Heimilisritið - 01.06.1955, Blaðsíða 67
SPURNINGAR OG SVÖR.
(Framhald af 2. kápusiðu).
Hvaða afstöðu hefurðu til barna —
barnsfæðinga, atlæti, gæzlu, uppeldi?
Þykir þér gaman að skapa fallegt
hcimili, stjórna því og halda því þrifa-
lcgu?
Þetta eru nokkur af grundvallaratrið-
um þeim, scm þú þarft að gcra þér ljós,
þcgar þú velur þér „réttan“ maka í sam-
ræmi við eðli þitt og óskir.
SVÖR TIL ÝMSRA
Til „Urrxðalausrar": — Kæra mín.
Ég er alveg sammála þér í því, að það
muni ekki vera sálin, sem hann girnist.
Og það eru eilíf sannindi, að karlmað-
ur þarf ekki að elska konu, sem hann
hcfur mök við. Ef þú villt láta hann
hafa þig áfram eins og leikfang, eins
og þú kcmst að orði, þá þú um það.
Hitt teldi ég hollara, að þú segðir hon-
um hrcinlega til syndanna næst, þegar
hann kemur, og vísaðir honum á dyr.
Hver veit nema hann fengi þá áhuga
á sál þinni líka!
Til „Kollu': — Elsku vinkona. Ég
vcit að þetta veldur þér miklu hugar-
angri, en þó ég væri öll af viija gerð,
gæti ég ekki gefið þér annað ráð við
þessu en að bíða átekta. Ég þekki marg-
ar ungmeyjar, sem hafa kvalizt af því
sama og þú, en í flestum tilfellum lag-
ast það nteð aldrinum og þær verða jafn-
vel spengilegri en vinkonur þeirra, sem
nú hafa Venusarmálið um mjaðmirnar.
I sambandi við spurningu sem ég fékk
frá „Forvitinni", ætla ég að segja frá
nokkrum spurningum, sem Dorothy
Dix fékk. Hún svaraði spurningum frá
amerískum tímaritslesendum hvorki
meira né minna en í rúmlega hálfa öid,
og hún fékk þúsundir bréfa á dag. —
Ella Bentley Arthur, sem var hægri
hönd hennar við að svara bréfum í 25
ár, hefur birt í bókarformi nokkra út-
drætti úr sumum þeirra miljóna bréfa,
scm Dorothy fékk. Mörg þeirra eru
grátkómisk, en skrifuð í fullri einlægni,
það athugist. Hér eru nokkur dæmi:
„Eg las það um daginn, að sjöunda
hvert barn, sem fæðist í heiminn, væri
kínverskt. Ó, geturðu nú ekki hjálpað
mér, Dorothy mín; ég á von á sjöunda
barninu mínu!“
„Mér er sama þó að kærastinn minn
berji mig, sem hann gerir þegar hon-
um sýnist svo. En þegar hann slær mig
niður úti á' götu, þá finnst mér hann
vera farinn að gera ást okkar of opin-
bera.“
„Sökum kringumstæðna, sem ég fékk
ekki við ráðið, varð ég móðir þriggja
barna, er fæddust utan hjónabands."
„Ég er ung stúlka, sem þrái óstjórn-
lega félagsskap karlmanns."
„Viltu gera svo vel og segja mér und-
irstöðuatriði lífsins og senda mér heim-
ilisföng nokkurra hermanna og sjó-
manna.“
„Maðurinn minn ber mig, gefur mér
blóðnasir, mer mig svo á handleggjun-
um, slær mig svo að það sér á mér í
andlitinu, sparkar í fótleggina á mér og
kemur ekki heim heilar nætur. Ég veit
a^þetta virðist ekki vera mikið, Doro-
thy mín, en þú getur ekki ímyndað þér,
hvað mér mislíkar það.“
Eva Adams
HEIMILISRITIÐ kemur út mánaðarlega. — Útgáfa og afgreiðsla: Helgafell,
Veghúsastíg 7, Reykjavík, sími 6837. — Ritstjóri: Geir Gunnarsson, Baldursgötu 9,
Reykjavík, sími 5314. — Prentsmiðja: Víkingsprent, Hverfisgötu 78, sími 2864. —
Verð hvers heftis er 10 krónur.