Fréttatíminn


Fréttatíminn - 14.12.2012, Page 2

Fréttatíminn - 14.12.2012, Page 2
klassískar og nýstárlegar Á gottimatinn.is nnurðu Sörur með hindberjakremi, hvítu súkkulaði og rjómaosti. Þær koma þér á óvart. Gunnar Nelson á Wembley M ér finnst engu skipta hvort það séu 20 milljónir eða tíu þúsund krónur. Þetta er prinsippmál,“ segir Hans Kristján Árnason sem fór til læknis fyrir tveim mánuðum, gleymdi veskinu og trassaði að borga og nú hefur skuldin fimmfaldast. „Ég fór til sérfræðings í árlega skoðun í Læknastöð- inni ehf í Glæsibæ 13. september, gleymdi veskinu heima og bað um að fá sendan gíróseðil,“ útskýrir Hans en þá var upphæðin 3.384 krónur. Fljótlega eftir heimsóknina barst honum gíróseðill og Hans Kristján geymdi seðilinn en hafði hug á að greiða skuldina í október og taka þá í versta falli á sig einhverja smá dráttarvexti. „Þann 17. október fæ ég bréf frá Motus um að nú þyrfti ég að bregðast við: Skuldin var þá á þessum eina mánuði sögð vera 6.360 krónur.“ Samkvæmt Hans Kristjáni, sem hefur einnig skrifað langa skýrslu um þetta mál á Facebook-síðu sína, fylgdu rukkuninni innheimtusímtöl. Hann sagði hringjendum að hann ætlaði ekki að borga svona okur og reyndi að ná sam- bandi við lækni sinn til að fá leiðréttingu á þessu órétt- læti. Þá vildi ekki betur til en svo að læknirinn var erlendis og á Læknastöðinni fengust þau skilaboð að best væri að bíða þar til hann kæmi aftur heim. 19. nóvember kemur svo nýtt bréf frá Motus: Loka- aðvörun! Skuldin var komin í 12. 361 krónu og Hans Kristján átti ekki orð. Hann náði tali af lækninum sínum 5. desember sem sagðist lítið vita um inniheimtuaðferðir Lækna- stöðvarinnar og benti á framkvæmda- stjórann sem tilkynnti Hans að hann vildi fá skuldina greidda strax. Punktur og basta. „Ég sagði framkvæmdastjór- anum að ég myndi frekar mæta í héraðsdóm en að borga svona glæponum,“ segir Hans Kristján og bætir því við að framkvæmdastjórinn hafi ekki viljað ræða frekar við hann því honum þótti hann alltof æstur. Það næsta sem gerist er að Hans fékk inn- heimtubréf frá Lög- heimtunni sem sér um svona mál fyrir Motus. Á rúmum tveim mánuðum var skuld Hans Kristjáns, 3.384 krónur, komin upp í 16.482 krónur. „Þessi glæpastarfsemi sýnir enn einu sinni Ísland í hnotskurn,“ segir Hans Kristján sem ætlar ekki að greiða þetta okur. Mikael Torfason mikaeltorfason@frettatiminn.is  FjölMiðlar Ný lestrarköNNuN CapaCeNt Aldrei fleiri lesið Fréttatímann „Lestur Fréttatímans hefur aldrei verið meiri,“ segir Valdimar Birgisson, framkvæmdastjóri Fréttatímans, en Capacent mælir stöðugt lestur á blöðum og hefur gert frá því í janúar 2011. Nýjar tölur sýna að nú lesa tæplega 42% landsmanna á aldrinum 12-80 ára Fréttatímann í viku hverri. Það eru 108.700 Íslendingar. Lestur Fréttatímans á höfuðborgarsvæðinu jókst úr 53% í 55% milli mánaða. „Lesendum Fréttatímans fjölgaði um 3.066 frá því í síðasta mánuði en til viðmiðunar eru íbúar Seltjarnarness 3.600 á þessum aldri, 12-80 ára,“ segir Valdimar. Á sama tíma fækkar lesendum Fréttablaðsins um 1.100. Fréttatíminn er helgarblað og það sem af er ári eiga eftir að koma tvö blöð. Það fyrra kemur rétt fyrir jól, 21. desember, en hið síðara 28. desember. Fréttatíminn kom fyrst út fyrir rúmum tveimur árum, 1. október 2010, og hafa viðtökur verið vonum framar. „Við starfsfólk Fréttatímans þökkum góðar við- tökur,” segja ritstjórarnir, Jónas Haraldsson og Mikael Torfason. Valdimar Birgisson, framkvæmdarstjóri Frétta- tímans, er að vonum ánægður með að lestur Frétta- tímans hefur aldrei verið meiri en í viku hverri lesa 108.700 Íslendingar