Fréttatíminn - 14.12.2012, Blaðsíða 106
102 bíó Helgin 14.-16. desember 2012
Krakk-
arnir tóku
til sinna
ráða eftir
að sovéski
innrásar-
herinn
hertók
heimabæ
þeirra og
smalaði
fullorðna
fólkinu í
fangabúðir.
Red dawn enduRgeRðuR kalda stRíðshasaR
u pphaflega stóð til að frumsýna Red Dawn í nóvember 2010 en fjárhags-örðugleikar MGM seinkuðu henni
verulega. Ýmislegt hefur breyst á þessum
tveimur árum en meðal annars var í eftir-
vinnslu myndarinnar ákveðið að breyta
þjóðerni innrásarhersins sem ræðst á Banda-
ríkin. Þegar myndin var tekin upp réðust
Kínverjar á Bandaríkin en til þess að móðga
ekki Kínverja og fæla þarlenda áhorfendur
frá myndinni var þeim breytt í Norður-Kóreu-
menn í lokafrágangnum.
Chris Hemsworth leikur aðalhlutverkið í
Red Dawn en eftir að tökum á Red Dawn lauk
lék hann þrumuguðinn Þór í Thor og endur-
tók hlutverkið síðan í einni allra vinsælustu
mynd þessa árs, The Avengers. Velgengni
Hemsworth seinna meir er því ákveðinn
styrkur fyrir Red Dawn en hann var lítt þekk-
ur þegar hann lék í myndinni en er orðinn
stórstjarna þegar hún kemur loks fyrir sjónir
áhorfenda.
Red Dawn er endurgerð samnefndrar
myndar eftir John Milius frá 1984 en þar
smalaði hann saman vöskum ungliðum með
Patrick Swayze fremstan í flokki en hann
leiddi C. Thomas Howell, Lea Thompson,
Charlie Sheen og Jennifer Grey í andspyrnu-
hreyfingu unga fólksins. Krakkarnir tóku til
sinna ráða eftir að sovéski innrásarherinn
hertók heimabæ þeirra og smalaði fullorðna
fólkinu í fangabúðir þar sem margir týndu
lífi. Unglingarnir ákváðu því að hefna for-
eldra sinna og bjóða Rússunum birginn.
John Milius er sjálfsagt þekktastur fyrir
Conan The Barbarian en hann haslaði sér
völl í kvikmyndum í kringum 1970 ásamt
félögum sínum, Francis Ford Coppola og Ge-
orge Lucas, og hefur alla tíð staðið í skugga
þeirra. Hann skrifaði handrit Apocalypse
Now og Dirty Harry-myndarinnar Magnum
Force en lét síðast til sín taka svo eftir var
tekið með hinum stórgóðu og blóðugu sjón-
varpsþáttum ROME.
Chris Hemsworth leysir Patrick, heitinn,
Swayze af í endurgerðinni og þar sem Sovét-
menn eru alveg heillum horfnir sem illmenni
í bíómyndum og því kemur, að hluta til af við-
skiptaástæðum, í hlut Norður-Kóreumanna
að herja á Bandaríkin.
Josh Hutcherson tekur þátt í andspyrnunni
með Hemsworth en vegur hans hefur einnig
farið vaxandi frá því hann lék í Red Dawn
og hann hefur heillað unga fólkið í hlutverki
Peeta Mellark í The Hunger Games.
Leikstjórinn John Milius var í góðu kalda stríðs stuði árið 1984 þegar hann sendi frá sér unglinga-
myndina Red Dawn. Í myndinni er þriðja heimsstyrjöldin að skella á og Sovétmenn taka sig til
og ráðast á Bandaríkin. Nokkrir unglingar láta slíkt ekki yfir sig ganga, grípa til vopna og verja
smábæinn sinn. Red Dawn var endurgerð fyrir um það bil tveimur árum og er nú loks komin í bíó.
Nú fer Chris Hemsworth fyrir vöskum hópi ungmenna sem mæta innrásarher Norður-Kóreu en
stjarna Hemsworth hefur heldur betur risið hátt frá því hann lék í þessari síðbúnu endurgerð.
Þórarinn
Þórarinsson
toti@frettatiminn.is
Hemsworth í stað Patrick Swayze
Chris Hemsworth leiðir félaga sína í andspyrnu gegn innrásarher frá Norður-Kóreu.
Patrick Swayze og Charlie Sheen ungir og sætir
ásamt Jennifer Grey og fleiri ungmennum á leið í
stríð við Sovétmenn.
svaRtiR sunnudagaR JapanskuR hRolluR
Skólastúlkur í andsetnu húsi
Félagarnir Sjón, Hugleikur og Sigurjón Kjartansson
gefa hvergi eftir þegar „költ“ kvöldin þeirra á sunnu-
dögum í Bíó Paradís eru annars vegar. Á sunnudaginn
bjóða þeir upp á japönsku hryllingsmyndina Hausu,
eða Húsið, klukkan 20.
Nobuhiko Obayashi leikstýrði Hausu árið 1977 en
myndin fjallar um andsetið hús, japanskar skólastúlk-
ur og hvítan angóra-kött sem reynist vera djöfullinn
sjálfur. Hausu hefur í gegnum árin skipað sér á bekk
meðal helstu „költ“ mynda og er í dag mærð meðal
hrollvekju aðdáenda um allan heim.
Myndin var á sínum tíma hugsuð sem einhvers
konar andsvar Japana við Jaws en framleiðendum þótti
leikstjórinn fá full frjálsar hendur og úr varð einhver
sérstakasta hrollvekja sem sést hefur á hvíta tjaldinu.
Hausu er
vægast sagt
undarlegur
hrollur frá
Japan.
„Í SVEIT BESTU
GLÆPASAGNA-
HÖFUNDA
ÞJÓÐARINNAR“
★★★★
BIH, PRESSAN.IS
GUÐFINNUR SIGURVINSSON,
SÍÐDEGISÚTVARPINU Á RÁS 2.
2. PRENTUN
KOMIN Í VE
RSLANIR
ROF EFTIR RAGNAR JÓNASSON
00000
w w w. v e i d i k o r t i d . i s
Eitt kort
35 vötn
6.900 kr
Frábær jólagjöf!