:
„Kæra Vera! Viltu vera svo
góð að pressa brúnu fötin fyrir
mig.“ ❖
. Úr einu í annað
Lýsisbletcir hverfa af lérefti, ef
smjöri er roðið á blettinn beggja vegna
og látið liggja á í heilan dag. Þá er
grænsápa borin á blettinn og hún
þvegin af í heitu vatni eftir 2—3
klukkustundir. Sé bletturinn þá ekki
alveg horfinn, fer hann við suðu.
#
Fuglar skynja hvorki lykt né bragð.
#
Gættu þess að láta barnið ekki ná í
málningu, blek, hreinsunarefni, skor-
dýraeitur eða annað eitur. Hafið það
þar, sem engin hætta er á því, að það
sé tekið í misgripum.
#
í Panama og Salvador í Mið-Ameríktt,
fœðast árlega fleiri óskilgetin börn en
skilgetin.
#
Heilbrigðismálaráðuneyti Breta hefur
beint þeirri áskorun til foreldra, að leyfa
ekki kvefuðu fólki að beygja sig yfir
reifaböm né kyssa lítil börn.
#
Hér er gamalt húsráð við hiksta —
eitt af mörgum: Bleyttu sykurmola í
ediki og borðaðu hann. Einblíndu svo
nokkrar mínútur á blaðið á opnum vasa-
hnífi án þcss að tala eða hlæja.
JÚNÍ, 1955
53