Fréttatíminn - 09.12.2011, Blaðsíða 82
78 jólabaksturinn Helgin 9.-11. desember 2011
Allar eiga Kærleikskúlurnar sinn stað í hjarta manns, hvert
verk er einstakt og eftir einhvern okkar fremstu listamanna;
einnig saga hvers verks, skilaboðin sem í þeim er fólgin og
blessunin.
Jólaundirbúningur
Veljum kærleikann
Rjúkandi hátíðarkaka með sterkum chili og Kærleikskúlur vekja jólaandann á heimili Evu Þengilsdóttur.
Kaka
340 gr. sykur
125 ml. vatn
200 gr. súkkulaði - 70%
125 gr. suðusúkkulaði
200 gr. smjör
4 egg
70 gr. hveiti
Setjið 250 grömm af sykri og 125 ml. af
vatni í pott og sjóðið við vægan hita –
hrærið í. Þegar sykurinn er bráðnaður
er potturinn tekinn af hellunni og
súkkulaðið brotið út í. Hrærið vel
meðan súkkulaðið bráðnar.
Skerið smjörið í þunnar sneiðar og
bætið út – hrærið vel þar til smjörið er
bráðið og blandan jöfn.
Þeytið eggin og afganginn af sykr-
inum saman þar til blandan verður
ljós og létt. Bætið súkkulaðiblöndunni
varlega út í með sleif og sigtið loks
hveitið út í – hrærið með sleifinni.
Deiginu er hellt í vel smurt 23 cm
form – gott er að nota form með
lausum botni.
Bakið kökuna við 175° hita í um 45-
55 mín. Stingið prjóni í kökuna til að
kanna hvort hún er tilbúin – prjónninn
á að blotna aðeins. Látið kökuna kólna
í forminu.
Chilisósa
2 appelsínur
1 bolli sykur
1 1/2 msk smjör
Rauður chilipipar (magn fer eftir smekk)
Setjið sykurinn í pott og rífið börkinn
af annarri appelsínunni saman við
og kreistið safann úr báðum. Sjóðið
blönduna við vægan hita þar til sykur-
inn hefur bráðnað og hrærið vel í.
Chilipiparinn er skorinn mjög smátt
og bætt út í sósuna eftir smekk. At-
hugið að piparinn er sterkastur upp við
stöngulinn. Smjörinu er bætt við í lokin
og hrært vel.
Hellið svolitlu af sósunni yfir kökuna
og setjið afganginn í könnu þannig að
gestir geti fengið sér að vild.
Gott er að hafa rjóma, sýrðan rjóma
eða jógúrtís með kökunni. Skreytið
kökuna af hjartans list og njótið vel.
Hátíðarkaka með
súkkúlaði, appel-
sínum og chili
E va Þengilsdóttir, viðskiptafræðingur og hugmynda-
smiður Kærleikskúlunnar
er, eins og flestir, í miðjum
jólaundirbúningi. Heit
súkkulaðikaka stendur
á borðinu, hátíðarkaka
sem Eva bakar gjarnan
fyrir jólin og jólaskrautið
er komið upp. „Ég baka
reyndar minna fyrir
jólin nú en fyrir nokkr-
um árum, enn baka ég
þó súkkulaðismákökur,
hátíðarkökuna, geri jólaís
í nokkrum útgáfum og svo
skerum við fjölskyldan
laufabrauð og skreytum
piparkökur,“ segir Eva.
Ýmsar hefðir eru
ríkjandi í jólahaldi Evu
og fjölskyldu hennar
og minnist hún þess
þegar hún var lítil stelpa
þegar mamma hennar tók
fram jólaskeiðar árlega
og fægði. „Mér fannst
þetta tilhlökkunarefni
og merki um að skammt
væri til jóla. Í dag er það
hátíðarstund í Listasafni
Reykjavíkur við afhend-
ingu fyrstu Kærleikskúlu
ársins sem kallar fram
svipaða tilhlökkun og jóla-
anda á mínum bæ. Þegar
heim er komið tökum við
fram Kærleikskúlur fyrri
ára, strjúkum af þeim og
hengjum upp fyrir jólin
og bætum þeirri nýjustu
í safnið. Allar eiga Kær-
leikskúlurnar sinn stað í
hjarta manns, hvert verk
er einstakt og eftir ein-
hvern okkar fremstu lista-
manna; einnig saga hvers
verks, skilaboðin sem í
þeim er fólgin og bless-
unin. Ennfremur sú mikil-
væga staðreynd að hver
kúla getur breytt mögu-
leika í veruleika, en allur
ágóði af sölunni rennur
til starfs í þágu fatlaðra
barna og ungmenna,“
segir Eva.
Annar jólasiður er að
fara upp í Heiðmörk og
höggva niður jólatré.
„Þetta hefur nú stundum
verið ævintýri líkast því
við höfum tilhneigingu til
að velja ansi stór tré, en
þau virðast bara svo mátu-
leg í skóginum við hliðina
á öllum stóru trjánum.
Við komum því gjarnan
kófsveitt til byggða, búin
að rogast með tréð um
langan veg en alsæl og
með risastórt tré á toppn-
um. Það er sama hvað við
förum oft – við erum alltaf
sannfærð um að við séum
örugglega að höggva
minna jólatré en í fyrra.
Það er mikilll karakter í
Heiðmerkurtrjánum og
skreytt ljósum, Kærleik-
skúlum og heimagerðu
skrauti krakkanna eru þau
hreint ómótstæðileg og
ilmurinn af greninu fyllir
húsið.“
Hátíðarkaka skreytt jarðarberjum, blæjuberjum og límónu.
Það er ótrúlegt
að níu ár séu liðin
frá því að fyrsta
Kærleikskúlan kom
út, sú nýjasta eftir
Yoko Ono, Draw
Your Own Map eða
Skapaðu þinn heim.
Stundum kjósum
við að vera fangar
gildandi viðhorfa í
samfélaginu og ger-
um þau að okkar.
Það er í okkar valdi
að ákveða hverju
við viljum lúta og
hvaða takmarkanir
við setjum okkur
svo lengi sem að
við gerum ekki á
hlut annarra eða
sköðum með ein-
hverjum hætti.
Sendu SMS-ið ESL JOL
á númerið 1900, svaraðu einni
spurningu og þú ert kominn
í pottinn.
Aðalvinningur:
40" LCD Samsung TV
Aukavinningar eru:
Bíómiðar – Tölvuleikir – DVD myndir ofl.
*Aðalvinningar dregnir úr öllum innsendum
skeytum 23. desember. Vinningar verða afhentir í
ELKO Lindum, Kópavogi. Með því að taka þátt
ertu kominn í SMS klúbb. 149 kr./SMS-ið.
Þú færð 5 mínútur til að svara spurningu.
Leik lýkur 22. desember 2011
40” LCD SAMSUNG
hd tv