Fréttatímann. Þessi glæpastarfsemi sýnir enn einu sinni Ísland í hnotskurn  FjárMál HaNs kristjáN árNasoN er leNtur í iNNHeiMtuFyrirtækjuM Skuldin fimmfaldaðist á rúmum tveim mánuðum Hans Kristján Árnason þurfti að heimsækja lækni í september og nokkru síðar barst honum gíróseðill. Honum láðist að borga hann og strax fjórum vikum frá heimsókninni tvöfaldaðist skuldin. Hans reyndi að ná á lækninn og fara fram á leiðréttingu en er fastur í vef innheimtufyrir- tækja. Skuldin sem var upphaflega rúmar þrjú þúsund krónur er komin yfir 16 þúsund á rúmum tveimur mánuðum. „Ég sagði framkvæmdastjóranum að ég myndi frekar mæta í héraðsdóm en að borga svona glæponum.“ Gunnar Nelson í Wembley Arena í febrúar. Retro Stefson spilar á Hlemmi Reykjavíkurborg býður upp á tónleikaröð- ina „Hangið á Hlemmi“ alla laugardaga til jóla. Tónleikarnir eru ókeypis fyrir alla aldurshópa og byrja klukkan 15. Á morgun, laugardag, spilar svo hin geysivinsæla hljómsveit Retro Stefson. Hljómsveitin, sem er ein sú vinsælasta hér á landi um þessar mundir, var á dögunum tilnefnd til Íslensku tónlistarverðlaunanna. krakk- arnir í sveitinni hafa einnig verið að gera það gott erlendis undanfarin misseri. Stoppistöðin Hlemmur er í jólabúningi og hefur verið skreytt á mjög dramatískan hátt að fyrirmynd kvikmyndarinnar „Cristmas vacation“. Stemning níunda áratugarins svífur yfir vötnum og meðal annars hefur listakonan Hildur Gunnlaugsdóttir sett upp sýninguna „Gluggi fortíðar“ sem er smávaxin yfirlitsýning þar sem skyggnst er inn í glugga fortíðarinnar þar sem fótanuddtæki og aðrar lífsnauðsynjar fyrri tíma fá að njóta sín. Rýkur úr kortum erlendra ferðamanna Kortavelta útlendinga á Íslandi jókst gríðarlega í nýliðnum nóvember, eða um 57 prósent miðað við sama mánuð í fyrra. Hún nam nú 4,3 milljörðum króna. Korta- velta Íslendinga í útlöndum nam rúmum 6,7 milljörðum króna í nóvember sem er aukning upp á tæplega 6% að nafnvirði frá nóvember í fyrra. Er þessi gríðarlega aukning í kortaveltu útlendinga hér á landi í takti við tölur Ferðamálastofu sem sýndu að brottfarir erlendra ferðamanna um Leifsstöð voru 61% fleiri nú í nóvember en þær voru á sama tíma í fyrra, að því er fram kemur hjá Greiningu Íslandsbanka. Lítil aukning varð á brottförum Íslendinga um Leifsstöð á sama tíma, eða rétt um 0,6%. Fleiri kaupa skó Íslendingar hafa verslað ögn meira fyrir þessi jól en þeir gerðu í fyrra, sem nemur rúmum þremur prósentum á núgildandi verðlagi. Fleiri helgar voru í nóvember í ár en í fyrra og að teknu tilliti til þess jókst veltan um 0,4 prósent. Verð á dagvöru hefur hins vegar hækkað um rúm 6 prósent á milli ára. Aukning var mest í skósölu, um rúm 12 prósent en skóverð hefur nánast ekkert hækkað á tímabilinu. Samdráttur var mestur í sölu rúma. -sda UFC hefur tilkynnt að Gunnar Nelson muni mæta Justin Edwards á Wembley Arena, sem tekur 12.500 manns í sæti, þann 16. febrúar næstkomandi. Gunnar sigraði í fyrsta bardaga sínum gegn DaMarques Johnson í UFC í síðasta mánuði og þykir með efnilegri bardaga- mönnum heims. Gunnar hefur sigrað í síðustu 10 bardögum sínum í blönduð- um bardagaíþróttum og stefnir á sjötta sigurinn gegn Edwards sem tapaði síðast þegar hann barðist í Bretlandi. Hann er kallaður „Fast Eddy“ og er Bandaríkjamaður. Augljóst er af umfjöllun ytra að mikil eftirvænting er fyrir þessum bardaga Gunnars og öll augu beinast að honum enda er honum spáð miklum frama innan íþróttarinnar. 2 fréttir Helgin 14.-16. desember 2012
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120

x

Fréttatíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.